PayGoHandbókNámskeið
Horfðu á þetta · 1:58Verðbreytingar

Verðbreytingar

Fjöldabreyttu söluverði eftir vöruflokki, birgja eða verðbili — forskoðaðu áhrifin áður en þú framkvæmir

Verðbreytingar er síðan sem gerir varanlegar, fjöldabreytingar á söluverði — gagnstætt Afsláttartímabilum sem eru tímabundin og ganga sjálfkrafa til baka. Hér velurðu hóp vara (eftir flokki, birgja, vöruhúsi eða handvirku vali), skilgreinir verðbilsreglur, skoðar áhrifin í dry-run forskoðun og framkvæmir svo keyrsluna — strax eða á tímasettum tíma. Aðeins virkar vörur eru teknar með. Síðan er á Verðlagning → Verðbreytingar í hliðarvalmyndinni og krefst þess að notandi sé stjórnandi fyrirtækisins eða með hlutverkið Birgðastjóri.

Listi yfir verðbreytingar
Stækka
Verðbreytingar: hver keyrsla er ein lína með stöðu, tegund og tímasetningu, og hnappurinn „Ný verðbreyting" stofnar nýja keyrslu

Staða keyrslu

Keyrsla fer í gegnum stöður eftir því hvað er gert við hana. Taflan á aðalsíðunni sýnir heiti, stöðu, tegund, fjölda vara (ásamt fjölda sleppta), tímasetningu, framkvæmdartíma, stofndag, hver stofnaði og hver samþykkti/keyrði — tímasett keyrsla sem cron framkvæmir sýnir „Sjálfvirkt (tímasett)" og hver tímasetti hana. Aðeins drög má eyða (ruslatunnan í aðgerðadálki).

StaðaMerking
DrögKeyrslan er vistuð en ekki framkvæmd. Má enn breyta og eyða. Tímasett keyrsla og framkvæmd keyrsla eru skrifvarin.
TímasettKeyrslan framkvæmist sjálfkrafa á tilgreindum tíma — kerfið athugar tímasettar keyrslur á 5 mínútna fresti. „Afturkalla tímasetningu" skilar keyrslunni í stöðuna Drög.
Í vinnsluKeyrslan er í framkvæmd núna — síðan uppfærir sig sjálfkrafa þar til lokið er.
FramkvæmtVerðin hafa verið uppfærð. Má bakfæra.
BakfærtFramkvæmdri keyrslu hefur verið snúið við — verð línanna sem ekki var breytt handvirkt eftir á fóru aftur í fyrra gildi.
MistókstKeyrslan klikkaði í framkvæmd. Framkvæmdin er ein færsla, svo engin verð breyttust — villuboðin birtast efst á keyrslunni.

Tvær tegundir keyrslu

Við stofnun velurðu annan af tveimur útreikningsháttum fyrir verðbilsreglurnar. Valið er efst í „Verðbilsreglur" og birtist sem merki í dálkinum „Tegund" í listanum: „Hækkun/lækkun" eða „Markframlegð".

TegundHvernig verðbil skilgreinastHvernig nýtt verð reiknast
Hækkun / lækkun á söluverðbilumBilin miðast við núverandi söluverð („Verð frá" / „Verð til").Aðgerð (+%, -%, +kr, -kr) og gildi, miðað við hvaða bil núverandi verð vörunnar fellur í.
Markframlegð eftir innkaupsverðbilumBilin miðast við innkaupsverð (kostnaðarverð án vsk) („Innkaupsverð frá" / „til").Markframlegð % á viðkomandi bili — nýtt verð reiknast svo framlegð = (verð − kostnaður) / verð. Vörur án skráðs kostnaðarverðs breytast ekki.

Að stofna keyrslu

Smelltu á „Ný verðbreyting" efst til hægri á listanum og fylltu út heiti og eftirfarandi skref.

1
Veldu umfang í „Síur"

Afmarkaðu vörurnar sem keyrslan nær til: „Flokkar" (með valkvæðum rofa „Taka undirflokka með"), „Birgjar", „Vöruhús", lagerstaða („Allar vörur" eða „Bara til á lager") og/eða handval á stökum vörum í „Bæta við vörum handvirkt". Síurnar eru samverkandi — því fleiri sem valdar eru, því þrengri verður hópurinn.

