PayGoPayGo API

Hraðatakmörk

Flokkarnir þrír, RateLimit-hausarnir, Retry-After og undanhald (backoff).

Köll eru talin eftir auðkenningu, per lykil og per fyrirtæki (allir lyklar þess saman), í föstum glugga sem fylgir klukkumínútunni. Flokkarnir eru þrír og hver aðgerð tilheyrir einum þeirra (kemur fram í tilvísuninni). Hvert auðkennt kall telst með, líka þau sem fá 403 insufficient_scope, 404 eða 422.

FlokkurPer lykil á mínútuPer fyrirtæki á mínútuNotað fyrir
read6001.800GET og HEAD, beiðnir sem lesa gögn.
write120360Allar aðrar aðferðir (POST, PATCH …), beiðnir sem breyta gögnum.
heavy3090Aðgerðir sem eru merktar svo: PDF-skjöl, póstsendingar (reikningar, tilboð og pantanir) og AI-vinnsla kvittana, auk upphleðslu og niðurhals viðhengja.

Auk mínútuflokkanna má hvert fyrirtæki senda tölvupóst á í mesta lagi 500 viðtakendur á dag um API-ið: ólík netföng í to og bcc hverrar sendingar, reikningar, pantanir og tilboð samanlagt. Sendingu sem kemst ekki öll fyrir er hafnað í heild með 429 rate_limited og Retry-After til miðnættis UTC, og ekkert er sent.

Hausar

Hvert talið svar ber RateLimit-Limit, RateLimit-Remaining (köll eftir í glugganum) og RateLimit-Reset (sekúndur þar til glugginn endar). Þeir lýsa þeirri fötu, lykilsins eða fyrirtækisins, sem hefur færri köll eftir. Svar 429 rate_limited hefur líka Retry-After, jafnt RateLimit-Reset; sé þak fyrirtækisins ástæðan segir detail það. Svör við misheppnaðri auðkenningu bera enga RateLimit- hausa.

HTTP/1.1 200 OK
RateLimit-Limit: 600
RateLimit-Remaining: 597
RateLimit-Reset: 41

HTTP/1.1 429 Too Many Requests
Content-Type: application/problem+json
RateLimit-Limit: 600
RateLimit-Remaining: 0
RateLimit-Reset: 12
Retry-After: 12

Undanhald (backoff)

  • Hægðu á þér áður en þú nærð mörkunum: fylgstu með RateLimit-Remaining.
  • Við 429 skaltu bíða í Retry-After sekúndur. Vanti hann, bíddu með vaxandi bili (0,5 s, 1 s, 2 s … upp í 30 s) og smá handahófi (jitter).
  • Endurtaktu POST aðeins með sama Idempotency-Key.
  • Notaðu frekar updatedSince en að lesa heila lista aftur.
async function callWithBackoff(makeRequest, maxAttempts = 5) {
  for (let attempt = 1; ; attempt++) {
    const res = await makeRequest();
    if (res.status !== 429 && res.status !== 503) return res;
    if (attempt >= maxAttempts) return res;

    const retryAfter = Number(res.headers.get('Retry-After'));
    const waitMs = retryAfter > 0 ? retryAfter * 1000 : Math.min(30000, 500 * 2 ** attempt);
    await new Promise((r) => setTimeout(r, waitMs + Math.random() * 250)); // jitter
  }
}

Sé hraðatakmörkunin óaðgengileg halda lestrar áfram að virka, án RateLimit- hausa, en skrif og þung köll svara 503 rate_limit_unavailable með Retry-After: 30.