PayGoHandbókNámskeið
Horfðu á þetta · 1:38Innkaupabeiðnir

Innkaupabeiðnir

Stjórnaðu innkaupabeiðnum og samþykktarferli þeirra

Innkaupabeiðnir eru notaðar þegar biðja þarf um vörur eða þjónustu áður en keypt er. Beiðni er skráð, fer í gegnum samþykktarferli og þegar hún er samþykkt breytir kerfið henni sjálfkrafa í eina eða fleiri innkaupapantanir — eina á hvern birgi. Hægt er að tengja beiðni við viðskiptavin, sölupöntun eða verkbeiðni þegar innkaupin eru vegna tiltekinnar sölu eða verks, þannig að kostnaðurinn haldist í samhengi. Síðan er líka hægt að skrá kaup sem þegar hafa farið fram (t.d. keypt úti í búð) beint sem „keypt" beiðni.

Síðan opnast á Innkaup & útgjöld → Innkaupabeiðnir. Efst eru þrjú lykiltöluspjöld: Heildarfjöldi beiðna, Í bið (gult) og Samþykkt í dag (grænt). Fyrir neðan er leitarreitur, síurofar og aðaltaflan. Aðgangur krefst heimildarinnar procurement:read til að skoða (og til að eyða þínum eigin beiðnum í bið), procurement:write til að stofna, samþykkja og hafna, og procurement:delete (eða procurement:*/*) til að eyða beiðnum annarra.

Aðgerðahnappar efst á síðu: „Skrá kaup" (opnar flýtiglugga fyrir kaup sem þegar hafa átt sér stað) og „Ný beiðni" (opnar heila stofnunarsíðu). Í leitarreitnum („Leita að beiðninúmeri eða starfsmanni...") er hægt að leita eftir beiðninúmeri, umbeðanda, viðskiptavini, birgi, verkbeiðninúmeri og viðskiptavini verkbeiðni.

DálkurLýsing
BeiðninúmerSjálfvirkt raðnúmer beiðnar (t.d. IB-26-00001). Raðanlegt.
ViðskiptavinurBeintengdur viðskiptavinur eða viðskiptavinur af sölupöntun/verkbeiðni. Smellanlegur tengill á sölupöntun ef við á. „—" ef enginn.
VerkbeiðniNúmer tengdrar verkbeiðni sem smellanlegur tengill á verkbeiðnina. „—" ef engin.
BirgirNafn birgja ef skráður, annars „—".
DagsetningDagsetning beiðnar á sniði DD.MM.ÁÁÁÁ. Raðanlegt.
Umbeðið afFullt nafn starfsmanns sem skráði beiðnina. Beiðni sem kerfið stofnaði sjálft (sjálfvirk endurpöntun) sýnir „Kerfið" og bláa merkið „Sjálfvirk".
StaðaStöðumerki með lit. Hægt að sía beint í dálkhausnum.
ForgangurForgangsmerki (Lágur/Venjulegur/Hár/Brýnn). Raðanlegt eftir forgangi.
Fjöldi varaFjöldi vörulína á beiðninni, miðjað.
Áætluð upphæðSamtala magns × áætlaðs einingaverðs, hægri-jöfnuð og græn. Smellanleg til að leggja saman (sjá ábendingu).
AthugasemdAthugasemd beiðnar, stytt ef löng. „—" ef engin.
AðgerðirHnappar eftir stöðu: Samþykkja, Hafna, Skoða, Endurvekja, Eyða.
Listi yfir innkaupabeiðnir
Stækka
Innkaupabeiðnir með birgja, umbeðanda, forgangi, stöðu og áætlaðri upphæð

Raðaðgerðir í töflunni. Á hverri línu birtast táknhnappar eftir stöðu beiðnar (heiti þeirra birtist þegar sveimað er yfir). Smellur á línuna sjálfa (eða á augnhnappinn) opnar beiðnina.

