PayGoHandbókNámskeið
Kafli: Fyrstu skrefinBútur 3 af 30:56

Kerfisleit

Finndu reikninga, pantanir, tilboð, vörur, viðskiptavini og lánardrottna á einum stað með Ctrl+K, og þrengdu leitina með tegundarorðum og síum.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
0:00 / 0:56

Kerfisleit

Hraði

Kerfisleit

Finndu reikninga, pantanir, tilboð, vörur, viðskiptavini og lánardrottna á einum stað með ⌘K

Kerfisleitin er leitarreiturinn efst í mælaborðinu. Þú opnar hana með því að smella á hann eða slá ⌘K (Ctrl+K á Windows og Linux) hvar sem er í kerfinu. Hún leitar þvert á sex tegundir í einu og skilar niðurstöðunum í hópum eftir tegund, með fjöldatölu við hvern hóp. Þú þarft ekki að vita hvar færslan er geymd — skrifaðu bara það sem þú manst.

Kerfisleit opin með tegundarorðum og síum
Stækka
Kerfisleitin opnuð með ⌘K eða Ctrl+K: tómur reitur sýnir tegundarorðin og dæmi um síur
TegundLeitað er í
ReikningarReikningsnúmer, nafn viðskiptavinar, kennitala, tilvísun
PantanirPöntunarnúmer, nafn viðskiptavinar, kennitala, tilvísun
TilboðTilboðsnúmer, nafn viðskiptavinar, kennitala, tilvísun
VörurHeiti, vörunúmer (SKU), lýsing, vefheiti
ViðskiptavinirNafn, kennitala, netfang, sími, staður
LánardrottnarNafn, kennitala, tengiliður, netfang, sími, staður

Leita í einni tegund

Skrifaðu tegundarorð fremst í reitinn og bil á eftir. Orðið breytist í bláan kubb og leitin þrengist við þá tegund. Þú getur líka smellt á orðin í listanum sem birtist þegar reiturinn er tómur.

TegundOrð sem virka
Reikningarrei, reikn, inv
Pantanirpnt, pöntun, pontun, ord
Tilboðtil, tilb, quo
Vörurvara, prd, sku
Viðskiptavinirkúnni, kunni, cust
Lánardrottnarbirgi, sup

Þrengja með síum

Síur eru skrifaðar með tvípunkti svo þær rekist aldrei á venjuleg orð. Þær má sameina — rei stada:ógreitt upph:>100000 finnur ógreidda reikninga yfir 100.000 kr.

SíaSniðDæmi
Staðastada:<orð>stada:ógreitt
Dagsetningabildags:<frá>..<til>dags:2026-01..2026-06
Frá og meðdags:><dagsetning>dags:>2026-01-01
Einn mánuðurdags:<ár-mánuður>dags:2026-05
Lágmarksupphæðupph:><tala>upph:>100000
Upphæðarbilupph:<frá>..<til>upph:10000..50000
Mínar færslurmínar, minar, mín, min, minemínar

Stöðuorð

Stöðuorðin virka þvert á tegundir. Sama orð getur þýtt mismunandi hluti eftir tegund — „niðurfellt" er ein staða á pöntun og önnur á tilboði — og leitin sér um að finna réttu kóðana í hverju tilviki. Slærðu inn orð sem er ekki á listanum verður það ekki að síu, heldur helst sem venjulegur leitartexti. Þannig geturðu ekki óvart síað burt allar niðurstöður.

StaðaMeð íslenskum stöfumÁn íslenskra stafa
Ógreittógreittogreitt
Greittgreittgreitt
Að hlutaað-hlutaad-hluta
Drögdrögdrog
Sentsentsent
Í vinnsluí-vinnslui-vinnslu
Niðurfelltniðurfelltnidurfellt
Tímabærttímabærttimabaert
Samþykktsamþykktsamthykkt
Hafnaðhafnaðhafnad
Útrunniðútrunniðutrunnid
Bíðurbíðurbidur
Staðfeststaðfeststadfest
Afhentafhentafhent
Í flutningií-flutningii-flutningi
Reikningsfærtreikningsfærtreikningsfaert
Virktvirktvirkt
Óvirktóvirktovirkt

Hvernig leitin finnur það sem þú skrifar

Leitin notar fjórar aðferðir. Nákvæm samsvörun og forskeyti raðast efst, orðaleit finnur restina og innsláttarvillur eru aðeins leitaðar uppi þegar ekkert annað finnst. Þú þarft ekki að gera neitt sérstakt — hún skiptir sjálf um aðferð þegar þarf.

AðferðHvað hún gerirDæmi
Nákvæm samsvörunSkjalanúmer eða nafn sem passar alveg fer efstSR-2026-0412
ForskeytiByrjunin á númeri eða nafni dugar — þú þarft ekki að klára þaðSR-2026 finnur alla reikninga ársins (forskeytið fer eftir stillingum)
OrðaleitHvert orð í nafni, kennitölu eða tilvísun er leitarhæftbergur finnur „Bergur ehf." og öll skjölin hans
InnsláttarvillurEf ekkert finnst er leitað að því sem líkist mestbergru finnur samt „Bergur"

Hvert opnast færslan?

Reikningar, pantanir og tilboð opnast á sinni eigin síðu. Vörur og lánardrottnar opnast í spjaldi á viðkomandi lista. Viðskiptavinir opnast á söluborðinu með viðskiptavininn valinn — þar sérðu stöðuna hans, reikninga, tilboð og pantanir og getur selt á hann strax. Viltu breyta stofnupplýsingunum ferðu í Sala → Viðskiptavinir.

Lyklaborðsstýring

LykillAðgerð
⌘K / Ctrl+KOpna leitina hvar sem er í mælaborðinu
↑ ↓Færa valið, þvert á alla hópa
↵Opna völdu færsluna
⌘↵ / Ctrl+↵Opna í nýjum flipa — leitin helst opin svo þú getir opnað fleiri í röð
EscHreinsar fyrst leitartextann, svo síurnar, og lokar loks glugganum
BackspaceÁ tómum reit: fjarlægir síðustu síuna
Næst · Bútur 1 af 2

Prófíllinn þinn

Mínar upplýsingar í stuttu máli — prófílmynd, tungumál og flýtileiðir, push-tæki, tveggja þátta auðkenning, lotur, persónuupplýsingar, lykilorð og innskráningarsaga.