Viðskiptavinaaðgangar
Síðan Viðskiptavinaaðgangar (Stillingar → Mínar síður → Viðskiptavinaaðgangar, slóð /dashboard/settings/portal/users, líka um takkann „Viðskiptavinaaðgangar" á Stillingum Minna síðna) er ein sameinuð síða fyrir alla notendaaðganga viðskiptavina — hvort sem þeir skráðu sig á Mínum síðum eða í vefversluninni. Viðskiptavinur á einn reikning per fyrirtæki: sama innskráning virkar á báðum stöðum, svo engin sérstök síða er fyrir notendur vefverslunar. Síðan og aðgerðir hennar eru aðeins opnar hlutverkinu TENANT_ADMIN (Stjórnandi), enda veitir hún aðgang að gögnum viðskiptavina.

Efst til hægri er fellilisti sem síar töfluna eftir aðgangsstöðu: Bíður samþykkis (sjálfgefið), Samþykktir, Hafnað eða Allir. Rauða talan á fellilistanum sýnir alltaf fjölda notenda sem bíða samþykkis, óháð því hvaða sía er valin. Takkinn „Nýr notandi" stofnar aðgang handvirkt. Leitarreiturinn ofan við töfluna leitar í nafni, netfangi, kennitölu og nafni viðskiptavinar — innan þeirrar stöðu sem er valin í síunni.
| Dálkur | Lýsing |
|---|---|
| Nafn | Nafn og netfang notandans, með appelsínugulu merki „Óstaðfest netfang" ef netfangið hefur ekki verið staðfest |
| Kennitala | Kennitala notandans eins og hann skráði hana |
| Viðskiptavinur | Blátt merki með nafni aðalviðskiptavinarins (og „(+N)" ef fleiri tengingar eru samþykktar), eða grátt „Ekki tengdur" ef engin tenging er samþykkt — líka þótt beiðni bíði |
| Uppruni | Hvaðan reikningurinn kom: „Mínar síður" (blátt), „Vefverslun" (fjólublátt) eða „Starfsmaður" (stofnaður hér með „Nýr notandi") |
| Staða | „Bíður samþykkis" (appelsínugult), „Virkur" (grænt), „Óvirkur" (grátt — samþykktur en óvirkjaður) eða „Hafnað" (rautt; ástæðan birtist þegar bendill er yfir merkinu) |
| Skráður | Dagsetning skráningar |
| Síðasta innskráning | Hlutfallslegur tími (nákvæm tímasetning þegar bendill er yfir), eða „—" ef notandinn hefur aldrei skráð sig inn. Hægt að raða eftir dálkinum |
| Aðgerðir | Takkar sem fara eftir stöðu notandans — sjá töfluna hér að neðan |
| Staða | Aðgerðir í töflunni |
|---|---|
| Bíður samþykkis | Samþykkja, Hafna (með valfrjálsri ástæðu), Breyta og Stjórna viðskiptavinum |
| Virkur / Óvirkur | Skoða sem notandi, Breyta, Stjórna viðskiptavinum, Senda endurstillingarpóst, Breyta lykilorði og Óvirkja notanda (með staðfestingu) eða Endurvirkja notanda |
| Hafnað | Samþykkja og Breyta |
Samþykki á tengingu, ekki á notanda
| Aðgangsstaða | Þýðir |
|---|---|
| Samþykkt | A.m.k. ein samþykkt, óhöfnuð tenging við raunverulegan viðskiptavin |
| Hafnað | Til eru tengingar og öllum hefur verið hafnað |
| Bíður samþykkis | Allt annað, þar á meðal notandi án nokkurrar tengingar eða aðeins með ópöruðum beiðnum |
Smelltu á tengitakkann í aðgerðadálkinum. Glugginn sýnir „Tengdir viðskiptavinir" — allar tengingar notandans með merki: „Samþykkt" (grænt), „Bíður samþykkis" (appelsínugult), „Hafnað" (rautt) eða „Ópöruð" (kennitala sem fannst ekki í viðskiptamannaskránni). Aðalviðskiptavinurinn er merktur með stjörnu.
Fínstilltu ákvörðunina línu fyrir línu með „Samþykkja tengingu" eða „Hafna tengingu" (valfrjáls ástæða). Ópöruð beiðni er aldrei samþykkjanleg — henni má aðeins hafna eða fjarlægja („Fjarlægja beiðni").
Leitaðu að viðskiptavini í reitnum „Bæta við viðskiptavini" (a.m.k. 2 stafir) og smelltu á „Bæta við". Tengingin verður samþykkt um leið. Hafi notandinn átt opna beiðni fyrir sama viðskiptavin, eða ópöraða beiðni með sömu kennitölu, er sú beiðni samþykkt í stað þess að ný verði til — þannig er ópöruð beiðni tengd handvirkt.
Fyrsta samþykkta tengingin verður sjálfkrafa aðalviðskiptavinur, sem er valinn sjálfgefið við innskráningu. „Gera að aðalviðskiptavini" (stjarna) virkar aðeins á samþykkta tengingu. „Fjarlægja tengingu" eyðir tengingunni; var hún aðaltenging tekur elsta samþykkta tengingin sem eftir er við.
Samþykkis-/höfnunartakkarnir beint í töflunni afgreiða allar biðtengingar notandans í einu. Samþykki sleppir ópöruðum beiðnum, en höfnun nær líka til þeirra. Eigi notandinn enga samþykkjanlega tengingu (t.d. aðeins ópöraða beiðni) svarar kerfið „Notandi á enga tengingu sem hægt er að samþykkja" — bættu þá réttum viðskiptavini við í „Stjórna viðskiptavinum".
Nýr notandi og breytingar
Aðrar aðgerðir
Tengsl við aðrar einingar: Innskráningarsíðan sjálf og útlit hennar eru stillt á Mínar síður. Viðskiptavinur sem er tengdur og samþykktur hér sér sín eigin verðkjör (áætlanir, þrep, föst verð) sjálfkrafa bæði á Mínum síðum og í vefversluninni. Viðskiptavinaskráin sjálf sem tengingar vísa í er á Viðskiptavinir.