AðgerðBirtist þegarÁhrif
Samþykkja (grænt hak)Staða = Í biðOpnar samþykktarglugga þar sem birgi er valinn á hverja vöru og pantanir stofnaðar.
Hafna (rautt X)Staða = Í biðOpnar staðfestingarglugga; beiðnin fær stöðuna Hafnað.
Skoða (auga)AlltafOpnar smáatriðasíðu beiðnar.
Endurvekja (afturörv)Staða = Hafnað eða Hætt viðStaðfestingin „Endurvekja beiðni?" birtist; beiðnin fer aftur í bið og þarf samþykki á ný.
Eyða (rusl)Staða = Í bið OG þú ert umbeðandiOpnar staðfestingarglugga; beiðninni er eytt (soft-delete).

Stofna nýja beiðni (Ný beiðni). Þetta er heil síða með þremur hlutum: haus með hnöppunum „Til baka" og „Vista beiðni", spjaldið „Upplýsingar" og spjaldið „Vörur".

1
Opna stofnunarsíðu

Smelltu á „Ný beiðni". Þú lendir á síðu með auðri beiðni. Strikamerkjareiturinn fær sjálfkrafa fókus svo hægt sé að byrja að skanna strax.

2
Fylla út upplýsingar

Í spjaldinu „Upplýsingar" velur þú Dagsetningu beiðni (sjálfgefið dagsins í dag, skylda), Forgang (Venjulegur sjálfgefið, skylda), valkvæðan Viðskiptavin (leit eftir nafni/kennitölu), valkvæðan Birgi og Athugasemdir.

3
Bæta við vörum

Í spjaldinu „Vörur" bætir þú við línum með „Bæta við vöru" eða með því að skanna strikamerki í reitinn „Skanna strikamerki...". Á hverri línu velur þú vöru í fellilista, setur Magn (skylda) og kerfið fyllir sjálfkrafa út Kostnaðarverð úr vörunni (hægt að breyta á breytingasíðu beiðnar). Ruslatáknið aftast á línunni fjarlægir hana eftir staðfestingu.

4
Textalínur og afrit

Smelltu á skjalatáknið á vörulínu til að breyta henni í „Texti"-línu (frjáls lýsing án vöru) — hentar fyrir þjónustu eða óskráðar vörur. Ef þú velur vöru sem er þegar á beiðninni birtist gluggi sem spyr hvort leggja eigi saman við núverandi línu eða bæta við sér línu.

5
Vista

Neðst sérðu „Áætluð heildarupphæð". Smelltu á „Vista beiðni". Beiðnin fær stöðuna Í bið, sjálfvirkt beiðninúmer og þú ert send/ur á smáatriðasíðu hennar. Tilkynning er send á aðra notendur um að ný beiðni bíði samþykkis.

ReiturLýsingSkylda
Dagsetning beiðniDagsetning sem beiðnin miðast við (DD.MM.ÁÁÁÁ).Já
ForgangurLágur, Venjulegur, Hár eða Brýnn.Já
ViðskiptavinurTengir beiðni við viðskiptavin (leit eftir nafni/kennitölu).Nei
BirgirFyrirhugaður birgir beiðnar.Nei
AthugasemdirFrjáls texti um beiðnina.Nei
Vörulína — Vara/LýsingVara úr vörulista eða frjáls textalína.Já (a.m.k. ein lína)
Vörulína — MagnUmbeðið magn (a.m.k. 1).Já
Vörulína — KostnaðarverðÁætlað einingaverð; fyllist úr vöru og má breyta á breytingasíðu beiðnar.Nei

Skrá kaup (flýtiskráning). Hnappurinn „Skrá kaup" er fyrir kaup sem hafa þegar farið fram — t.d. þegar starfsmaður keypti eitthvað úti í bæ. Þetta stofnar beiðni sem er strax frágengin (staða Keypt) svo ekki þarf að fara í gegnum samþykkt. Beiðninúmerið á að setja á reikninginn frá birgi svo kerfið geti parað þau saman síðar.

