Reikningar
Stofna og bóka reikninga, línur og VSK, dagsetningar, senda, greiðslur og kreditfærslur.
Með API-inu stofnarðu sölureikninga, les þá, sendir þá í tölvupósti, skráir greiðslur og kreditfærir. Reglur og áhrif eru þau sömu og þegar reikningur er gerður í PayGo sjálfu. Allar upphæðir eru strengir ("3200.00").
Stofna reikning
POST /v1/invoices krefst aðgerðarinnar invoices:write. Reikningurinn bókast strax: hann fær næsta reikningsnúmer, færsla fer í fjárhag, vörulínur hreyfa lager og afhendingarseðill verður til. Engin drög eru til. Bókaðan reikning er aðeins hægt að draga til baka með kreditreikningi.
Haus Idempotency-Key er skylda (400 idempotency_key_required án hans). Sendu líka þitt eigið externalId, svo tvítekning sé afþökkuð þó lykill glatist. Viðskiptavinurinn er nefndur með nákvæmlega einu af id, kennitala eða externalId (annars 422 exactly_one_required).
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/invoices \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{
"customer": { "externalId": "shop-cust-1042" },
"invoiceDate": "2026-11-22",
"finalDueDate": "2026-12-22",
"externalId": "shop-order-5531",
"reference": "PO-7781",
"lines": [
{ "sku": "COFFEE-1KG", "quantity": 2, "unitPrice": "3200.00" },
{ "description": "Shipping", "quantity": 1, "unitPrice": "1500.00", "vatRate": 24 }
],
"delivery": { "email": "auto", "electronicInvoice": "none" }
}'Svarið er 201 með reikningnum í heild:
{
"id": "4f1d8a52-0c0e-4a56-9a38-2a5e1c0b7d10",
"type": "invoice",
"invoiceNumber": "10234",
"externalId": "shop-order-5531",
"status": "posted",
"paymentStatus": "unpaid",
"isOverdue": false,
"customer": { "id": "0b0f7f4e-5c1a-4b52-9c1e-0d7a4f3b2a11", "name": "Dæmi ehf.", "kennitala": "5501012340" },
"invoiceDate": "2026-11-22",
"dueDate": "2026-11-22",
"finalDueDate": "2026-12-22",
"currency": "ISK",
"totals": {
"currency": "ISK",
"net": "7900.00",
"vat": [{ "rate": 24, "net": "7900.00", "vat": "1896.00" }],
"vatTotal": "1896.00",
"rounding": "0.00",
"total": "9796.00"
},
"amountSettled": "0.00",
"balance": "9796.00",
"creditedAmount": "0.00",
"lines": [ … ]
}Línur og VSK
- Vörulína nefnir vöruna með
productIdeðasku(ekki bæði: 422exclusive_with). Frjáls lína hefur ekkert af þeim og þarfdescriptionogvatRate. unitPriceer verð á einingu án VSK, sendur sem STRENGUR. PayGo notar það nákvæmlega eins og þú sendir það: verðlistar, afsláttarþrep og sérverð viðskiptavinar eru ekki notuð.quantityer tala með mest tveimur aukastöfum ogdiscountPercenter prósenta.- Vörulína ber VSK-hlutfall vörunnar. Sendir þú annað
vatRatefærðu 422vat_rate_mismatch. Gild hlutföll eru íGET /v1/vat-rates(annað: 422invalid_vat_rate). - Frjálsar línur taka aðeins almenna hlutfallið, 24 %. Annað hlutfall gefur 422
vat_rate_not_supported_on_free_line: notaðu þá vöru með því hlutfalli. - Vörur með raðnúmer eða lotur eru ekki studdar (422
tracked_product_not_supported). Óvirk vara: 422product_inactive; óþekkt: 422product_not_found. currencyer ISK nema viðskiptavinurinn hafi aðra sjálfgefna mynt. Erlend mynt ogvatExempt(allt á 0 %) eru aðeins leyfð ef fyrirtækið hefur kveikt á þeim, annars 422feature_disabled.
Dagsetningarnar þrjár
invoiceDateer reikningsdagsetning og bókunardagsetning. Sjálfgefið er dagurinn í dag (UTC). Hún verður að lenda í opnu bókhaldstímabili: annars 422fiscal_period_closedeðavat_period_locked.dueDate(gjalddagi) er alltaf sami dagur oginvoiceDate. Slepptu henni eða sendu sömu dagsetningu; önnur gefur 422due_date_must_equal_invoice_date.finalDueDate(eindagi) er síðasti dagur til að greiða án dráttarvaxta. Sjálfgefið er reikningsdagur plús greiðslufrestur viðskiptavinar. Hún ræðurisOverdue. Fyrir reikningsdag: 422final_due_date_before_invoice_date.
