Allur reksturinn í einu íslensku kerfi.

Sala, reikningar, bókhald, lager og laun á sömu gögnunum. Þú skráir söluna einu sinni og bókhaldið, lagerinn og viðskiptamannareikningurinn uppfærast með.

  • Engin kortakrafa
  • Enginn samningstími
  • Hættu hvenær sem er með því að hafa samband
Líka í símanum
Sækja í App StoreSækja í Google Play
  • Reikningur 2026-184 greiddur48.900 kr.
  • Bankafærsla pöruðLandsbankinn · 48.900 kr.
  • Lager uppfærðurKaffibaunir 1 kg · −12 stk.

Tengist við

  • Fyrirtækjaskrá og Þjóðskrá
  • Landsbankinn
  • Íslandsbanki
  • Arion banki
  • Skatturinn
  • InExchange
  • Unimaze
  • Teya
  • Netgíró
  • Aur
  • Lífeyrissjóðir
  • Stéttarfélög
  • Dropp
  • Pósturinn
  • Shopify
  • WooCommerce

Kerfið í verki

Upptökur úr PayGo með sýnigögnum. Veldu svið, eða horfðu á heilt kennslumyndband í handbókinni.

  • Veldu viðskiptavin, sjáðu söguna hans og byggðu upp vörulínur
  • Línurnar verða tilboð, pöntun eða reikningur
  • Áskriftir búa til reikninga sjálfkrafa
Horfa á kennslumyndband

Allt sem fylgir

Öll svið kerfisins vinna á sömu gögnunum. Þetta er það helsta.

Sala

  • Söluborð fyrir tilboð, pantanir og reikninga
  • Tilboð sem verða pantanir og reikningar
  • Áskriftir með sjálfvirkri rukkun og samningar úr sniðmátum
  • Sölutækifæri á Kanban-borði
  • Sjóðsvél (POS) með posatengingu
  • Vefverslun í PayGo og tenging við Shopify og WooCommerce
  • Mínar síður fyrir viðskiptavini þína

Fjármál

  • Tvíhliða bókhald með sjálfvirkum bókunum
  • Bankaafstemming við Landsbankann, Íslandsbanka og Arion banka
  • Bankakröfur, innborganir og inneignir
  • Kortauppgjör frá Teya
  • VSK-skýrsla og tollskýrslur
  • Ársreikningur: rekstrar- og efnahagsreikningur úr bókhaldinu
  • Framtalskerfi sem fyllir út og reiknar út allt framtalið fyrir rekstraraðila og skilar því beint í skilakerfi Skattsins
  • Eignaskrá, lán og gengisendurmat
  • Fjárhagsáætlanir og AI-úttekt á bókhaldinu

Rekstur

  • Vörur með strikamerkjum, lotu- og raðnúmerum
  • Talningar, afskriftir og birgðaskýrslur
  • Verðbreytingar, afsláttarkeyrslur og föst verð
  • Innkaupapantanir og vörumóttaka
  • Reikningar frá birgjum úr tölvupósti, lesnir sjálfvirkt
  • Rafræn sending reikninga um PEPPOL
  • Afhendingar og sendingar með Dropp og Póstinum
  • Vöruhús og lagertilkynningar

Fólk og þjónusta

  • Laun með staðgreiðslu og skilagreinum
  • Launaseðlar í tölvupósti og bankaskil
  • Stimpilklukka með vöktum og hléum
  • Tímaskráning sem fer beint í launakeyrslu
  • Fjarvistir og orlof
  • Verkbeiðnir og tímabókanir
  • Þjónustuborð með sjálfvirkri flokkun
  • Verkefnaborð sem þú deilir með öðrum

Viðbætur: verkstæðisborð, 3CX símkerfi, póstlistar og kynningar.

140 kennslumyndbönd á íslenskuHvert svið kerfisins er útskýrt í stuttu myndbandi í handbókinni.Opna handbókina

Frá fyrirtækjum sem nota PayGo

PayGo hefur einfaldað reksturinn okkar gríðarlega! Bókhaldið er einfalt og sjálfvirkt, verkbeiðnakerfið og stimpilklukkan frábær. Allt er á einum stað og öll gögn tengjast saman. Þjónustan er líka framúrskarandi og alltaf stutt í aðstoð. Við gætum ekki verið án PayGo!