ReiturLýsingSkylda
Birgir (valkvætt)Leit eftir nafni eða kennitölu. Sé slegin inn 10 stafa kennitala leitar kerfið fyrst í birgjum, annars í Þjóðskrá og stofnar birgi sjálfkrafa. Finnist enginn birgir vistast nafnið sem athugasemd.Nei
Verkbeiðni (valkvætt)Tengir kaupin við opna verkbeiðni (listi opinna verkbeiðna).Nei
Athugasemd (valkvætt)T.d. hvar var keypt eða ástæða.Nei
Vörulínur — LýsingLýsing á vöru/þjónustu.Já
Vörulínur — MagnFjöldi (sjálfgefið 1).Já
Vörulínur — UpphæðÁætlað einingaverð.Nei

Smáatriðasíða beiðnar. Þegar smellt er á beiðni opnast síða með haus (hnappar fara eftir stöðu), spjaldinu „Upplýsingar um beiðni", töflunni „Vörur" með áætlaðri heildarupphæð, og spjaldinu „Tengd útgjöld" sem sýnir útgjaldafærslur sem hafa verið paraðar við beiðnina. Í spjaldinu „Upplýsingar um beiðni" birtist einnig Samþykkt af og Dagsetning samþykktar þegar beiðnin hefur verið samþykkt.

Hnappur á smáatriðasíðuBirtist þegarÁhrif
Sækja PDFAlltafSækir beiðnina sem PDF-skjal (Innkaupabeidni-<númer>.pdf).
Senda í tölvupóstAlltafOpnar glugga þar sem slá má inn eitt eða fleiri netföng (aðskilin með kommu/semíkommu); netfang birgja er forfyllt ef til. PDF er sett í póstbiðröð.
BreytaStaða = Í bið eða KeyptOpnar breytingasíðu beiðnar.
SamþykkjaStaða = Í biðOpnar samþykktargluggann með birgjavali.
HafnaStaða = Í biðStaðfesting; beiðnin fær stöðuna Hafnað.
EndurvekjaStaða = Hafnað eða Hætt viðStaðfesting; beiðnin fer aftur í stöðuna Í bið og þarf samþykki á ný.
Merkja sem keyptStaða = SamþykktSetur stöðuna Keypt (staðfesting með Popconfirm).

Samþykktarferlið (Samþykkja og búa til pantanir). Þegar beiðni Í bið er samþykkt opnast gluggi þar sem valinn er birgi fyrir hverja vörulínu. Birgjar sem skráðir eru á vöruna birtast með verði — bæði í erlendum gjaldmiðli og umreiknað í ISK á gildandi gengi. Aðalbirgir vörunnar er forvalinn sjálfkrafa.

1
Velja birgja á línur

Fyrir hverja vöru velur þú birgi í fellilista. Verðupplýsingar birtast (t.d. „12,50 EUR = 1.815 kr."). Sé enginn birgir skráður á vöruna sérðu lista yfir alla birgja í staðinn.

2
Setja sama birgja á allar línur

Efst er reiturinn „Setja birgi á allar línur" til að velja einn birgja fyrir allar vörur í einu — hentar þegar allt er keypt frá sama birgi.

3
Velja: ný pöntun eða bæta við opna

Neðst í glugganum er „Yfirlit pantana" flokkað eftir birgi. Sé til opin (DRAFT) innkaupapöntun á birgi getur þú valið að „Stofna nýja innkaupapöntun" eða „Bæta við opna pöntun" (með pöntunarnúmeri, fjölda vara og upphæð). Sé engin opin pöntun til verður ný stofnuð sjálfkrafa.

4
Staðfesta

Smelltu á „Samþykkja og búa til pantanir". Kerfið stofnar eina innkaupapöntun á hvern valinn birgi (eða bætir á valdar opnar pantanir), færir verð og gjaldmiðil yfir á pöntunarlínurnar og setur stöðu beiðnar í Pantað.

StaðaLiturMerking
Í biðAppelsínugulurBeiðni skráð, bíður samþykkis. Hægt að samþykkja, hafna, breyta og eyða.
SamþykktGrænnBeiðni samþykkt. Hægt að merkja sem keypta.
PantaðBlárBeiðni hefur verið breytt í innkaupapöntun(ir).
KeyptBlágrænn (cyan)Kaup frágengin (t.d. í gegnum „Skrá kaup" eða „Merkja sem keypt"). Hægt að breyta.
HafnaðRauðurBeiðni hafnað.
Hætt viðGrárBeiðni afturkölluð.
EyttGrárBeiðni hefur verið eytt (soft-delete); sést aðeins ef „Sýna hafnaðar/eyddar" er kveikt.
ForgangurLiturÍslenskt
LOWGrárLágur
NORMALBlárVenjulegur
HIGHAppelsínugulurHár
URGENTRauðurBrýnn