Póstlistar (viðbót)
Yfirlit
Póstlistar er sérmódúll (viðbót) fyrir markpóst — listar, áskrifendur, sniðmát og herferðir — og birtist aðeins hjá fyrirtækjum sem hafa viðbótina virka. Síðan er á /dashboard/modules/mailing og hefur fyrirsögnina „Póstlistar", með sjö flipum: Listar, Áskrifendur, Sniðmát, Herferðir, Skráningarform, API-lyklar og Stillingar.
Listar og áskrifendur
Flipinn „Listar" heldur utan um nafngreinda póstlista (virkir/óvirkir) með meðlimafjölda. Hnappurinn „Sækja viðskiptavini" á hverjum lista skráir alla virka viðskiptavini fyrirtækisins með netfang á listann í einu (valfrjálst með tengiliðum) — afskráðir og þaggaðir áskrifendur endurvekjast ekki sjálfkrafa. Listar má flytja út sem XLSX eða CSV.
Flipinn „Áskrifendur" sýnir alla áskrifendur óháð lista, með stöðu (Virkur, Óstaðfestur, Afskráður, Bounce, Kvörtun), uppruna (Handvirkt/Innflutningur/Viðskiptavinur/Skráningarsíða), hvaða lista þeir tilheyra, og atburðasögu (opnanir, smellir, bounce, kvartanir, afskráning). Áskrifendur má skrá handvirkt eða flytja inn úr CSV/Excel.
Sniðmát og herferðir
Flipinn „Sniðmát" heldur utan um tölvupóstsniðmát sem búin eru til í blokka-byggðum sniðmátasmið (drag-and-drop), sem má afrita eða eyða.
Flipinn „Herferðir" er fjögurra skrefa hjálp (grunnupplýsingar → listar → sniðmát → yfirferð) til að búa til og senda út herferð: nafn, efni, sendandanafn og svarnetfang (sjálfgefið úr Stillingum, má yfirskrifa), val á einum eða fleiri póstlistum, og val á sniðmáti — herferðin geymir sitt eigið afrit af útlitinu, svo breyting á sniðmáti eftir á hefur ekki áhrif á þegar vistaða herferð. Áður en sent er má senda prufupóst. Herferð fer í gegnum stöðurnar Drög → Tímasett → Í vinnslu → Sent (eða Í bið/Hætt við), og má tímasetja fram í tímann.
Staða og tölfræði herferðar
Í upplýsingaglugga herferðar sérðu efni, sendanda og stöðu. Meðan herferð er Í vinnslu sýnir glugginn framvindu (t.d. „50 / 200 sent“) og uppfærist sjálfkrafa á um 10 sekúndna fresti þar til sendingu lýkur. Þar má líka pása sendingu, halda áfram eða hætta við hana — þá fá ósendir viðtakendur ekki póstinn.
Þegar herferð er farin að senda birtist hlutinn „Tölfræði“ (hann er falinn á drögum) með sex reitum: Afhent, Opnað %, Smellt %, Bounce, Afskráningar og Sjálfvirkar opnanir. Reitur sem vantar gögn í sýnir strik (—). Undir þeim er tímalínurit yfir opnanir og smelli, listi yfir hlekki með smellafjölda og listi yfir viðtakendur sem má sía (Allir, Opnuðu, Smelltu, Afskráðu).
Sjálfvirkar opnanir eru opnanir innan 30 sekúndna frá sendingu eða frá þekktum póstskönnum (t.d. Google, Microsoft) og eru ekki taldar með í Opnað %. Opnunartölur eru samt yfirmat — Apple Mail sækir myndir sjálfkrafa (Mail Privacy Protection) — og því eru smellir áreiðanlegasta mælingin.
Skráningarform og API-lyklar
Flipinn „Skráningarform" býr til hýsta skráningarsíðu og/eða innfellanlegan (embed) kóðabút fyrir fyrirtækisins eigin vef, þar sem gestir skrá sig sjálfir á valinn póstlista — með valkvæðri tvöfaldri staðfestingu (staðfestingarpóstur með hlekk) eða beinni skráningu.
Flipinn „API-lyklar" gefur út lykla fyrir ytri kerfi til að skrá og fletta upp áskrifendum í gegnum eigið API (hámark 60 köll á mínútu á lykil), með innbyggðri skjölun um grunnslóð, auðkenningu og endapunkta beint í viðmótinu.
Stillingar
Flipinn „Stillingar" setur sjálfgefið sendandanafn og svarnetfang fyrir nýjar herferðir (má yfirskrifa í hverri herferð), auk sendingarþaks („Sendingarþök") — hámarksfjölda pósta á klukkustund og á dag. Þökin eru aðeins til skoðunar hér; kerfisstjóri PayGo stillir þau (sjálfgefið 500 á klukkustund og 2.000 á dag).
Tengsl við aðrar einingar
Flipinn „Sækja viðskiptavini" sækir gögn beint úr viðskiptavinaskránni (netföng virkra viðskiptavina og valfrjálst tengiliði þeirra) og skráir þá á valinn póstlista — módúlið skrifar hins vegar ekkert til baka í viðskiptavinaskrána sjálfa. Póstlistar og herferðir eru að öðru leyti sjálfstæð eining sem tengist hvorki bókhaldi né pöntunum.