PayGoHandbókNámskeið
Kafli: InnheimtaBútur 1 af 31:33

Yfirlit innborgana

Hvar greiðslur viðskiptavina eru, hvað spjöldin og dálkarnir sýna, hvernig á að sía og leggja saman upphæðir, og hvernig ranglega skráð greiðsla er bakfærð.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
0:00 / 1:33

Yfirlit innborgana

Hraði

Greiðslur

Yfirlit yfir innborganir viðskiptavina, tengingu þeirra við sölureikninga og bakfærslur

Greiðslur er yfirlitssíða yfir allar innborganir sem viðskiptavinir hafa greitt upp í sölureikninga. Hver greiðsla ber greiðslunúmer, tengist einum viðskiptavini og einum greiðslumáta, og er úthlutað á einn eða fleiri reikninga. Þegar greiðsla er skráð uppfærist staða viðkomandi reiknings sjálfkrafa og bókhaldsfærsla myndast.

Þessi síða er fyrst og fremst skoðunar- og leitarsíða: hér sérðu allar greiðslur, leitar og síar, flytur út í Excel og getur bakfært greiðslur sem skráðar voru ranglega. Sjálf skráning greiðslu fer venjulega fram inni á reikningnum með hnappnum „Skrá greiðslu", eða sjálfvirkt í gegnum POS, bankatengingu eða kröfu í heimabanka.

Síðan er opnuð í valmyndinni undir Innheimta → Innborganir.

Listi yfir greiðslur
Stækka
Greiðslur með viðskiptavini, greiðslumáta, tengdum reikningum og stöðu, ásamt lykiltölum efst

Lykiltölur efst á síðunni

Efst birtast fjögur samantektarspjöld sem reiknast út frá þeim greiðslum sem núverandi síur skila:

  • Heildargreiðslur — samtala allra greiðslna í listanum, birt í krónum (t.d. 1.024 kr.). Bakfærðar greiðslur teljast ekki með.
  • Greitt í dag — greiðslur með dagsetningu í dag, auk krafna í bið frá í dag eða í gær sem bíða lokaúrvinnslu. Bakfærðar greiðslur teljast ekki með.
  • Greitt í mánuði — samtala greiðslna frá fyrsta degi líðandi mánaðar. Bakfærðar greiðslur teljast ekki með.
  • Í afstemmingu — fjöldi greiðslna sem eru í stöðunni „Í bið" (bíða staðfestingar eða afstemmingar).

Efst á síðunni

Yfir listanum stendur fyrirsögnin Greiðslur og undir henni fjöldi greiðslna (t.d. „24 greiðslur"). Hægra megin er einn hnappur:

  • Flytja út í Excel — flytur allar greiðslur (eins og þær eru síaðar) út í Excel-skjal sem heitir greidslur_ÁÁÁÁ-MM-DD.xlsx. Skjalið inniheldur dálkana Dagsetning, Greiðslunúmer, Viðskiptavinur, Upphæð, Gjaldmiðill, Greiðslumáti, Bankareikning, Staða, Reikningar, Tilvísun og Athugasemdir.

Síur

Í spjaldinu Síur er hægt að þrengja listann. Efst í hægra horni spjaldsins er hnappurinn Hreinsa sem núllstillir allar síur (dagsetningin fer aftur í síðustu 30 daga). Neðst er aðalhnappurinn Leita sem sækir greiðslur miðað við valdar síur.

ReiturLýsingSkylda
Dagsetning frá/tilTímabil greiðsludagsetningar. Sjálfgefið síðustu 30 dagar. Snið DD.MM.ÁÁÁÁ.Nei
ViðskiptavinurFellilisti með leit — sía eftir einum viðskiptavini. Sjálfgefið „Allir viðskiptavinir".Nei
GreiðslumátiFellilisti yfir greiðslumáta (t.d. millifærsla, kort, reiðufé). Sjálfgefið „Allir greiðslumátar".Nei
StaðaEin af stöðunum Greitt, Afstemmt, Í bið eða Bakfært. Sjálfgefið „Allar".Nei
LeitFrítextaleit eftir greiðslunúmeri, tilvísun, reikningsnúmeri eða viðskiptavini. Leitar sjálfkrafa 0,5 sek eftir innslátt.Nei

Dálkar í listanum

Greiðslutaflan er með breiðum lárettum skrun (rennur til hliðar á litlum skjá). Aftasti dálkurinn með aðgerðum er fastur hægra megin.

ReiturLýsingSkylda
DagsetningGreiðsludagsetning. Hægt að raða hækkandi/lækkandi með smelli á dálkahaus.—
GreiðslunúmerAuðkenni greiðslu (t.d. PMT-…). Klukku-tákn við hlið númers merkir sögufærslu sem hefur ekki bókhaldsleg áhrif í PayGo.—
ViðskiptavinurNafn viðskiptavinar sem greiðslan tilheyrir.—
UpphæðFjárhæð greiðslu í réttum gjaldmiðli. Hægt að velja frumur til að leggja saman (sjá ábendingu neðar). Raðanlegt.—
GreiðslumátiHeiti greiðslumáta greiðslunnar.—
BankareikningNafn bankareiknings sem greiðslan barst á, eða „-" ef enginn er skráður.—
StaðaLitamerkt staða greiðslu (sjá stöðutöflu að neðan).—
ReikningarReikningur/reikningar sem greiðslunni var úthlutað á. Smellanlegir tenglar opna reikninginn. Fleiri en tveir birtast sem „…+N til viðbótar".—
TilvísunTilvísun greiðslu (t.d. færslulýsing eða kröfunúmer), eða „-".—
(aðgerðir)Þrír-punktar valmyndarhnappur lengst til hægri (fastur dálkur). Opnar aðgerðir fyrir línuna.—

Röðun og síðuskipting

  • Raða má eftir Dagsetningu og Upphæð með smelli á dálkahausinn.
  • Neðst má velja fjölda á síðu: 10, 20 (sjálfgefið), 50 eða 100.
  • Fótur töflunnar sýnir „Samtals ÁÁ greiðslur" og samtölu upphæða á núverandi síðu.
  • Ef engar greiðslur finnast birtist skilaboðið „Engar greiðslur fundust".

