Tilboð og sölupantanir
Tilboð frá drögum til pöntunar, sölupantanir með frátekt birgða, breytingar með lineChanges og reikningsfærsla pöntunar.
Tilboð og sölupantanir fylgja sömu línureglum og reikningar (sjá leiðbeiningar um reikninga). Tilboð bókar ekkert. Pöntun tekur frá birgðir. Hvorugt bókar í fjárhag; það gerist þegar pöntunin er reikningsfærð.
Verðið er það sem þú sendir
Verð í tilboðum og pöntunum eru án VSK, send sem strengir, og PayGo notar þau nákvæmlega eins og þau eru. Þjónninn beitir engri verðkeðju: ekki verðlista, afsláttarþrepi né sérverði viðskiptavinar, hvorki þegar tilboð eða pöntun er stofnuð né þegar tilboð verður að pöntun. Vörulína ber VSK vörunnar og frjáls lína aðeins 24 %. Tilboð og pantanir eru alltaf í ISK.
Tilboð
POST /v1/quotes(quotes:write) stofnar tilboð í stöðunnidraftmeð næsta tilboðsnúmeri. Ekkert er tekið frá eða bókað.validUntiler sjálfgefið tilboðsdagur plús 30 dagar.Idempotency-Keyer valfrjáls.PATCH /v1/quotes/{id}breytir aðeins drögum (annars 409quote_not_editable).lines, ef sent, er heildarlistinn og kemur í stað allra lína, sem fá ný auðkenni.customerfærir drögin á annan viðskiptavin.POST /v1/quotes/{id}/mark-sentfærir drög ísentán þess að senda póst. Notaðu það ef kerfið þitt kemur tilboðinu sjálft til viðskiptavinarins.POST /v1/quotes/{id}/send(quotes:send) sendir tilboðið í tölvupósti með PDF og viðhengjum þess. Drög verðasent. Svarið er 202 og staðan er lesin meðGET /v1/quotes/{id}/emails/{emailId}. Tilboð sem er runnið út: 409quote_expired.POST /v1/quotes/{id}/acceptogrejectskrá svar viðskiptavinar ásenttilboð (annars 409quote_not_sent). Ástæða höfnunar er ekki geymd; settu hana ínotesáður en tilboðið er sent.POST /v1/quotes/{id}/convertbýr til sölupöntun úracceptedtilboði með öllum línum og verðum eins og þau standa. Tilboðið verðurconverted_to_order, einu sinni.
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/quotes \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{
"customer": { "kennitala": "5501012340" },
"validUntil": "2026-12-20",
"externalId": "crm-quote-889",
"lines": [
{ "sku": "CONSULT-HOUR", "quantity": 8, "unitPrice": "18000.00", "discountPercent": 10 }
]
}'
# Then, in this order
POST /v1/quotes/{id}/send # emails it; a draft becomes sent (scope quotes:send)
POST /v1/quotes/{id}/accept # the customer said yes
POST /v1/quotes/{id}/convert # creates the sales order (Idempotency-Key required)- Staða tilboðs er
draft,sent,accepted,rejected,expiredeðaconverted_to_order. Sent tilboð erexpiredfrá deginum eftirvalidUntil(UTC) og er þá hvorki hægt að samþykkja né breyta í pöntun. convertkrefstIdempotency-Key. Valfrjálst:orderDate,deliveryDate(sjálfgefið 7 dögum eftir pöntunardag) ogexternalIdpöntunarinnar. Villur: 409quote_not_accepted, 409quote_already_converted(nefnir pöntunina), 409quote_expired, 422insufficient_stockef birgðir duga ekki, 422delivery_date_before_order_date. Skilmálar tilboðsins fylgja ekki pöntuninni.
Sölupantanir
POST /v1/orders (orders:write) stofnar staðfesta pöntun. Hún TEKUR FRÁ birgðir fyrir hverja vörulínu á sjálfgefnu vöruhúsi fyrirtækisins (samsett vara tekur frá íhlutina). Birgðastaða er aldrei athuguð: laus birgðir geta farið undir núll og línur sem lager nær ekki að fylla eru vaktaðar sem biðafgreiðslur. Enginn tölvupóstur er sendur. Án sjálfgefins vöruhúss: 422 no_default_warehouse.
Idempotency-Key er skylda: endurtekning án hans gæti búið til aðra pöntun og tekið frá tvisvar.
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/orders \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{
"customer": { "id": "0b0f7f4e-5c1a-4b52-9c1e-0d7a4f3b2a11" },
"deliveryDate": "2026-11-30",
"externalId": "shop-order-5531",
"lines": [
{ "sku": "COFFEE-1KG", "quantity": 5, "unitPrice": "3200.00" }
]
}'Pantanir koma úr mörgum áttum (vefverslun, tilboð, API, handvirkt). source sýnir uppruna. GET /v1/orders síar á status, deliveryStatus og invoicingStatus (none, partial, full), source, customerId, orderNumber, externalId og pöntunardagsetningar. Lína sýnir virkt magn (pantað mínus fellt niður) og upphæðir miðast við það.