Afhending og bankakrafa
delivery.email og delivery.electronicInvoice eru bæði auto (sjálfgefið) eða none. Með auto fer reikningurinn eins og úr PayGo: í tölvupósti með PDF ef fyrirtækið sendir reikninga sjálfvirkt eða viðskiptavinurinn er stilltur á tölvupóst, og sem rafrænn reikningur ef viðskiptavinurinn tekur við þeim. Með none er ekkert sent.
createBankClaim: true stofnar kröfu í netbanka viðskiptavinar með virkum netbankagreiðslumáta fyrirtækisins. Sjálfgefið er engin krafa, því krafa getur borið bankakostnað. Sé enginn slíkur greiðslumáti til færðu 422 bank_claim_not_available. Krafa er aldrei stofnuð á reikning í erlendri mynt.
Lesa og lista
GET /v1/invoices (invoices:read) skilar reikningum og kreditreikningum án lína; GET /v1/invoices/{id} skilar einum með línum. Síur: customerId, type (invoice eða credit_note), status, paymentStatus, overdue, invoiceNumber, externalId, invoiceDateFrom, invoiceDateTo og updatedSince. Greiðsla og kreditreikningur breyta updatedAt reikningsins, svo updatedSince nægir til stigvaxandi samstillingar.
status:posted,credited(að fullu kreditfærður) eðacancelled.paymentStatus:unpaid,partially_paideðapaid, reiknað af upphæðunum.amountSettleder það sem hefur verið greitt eða jafnað með kreditreikningi;balanceertotals.total − amountSettled;creditedAmounter það sem hefur verið kreditfært.isOverdueertrueþegar reikningurinn er ógreiddur ogfinalDueDateer liðinn. Kreditreikningar hafa neikvæðar upphæðir.
# Unpaid invoices that are past their final due date
curl "https://api.paygo.is/v1/invoices?paymentStatus=unpaid&overdue=true&limit=100" \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY"
# Everything that changed since the last run
curl "https://api.paygo.is/v1/invoices?sort=updatedAt&order=asc&updatedSince=2026-11-22T08:00:00Z" \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY"
# The PDF
curl -o invoice-10234.pdf https://api.paygo.is/v1/invoices/4f1d8a52-0c0e-4a56-9a38-2a5e1c0b7d10/pdf \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY"Senda og sækja PDF
GET /v1/invoices/{id}/pdf skilar reikningnum sem PDF. POST /v1/invoices/{id}/send (invoices:send) sendir hann í tölvupósti með PDF á tungumáli viðskiptavinar. Svarið er 202: pósturinn er í biðröð, ekki sendur. Location vísar á GET /v1/invoices/{id}/emails/{emailId}. Án to fer pósturinn á netfang viðskiptavinar; sé hvorugt til færðu 422 no_recipient. to tekur 1–10 netföng og bcc allt að 5. PDF og póstsending teljast þung köll.
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/invoices/4f1d8a52-0c0e-4a56-9a38-2a5e1c0b7d10/send \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{ "to": ["bokhald@example.is"] }'
# 202 Accepted, Location: /v1/invoices/4f1d…/emails/9a7c…
{ "id": "9a7c2d1e-6b43-4f0a-8e57-1d2c3b4a5f60", "status": "queued", "to": ["bokhald@example.is"], "sentAt": null }
# Later
curl https://api.paygo.is/v1/invoices/4f1d8a52-0c0e-4a56-9a38-2a5e1c0b7d10/emails/9a7c2d1e-6b43-4f0a-8e57-1d2c3b4a5f60 \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY"Staða pósts er queued, sent, failed, retrying, suppressed eða unknown. sent þýðir að póstþjónninn tók við póstinum, ekki að hann hafi borist í pósthólfið.
Greiðslur
POST /v1/invoices/{id}/payments skráir greiðslu og bókar hana strax. Hún krefst aðgerðarinnar payments:write; invoices:write dugar ekki, svo samþætting sem aðeins gefur út reikninga getur aldrei merkt þá greidda. Idempotency-Key er skylda.