Aðgerðir á línu

Þrír-punktar hnappurinn lengst til hægri opnar valmynd með aðgerðum sem eiga við stöðu greiðslunnar:

  • Skoða — ætlað að opna nánari upplýsingar greiðslunnar, en sérstök greiðslusíða er ekki enn tilbúin. Þegar smellt er á valið birtast skilaboðin „Greiðslusíða ekki enn tilbúin".
  • Bakfæra — birtist aðeins þegar greiðslan er Greitt eða Afstemmt. Rautt val sem bakfærir greiðsluna. Valið vantar þegar greiðslan er á reikningi sem hefur verið kreditfærður — full kreditfærsla færði greiðsluna á inneign viðskiptavinar og hún er leiðrétt þar (sjá Inneignir).
GreiðslustaðaLiturMerking
GreittGrænnGreiðsla skráð og bókuð (CLEARED). Hægt að bakfæra.
AfstemmtBlárGreiðsla afstemmd við bankahreyfingu (RECONCILED). Hægt að bakfæra.
Í biðAppelsínugulurGreiðsla eða krafa bíður staðfestingar/lokaúrvinnslu (PENDING).
BakfærtRauðurGreiðsla hefur verið bakfærð (VOID). Bókhaldsfærslur afturkallaðar.
1
Opnaðu greiðsluna sem á að bakfæra

Finndu greiðsluna í listanum (nýttu síur eða leit). Aðeins greiðslur í stöðunni „Greitt" eða „Afstemmt" er hægt að bakfæra — annars birtast skilaboð um að aðeins greiddar eða afstemmdar greiðslur megi bakfæra.

2
Veldu „Bakfæra"

Smelltu á þrír-punktar hnappinn lengst til hægri á línunni og veldu rauða valið „Bakfæra". Staðfestingargluggi opnast með fyrirsögninni „Bakfæra greiðslu <greiðslunúmer>".

3
Yfirfarðu upplýsingar

Glugginn sýnir viðvörun um að bakfærslan afturkalli bókhaldsfærslur og uppfæri reikningsstöðu, ásamt yfirliti: viðskiptavinur, upphæð, dagsetning og greiðslumáti. Auk þess geta birst sérstakar tilkynningar eftir því hvað greiðslan snertir (sjá næsta kafla).

4
Skráðu ástæðu

Sláðu inn ástæðu bakfærslu í reitinn „Ástæða bakfærslu" (skylda, að hámarki 500 stafir). Ef reiturinn er tómur birtist villuboð og ekki er hægt að halda áfram.

5
Staðfestu

Smelltu á rauða hnappinn „Bakfæra" (eða „Hætta við" til að hætta). Greiðslan fær stöðuna „Bakfært", mótfærsla myndast í bókhaldi og staða tengdra reikninga uppfærist. Staðfestingarskilaboð birtast: „Greiðsla <greiðslunúmer> hefur verið bakfærð".

Viðvaranir í bakfærslugluggann

Áður en þú staðfestir sækir kerfið forskoðun á áhrifum bakfærslunnar og sýnir þær tilkynningar sem eiga við:

  • Innborgunarreikningur — ef greiðslan var á innborgunarreikningi fyrir pöntun stendur að bakfærslan geri hann ógreiddan aftur. Hafi hann þegar verið dreginn frá lokareikningi er bætt við að viðskiptavinurinn skuldi upphæðina aftur.
  • Bankakrafa — hafi greiðslan fellt niður eða lækkað bankakröfu stendur að krafan hafi verið felld niður eða lækkuð við greiðsluna og að þú þurfir að stofna nýja kröfu ef innheimta á aftur.
  • Greiðsla af innborgun — kom greiðslan af innborgun (ráðstöfun fyrirframgreiðslu) stendur að bakfærslan skili upphæðinni á innborgunina.

Hlutagreiðslur, margir reikningar og ofgreiðsla

  • Hlutagreiðsla: Ef aðeins hluti reiknings er greiddur verður hann „Að hluta" og eftirstöðvar sjást áfram á reikningnum.
  • Margir reikningar: Ein greiðsla getur verið úthlutuð á fleiri en einn reikning. Í dálknum „Reikningar" birtast allt að tveir tengdir reikningar sem smellanlegir tenglar. Séu reikningarnir þrír eða fleiri birtist fyrsta reikningsnúmerið sem venjulegur (ósmellanlegur) texti með „+N til viðbótar" aftan við.
  • Ofgreiðsla: Ef greitt er umfram eftirstöðvar reiknings verður mismunurinn að inneign hjá viðskiptavini.
  • Kreditreikningar: Fyrir kreditreikninga (neikvæða) er greiðslan neikvæð (endurgreiðsla) og debet/kredit í bókhaldsfærslunni víxlast.
Næst · Bútur 2 af 3

Bankakröfur

Hvað bankakröfur eru, hvað dálkarnir og stöðumerkin segja, hvernig þú síar listann og hvernig krafa verður til úr sölureikningi.