Á. Steindórsson ehf.
  • PayGo hefur gjörbreytt því hvernig við höldum utan um reksturinn. Allt frá innkaupum og birgðahaldi yfir í sölupantanir, reikningagerð og bókhald er á einum stað. Við sparum ótrúlegan tíma, höfum betri yfirsýn og getum einbeitt okkur að því sem skiptir máli – að byggja upp fyrirtækið!

    Víra import ehf.
  • Við erum með fjölbreyttan rekstur, allt frá innflutningi og sölu á búnaði yfir í smíði og uppsetningu rafkerfa. PayGo hefur auðveldað okkur að halda utan um innkaup, birgðir, verk og reikningagerð. Það munar miklu að hafa allt í sama kerfinu og góða yfirsýn yfir reksturinn.

    Bláorka ehf.
  • Áskriftarkerfið í PayGo hefur sparað okkur ótrúlega mikla vinnu. Kerfið sér sjálft um að reikna vísitölubreytingar og senda út leigureikninga á réttum tíma í hverjum mánuði. Við þurfum varla að hugsa um þetta lengur og vitum að allt er rétt reiknað og rukkað. Algjör snilld!

    Ónefnt leigufélag

Einfalt verð

Verð eru án virðisaukaskatts. Enginn samningstími og enginn uppsetningarkostnaður.

Prufuáskrift

30 daga prufa · 2 notendur

0kr./mán.

  • Aðgangur að öllu kerfinu
  • Engin kortakrafa við skráningu
  • Þú heldur gögnunum þínum
  • Færist á ALLT að 30 dögum loknum
Skrá fyrirtæki
  • Rafræn sending: Fyrstu 20 reikningar í mánuði eru innifaldir, umfram það er greitt per skjal.
  • Gervigreind: rukkuð eftir notkun. Þú sérð notkun og kostnað í stillingum.

Algengar spurningar

Hvað er PayGo og fyrir hverja er það?

PayGo er íslenskt rekstrarkerfi fyrir fyrirtæki: sala, reikningagerð, bókhald, birgðir, laun og verkbeiðnir vinna á sömu gögnunum. PayGo ehf. hannar og smíðar PayGo á Íslandi, á íslensku og ensku.

Hvað kostar PayGo?

Áskriftin ALLT kostar 17.900 kr. á mánuði án VSK. Í henni felast 2 notendur og 4.000 dagbækur á mánuði. PayGo hefur engan samningstíma og engan uppsetningarkostnað; rafræn sending umfram 20 reikninga á mánuði og gervigreind eru rukkuð eftir notkun.

Er hægt að prófa PayGo frítt?

Já, prufuáskrift PayGo gildir í 30 daga með aðgangi að öllu kerfinu og engin kortakrafa er við skráningu. Að prufutímanum loknum færist fyrirtækið á ALLT og heldur öllum gögnum sínum.

Við hvaða banka og kerfi tengist PayGo?

Tengingar PayGo eru Fyrirtækjaskrá og Þjóðskrá, Landsbankinn, Íslandsbanki, Arion banki, Skatturinn, InExchange, Unimaze, Teya, Netgíró, Aur, Lífeyrissjóðir, Stéttarfélög, Dropp, Pósturinn, Shopify og WooCommerce. Bankafærslur frá Landsbankanum, Íslandsbanka og Arion banka eru lesnar inn og paraðar við bókhaldið.

Sendir PayGo rafræna reikninga og VSK-skýrslu til RSK?

Já, PayGo sendir reikninga rafrænt um PEPPOL í gegnum InExchange og Unimaze. VSK-skýrslan er reiknuð beint úr bókhaldinu og send til RSK, og PayGo skilar líka staðgreiðslu launa til RSK.

Er PayGo til sem app í símann?

Já, PayGo smáforritið fæst í App Store fyrir iOS og á Google Play fyrir Android. Í því er meðal annars hægt að taka myndir af kvittunum og fá tilkynningar um greiðslur og áminningar.

Hver á gögnin og er hægt að sækja þau?

Fyrirtækið sem skráir gögnin í PayGo er ábyrgðaraðili þeirra og PayGo ehf. vinnur þau eingöngu samkvæmt fyrirmælum þess. Prófjöfnuð, efnahagsreikning, rekstrarreikning og aðalbók má sækja í Excel og PDF.