2
Veldu grunn í „Viðmið"

Veldu „Með vsk" (sjálfgefið) eða „Án vsk". Í hækkun/lækkun miðast verðbilin og breytingin við valið verð („Verðbil og breyting miðast við"); í markframlegð ræðst verðið af kostnaði og markframlegð og valið ræður aðeins hvort rúnað er á verði með eða án vsk („Rúnun miðast við").

3
Settu upp verðbilsreglur

Í „Verðbilsreglur" bætirðu við einu eða fleiri bilum með „Bæta við bili". Hvert bil hefur „Frá" og „Til" (tómt „Til" = opið bil upp á við), „Aðgerð" og „Gildi" (eða „Markframlegð %", sem verður að vera á bilinu 0–99,99) og „Rúnun". Bil má fjarlægja með „Fjarlægja bil". Ef verð vöru fellur ekki í neitt bil breytist hún ekki.

4
Veldu rúnun fyrir hvert bil

Valkostir: Engin rúnun, Upp í næsta 1.000, Upp í næsta 100, Endar á 999, Endar á 995, Endar á 99, Endar á 95 — algeng íslensk verðrúnun.

5
Smelltu á „Sjá áhrif"

Hnappurinn er neðst með „Vista drög" og „Framkvæma"; sami valkostur („Sjá áhrif (dry-run)") er líka í spjaldinu „Dry-run". Forskoðunin reiknar — án þess að breyta neinu — og sýnir fjölda vara, meðalhækkun %, fjölda viðvarana og hversu margar vörur lentu „Utan bila" eða voru „Sleppt (ekkert kostnaðarverð)". Taflan er leitanleg eftir vörunúmeri eða heiti og sýnir hverja vöru með kostnaðarverð, verð fyrir/eftir, breytingu %, framlegð fyrir/eftir og viðvörunarmerki.

6
Vistaðu, framkvæmdu eða tímasettu

„Vista drög" geymir uppsetninguna án aðgerðar. „Framkvæma" birtir staðfestingu með fjölda vara og uppfærir verðin strax. „Tímasetja" opnar glugga til að velja dagsetningu/tíma fyrir sjálfvirka framkvæmd.

Viðvaranir í forskoðun

Viðvaranir birtast sem merki í forskoðunartöflunni. Þær eru ábendingar — nema „Neikvætt verð — sleppt" stöðva þær ekki keyrsluna.

ViðvörunMerking
Neikvæð framlegðNýja verðið gefur neikvæða framlegð miðað við kostnaðarverð.
Verðlæst varaVaran er merkt verðlæst. Viðvörunin er aðeins ábending — keyrslan breytir verði vörunnar samt. Ekki er hægt að taka staka vöru úr keyrslu, svo þrengdu síurnar ef verðið á að standa.
Föst verð tilVaran á virkt föst verð á tiltekna viðskiptavini sem taka ekki breytingum hér.
Útsölumerki brotnar í vefverslunNúverandi útsöluverð í vefverslun (compare-at) stenst ekki lengur samanburð við nýja verðið.
Neikvætt verð — slepptReiknað verð varð neikvætt; varan er ekki uppfærð.

Bakfærsla

Framkvæmdri keyrslu má snúa við með „Bakfæra" (aðeins í stöðunni Framkvæmt). Staðfestingarglugginn „Bakfæra keyrslu" tekur fram fjölda lína sem bakfærast — línur sem varan var handvirkt verðbreytt á eftir keyrsluna sleppa (staðan „Sleppt (handvirk breyting)" í línulistanum) svo bakfærslan skrifi ekki yfir nýrri, viljandi breytingu.

Línur keyrslu

Eftir framkvæmd sýnir spjaldið „Línur keyrslu" hverja vöru sem varð fyrir áhrifum: kostnaðarverð, verð fyrir/eftir, framlegð fyrir/eftir og stöðu (Framkvæmt / Bakfært / Sleppt (handvirk breyting)). Þetta er endanleg skrá yfir hvað keyrslan gerði, óháð því hvort varan hefur breyst aftur handvirkt síðan.

Tengsl við aðrar einingar

Síðan breytir söluverði á Vörum og virkar á hópa úr Vöruflokkum. Hún er sjálfstæð frá Afsláttartímabilum (tímabundinn afsláttur ofan á óbreytt grunnverð) og frá Föstum verðum (verð læst á tiltekinn viðskiptavin, óháð þessari keyrslu). Verðbreyting bókar hvorki í bókhald né hreyfir birgðir — hún uppfærir eingöngu verðreitinn á vörunni og skráist í verðsögu vörunnar.