Breyta pöntun með lineChanges
PATCH /v1/orders/{id} breytir hausreitum sem þú sendir (null hreinsar shippingAddress, reference og notes) og línum með AÐGERÐUM á stökum línum, aldrei með því að senda allan listann: add bætir við línum, update breytir reitum línu eftir lineId og remove fjarlægir línu eftir lineId. Lína sem er ekki nefnd breytist ekki. Allt í einni beiðni gildir saman eða ekkert.
curl -X PATCH https://api.paygo.is/v1/orders/6a1b2c3d-4e5f-4a6b-9c7d-8e9f0a1b2c3d \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" \
-d '{
"reason": "Customer changed the quantity and added a bag",
"lineChanges": {
"update": [{ "lineId": "c1b2a3d4-5e6f-4a7b-8c9d-0e1f2a3b4c5d", "quantity": 8 }],
"add": [{ "sku": "BAG-S", "quantity": 1, "unitPrice": "390.00" }],
"remove": [{ "lineId": "d2c3b4a5-6f70-4b8c-9d0e-1f2a3b4c5d6e" }]
}
}'reasoner skylda meðlineChangesog er geymd í breytingasögu pöntunarinnar.Idempotency-Keyer skylda þegarlineChanges.adder sent, svo endurtekning bæti ekki línunum við og taki frá aftur. Annars er hann valfrjáls:updatesendir nýja magnið, ekki mismun, og gefur sömu niðurstöðu þótt það sé endurtekið.- Frátekt fylgir línunum: ný vörulína tekur frá, hærra magn tekur mismuninn frá, lægra magn fellur niður og losar, og fjarlægð lína situr áfram á pöntuninni með allt magnið fellt niður og losar það sem hún hélt.
- Villur: 422
line_not_found,duplicate_line,quantity_below_fulfilled(undir því sem er afhent eða reikningsfært); 409line_price_locked(verð, afsláttur eða VSK reikningsfærðrar línu) ogorder_not_editable(pöntun niðurfelld eða fullreikningsfærð).
Fella pöntun niður
POST /v1/orders/{id}/cancel (orders:write) með skyldu-reason fellir niður það sem er opið á línunum, losar frátektina, fellir niður viðbótarpantanir og ógreidda bankakröfu pöntunarinnar. Endurtekið kall á niðurfellda pöntun skilar henni óbreyttri (200). Villur: 409 order_invoiced (reikningsfærð að hluta eða öllu leyti), order_delivered (afhent: skila þarf vörunum í PayGo fyrst), order_has_prepayment_invoices og order_has_prepayments (innborganir þarf að leysa í PayGo fyrst).
Reikningsfæra pöntun
POST /v1/orders/{id}/invoice (orders:invoice) bókar reikning af pöntuninni: næsta reikningsnúmer, reikningsfært magn hverrar línu og færslu í fjárhag. Verð, afsláttur og VSK koma úr pöntunarlínunum. Án lines er allt reikningsfært sem er eftir; með lines aðeins þær línur og það magn (hlutareikningsfærsla; afganginn færðu seinna). Innborganir á pöntunina eru dregnar frá reikningnum, og fyrirframgreiðslureikningar hennar. Idempotency-Key er skylda. Svarið er nýi reikningurinn með orderId, eins og GET /v1/invoices/{id} skilar honum.
# Invoice everything not yet invoiced
curl -X POST https://api.paygo.is/v1/orders/6a1b2c3d-4e5f-4a6b-9c7d-8e9f0a1b2c3d/invoice \
-H "Authorization: Bearer $PAYGO_API_KEY" \
-H "Idempotency-Key: $(uuidgen)" \
-H "Content-Type: application/json" -d '{}'
# Or only part of it (invoice the rest later)
-d '{ "lines": [{ "lineId": "c1b2a3d4-5e6f-4a7b-8c9d-0e1f2a3b4c5d", "quantity": 3 }] }'
# 201: the new invoice, with "orderId", and when a deposit could not be applied:
{ "invoiceNumber": "10235", "balance": "9796.00", "warnings": [{ "code": "deposit_not_applied", "message": "…" }], … }warnings: deposit_not_applied: reikningurinn er bókaður (201) en ekki tókst að draga innborgun af honum, svo hann sýnir alla upphæðina ógreidda. Enginn tölvupóstur, rafrænn reikningur eða krafa var send, jafnvel þótt beðið væri um það, svo viðskiptavinurinn er aldrei rukkaður tvisvar. Ekki reikningsfæra aftur: fyrirtækið jafnar innborgunina í PayGo og sendir reikninginn.warnings: post_processing_incomplete: reikningurinn er bókaður (201) en eftirvinnsla (jöfnun innborgunar, tölvupóstur, rafrænn reikningur, krafa) lauk ekki. Ekki reikningsfæra aftur: athugaðu reikninginn í PayGo.- Villur: 409
nothing_to_invoice, 409order_cancelled, 422exceeds_invoiceable,line_not_found,duplicate_line,fiscal_period_closed,due_date_must_equal_invoice_date,bank_claim_not_available. Dagsetningar,externalId,deliveryogcreateBankClaimhafa sömu merkingu og á reikningi. POST /v1/orders/{id}/send(orders:send) sendir pöntunarstaðfestingu með PDF (202, staða áemails/{emailId});GET /v1/orders/{id}/pdfsækir PDF-ið.