Stimpilklukka
Stimpla starfsfólk inn og út á tíma þjónsins, lesa stöðu og vaktir. Stimplanir bíða samþykktar stjórnanda.
Stimpilklukkan gerir kerfi þínu kleift að stimpla starfsfólk inn og út, til dæmis af spjaldtölvu eða hliði. Aðgerðirnar eru time-clock:write til að stimpla og time-clock:read til að lesa. Starfsmaður er nefndur með employeeId úr GET /v1/employees.
Reglurnar
- Tími stimplunar er ALLTAF tími PayGo-þjónsins þegar beiðnin berst. Ekki er hægt að senda tíma og ekki er hægt að skrá vakt eftir á um API-ið. Leiðréttingar gerir stjórnandi í PayGo.
- Vakt sem er stimpluð um API-ið bíður samþykktar stjórnanda í PayGo áður en hún fer í launaútreikning. Hún er aldrei samþykkt sjálfkrafa (
approved: false,createdByApi: true). Launagögn eru ekki aðgengileg um API-ið. Idempotency-Keyer skylda á bæðiclock-inogclock-out: endurtekning með sama lykli og bol stimplar ekki tvisvar.- Hlé sem er í gangi endar með vaktinni.
Stimpla inn og út
# Clock in (ids from GET /v1/employees)
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/time-clock/clock-in \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{ "employeeId": "3e2d1c0b-9a8f-4e7d-b6c5-a4f3e2d1c0b9", "note": "Front desk" }'
# 201
{ "id": "…", "clockIn": "2026-11-22T08:01:12.431Z", "clockOut": null, "approved": false, "createdByApi": true, … }
# Clock out
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/time-clock/clock-out \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{ "employeeId": "3e2d1c0b-9a8f-4e7d-b6c5-a4f3e2d1c0b9" }'
# Status and shifts
curl "https://api.paygo.is/v1/time-clock/status?employeeId=3e2d1c0b-9a8f-4e7d-b6c5-a4f3e2d1c0b9" -H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY"
curl "https://api.paygo.is/v1/time-clock/entries?from=2026-11-01&to=2026-12-01&approved=false" -H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY"| Villa | Staða | Merking |
|---|---|---|
employee_not_found, employee_inactive | 422 | Starfsmaðurinn er ekki til hjá fyrirtækinu eða er óvirkur. |
already_clocked_in | 409 | Starfsmaðurinn er þegar stimplaður inn; detail nefnir opnu vaktina. |
not_clocked_in | 409 | Engin opin vakt til að loka. |
shift_too_long | 409 | Vaktin hefur verið opin í meira en 24 klukkustundir og er ekki lokað um API-ið. Stjórnandi lokar henni í PayGo. |
day_locked | 409 | Dagurinn er í samþykktri launakeyrslu. |
shift_overlap, shift_excludes_work_log, time_clock_rejected | 409 | Stimplunin rekst á aðra vakt eða skráningu starfsmannsins. |
description_required | 422 | Starfsmaðurinn er skráður á verkbeiðni í PayGo á vaktinni; description á clock-out er þá skylda og vistast á þeirri vinnu. |
Staða og vaktir
GET /v1/time-clock/status?employeeId=segir hvort starfsmaðurinn er stimplaður inn (clockedIn), opnu vaktina, hvort hlé er í gangi ogserverTime: tímann sem stimplun núna fengi. Óvirka starfsmenn má lesa.GET /v1/time-clock/entriestelur upp vaktir með hléum. Síur:employeeId,from(stimplað inn á eða eftir) ogto(stimplað inn FYRIR; útilokað),open,approved,includeDeletedogupdatedSince.minuteser heildarlengd vaktar frá stimplun inn til út, hlé meðtalin.- Hlé, leiðréttingar, samþykkt og eyðing breyta
updatedAt. Til að halda afriti í takt:sort=updatedAt&order=asc&updatedSince=<tími>&includeDeleted=true; eydd vakt kemur meðdeletedAt.