# 1. Find a payment method that can record invoice payments
curl "https://api.paygo.is/v1/payment-methods" -H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY"
# use an item with "canRecordInvoicePayment": true
# 2. Record the payment (scope payments:write)
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/invoices/4f1d8a52-0c0e-4a56-9a38-2a5e1c0b7d10/payments \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{
"amount": "4000.00",
"paymentDate": "2026-11-23",
"paymentMethodId": "7d9e5a1c-3b2f-4c8d-a6e0-5f1b2c3d4e5f",
"reference": "Bank ref 20261123-77"
}'- Upphæðin er í ISK og getur ekki verið hærri en
balancereikningsins: 422exceeds_balance. Ofgreiðsla er ekki leyfð. paymentMethodIdverður að vera virkur greiðslumáti meðcanRecordInvoicePayment: trueíGET /v1/payment-methods. Máti sem gerir upp með inneign viðskiptavinar gefur 422payment_method_not_allowed.- Reikningur í erlendri mynt: 422
currency_not_supported. Kreditfærður eða niðurfelldur reikningur: 409invoice_not_payable. Kreditreikningur: 409credit_note_payment_not_supported. warningssegir hvað greiðslan skildi eftir handa fyrirtækinu, til dæmisbank_claim_update_failed. Greiðslan er skráð hvað sem því líður.- Greiðslu er aðeins hægt að bakfæra í PayGo sjálfu.
GET /v1/invoices/{id}/paymentstelur allar greiðslur reikningsins, líka bakfærðar (status: void).
Kreditfæra reikning
POST /v1/invoices/{id}/credit-notes (invoices:credit) býr til kreditreikning og bókar hann strax. Idempotency-Key er skylda. Þú velur eina af þremur leiðum:
- Enginn
amountog engarlines: afgangurinn af reikningnum er kreditfærður. amount: upphæð með VSK í mynt reikningsins, strengur. Lægri upphæð en afgangurinn er verðlækkun: línurnar lækka hlutfallslega og ekkert fer aftur á lager. Upphæðin sem klárar reikninginn kemur þeim einingum aftur á lager sem hafa ekki verið skilað.lines: línur reikningsins (lineId) með magni. Þær einingar eru kreditfærðar á reikningsverði og fara aftur á lager. Hver lína mest einu sinni.
# Credit the whole rest of the invoice: send no body fields at all
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/invoices/4f1d8a52-0c0e-4a56-9a38-2a5e1c0b7d10/credit-notes \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" -H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" -d '{ "reason": "Order cancelled" }'
# A price reduction: an amount including VAT (nothing goes back in stock)
-d '{ "amount": "1000.00", "reason": "Goodwill" }'
# A return: lines and quantities (the units go back in stock)
-d '{ "lines": [{ "lineId": "c1b2a3d4-5e6f-4a7b-8c9d-0e1f2a3b4c5d", "quantity": 1 }], "reason": "Damaged" }'- Kreditreikningurinn jafnar fyrst það sem er opið á reikningnum (
amountSettledogbalancebreytast). Aðeins afgangurinn verður inneign viðskiptavinar. - Krafa reikningsins í netbanka er lækkuð eða felld niður og virkir greiðsluhlekkir renna út. Kreditreikningurinn er sendur sem rafrænn reikningur ef viðskiptavinurinn tekur við þeim.
reason(mest 500 stafir) birtist á kreditreikningnum.creditDateer sjálfgefið dagurinn í dag og verður að vera í opnu tímabili.- Villur: 409
invoice_not_creditable(kreditreikningur, þegar kreditfærður eða niðurfelldur),prepayment_invoice_use_order,asset_disposal_posted,vat_period_locked; 422exceeds_creditable,exceeds_returnable,line_not_found,line_not_returnable,duplicate_line,fiscal_period_closed.
Villur sem skipta mestu
| Kóði | Staða | Hvað á að gera |
|---|---|---|
customer_not_found / customer_inactive | 422 | Athugaðu auðkennið. Óvirkum viðskiptavini þarf að breyta í PayGo eða í PATCH /v1/customers/{id}. |
fiscal_period_closed / vat_period_locked | 422 / 409 | Dagsetningin er í lokuðu tímabili. Veldu dagsetningu í opnu tímabili. |
open_delivered_order | 409 conflict | Viðskiptavinurinn á afhenta en ófullreikningsfærða pöntun; sami varningur myndi hreyfa lager tvisvar. Reikningsfærðu pöntunina eða sendu acknowledgeOpenOrders: true. |
conflict | 409 | Tvítekið externalId. detail nefnir reikninginn sem er til. |
service_unavailable | 503 | Ekkert var bókað. Bíddu í Retry-After og endurtaktu með sama Idempotency-Key. |