PayGoHandbókNámskeið

Staðsetningar á lager

Hillur, rekkar og skúffur í vöruhúsinu: hver vara fær fastan stað sem sést í tínslulista, talningu, vörumóttöku og skanna

Staðsetning er hilla, rekki, skúffa eða annar fastur staður í vöruhúsinu með stuttum kóða, t.d. A-01-03-2. Hver vara fær aðalstaðsetningu í vöruhúsinu (og má eiga aukastaðsetningar), og sú staðsetning birtist þar sem einhver þarf að finna vöruna: í vörulistanum, á tínslulista pantana, í talningu, í vörumóttöku, í skannanum og í appinu.

Kveikja á staðsetningum

Staðsetningar eru slökktar sjálfgefið og eru stilltar per vöruhús með þremur valkostum: „Slökkt“, „Heimastaðsetning“ og „Magn á staðsetningu“. Vöruhús sem notar þær ekki hegðar sér nákvæmlega eins og áður.

1
Opnaðu vöruhúsið

Farðu í Vörur & lager → Vöruhús og smelltu á nafn vöruhússins. Á síðu vöruhússins eru flipar: „Birgðir“ og „Staðsetningar“.

2
Opnaðu flipann Staðsetningar

Efst á flipanum er valið „Nota staðsetningar í þessu vöruhúsi“ með valkostunum „Slökkt“, „Heimastaðsetning“ og „Magn á staðsetningu“. Aðeins notandi með heimild til að breyta birgðum getur breytt því.

3
Veldu „Heimastaðsetning“

Flipinn sýnir þá töflu yfir staðsetningar vöruhússins og aðgerðahnappana „Ný staðsetning“, „Raðsmiður“ og „Flytja inn“. Birgðalisti vöruhússins fær dálkinn „Staðsetning“.

Þegar kveikt er á staðsetningum sýnir flipinn línu eins og „12 af 40 vörum með magn á skráða staðsetningu“ — hún segir hve margar vörur á lager hafa nú þegar aðalstaðsetningu. Ef þú velur „Slökkt“ aftur spyr kerfið áður („Hætta að nota staðsetningar?“) og ekkert eyðist: staðsetningarnar og skráning vara á þær haldast og birtast aftur ef þú kveikir síðar.

Kóðar og mælt snið

Kóði staðsetningar má aðeins innihalda hástafina A–Z, tölustafina 0–9 og bandstrik, að hámarki 24 stafi. Íslenskir stafir eru ekki leyfðir því strikamerkið á hillumiðanum þarf að lesast áreiðanlega; lýsandi heiti fer í reitinn „Heiti“. Kóðinn er einkvæmur innan vöruhússins og lágstafir breytast sjálfkrafa í hástafi. Mælt snið er svæði, rekki, bil, hæð.

KóðiMerking
A-01-03-2Svæði A, rekki 01, bil 03, hæð 2 (hilla)
B-07Svæði B, rekki 07 (þegar nóg er að tilgreina rekkann)
SKUFFA-12Skúffa 12 (föst orð eru leyfð ef þau nota aðeins A–Z, 0–9 og bandstrik)
GOLF-3Gólfpláss 3

Röðun staðsetninga í kerfinu er gönguröð: tölur innan kóða raðast sem tölur, svo A-1-9 kemur á undan A-1-10. Tínslulistar og talning fylgja þessari röð. Nota má reitinn „Svæði“ á staðsetningu til að flokka þær (t.d. „A“ eða „Kælir“) og sía töfluna eftir svæði.

Stofna staðsetningar

Á flipanum Staðsetningar eru þrjár leiðir til að búa þær til.

LeiðHvernig
Ný staðsetningHnappurinn „Ný staðsetning“ opnar gluggann með reitunum Kóði, Heiti, Svæði, Athugasemd og Virk. Notaðu þetta fyrir stakar staðsetningar.
RaðsmiðurHnappurinn „Raðsmiður“ býr til margar staðsetningar í einu úr liðum (sjá að neðan).
Flytja innHnappurinn „Flytja inn“ les lista úr CSV/TXT-skrá eða límdum texta (sjá að neðan).

Raðsmiðurinn

Glugginn „Raðsmiður staðsetninga“ setur kóðann saman úr liðum sem tengjast með bandstriki; síðasti liður breytist hraðast. Hver liður er „Fastur texti“, „Talnabil“ (Frá, Til og Núllfylling) eða „Stafabil“. Hnappurinn „Bæta við lið“ bætir við lið og „Svæði“ er valkvætt svæði sem allar nýju staðsetningarnar fá. Forskoðun sýnir hve margar staðsetningar verða til og hve margar eru þegar til (þeim er sleppt). Hnappurinn „Stofna N staðsetningar“ býr þær til.

Dæmi: Fastur texti A, Talnabil 1–4 með núllfyllingu 2 og Talnabil 1–3 gefur A-01-1, A-01-2, A-01-3, A-02-1 og svo framvegis, samtals 12 staðsetningar. Hámark er 2.000 í einu.

Innflutningur á lista

Glugginn „Flytja inn staðsetningar“ tekur við lista, annaðhvort límdum eða úr skrá („Velja skrá“, CSV eða TXT). Snið hverrar línu er kóði;heiti;svæði (komma eða tab mega líka vera skil), t.d. A-01-01-1;Hilla 1;A. Fyrsta lína má vera haus. Áður en þú flytur inn sýnir glugginn töflu með stöðu hverrar línu („Í lagi“, „Ógildur kóði“ eða „Tvítekinn kóði“) og aðeins gildar línur eru fluttar inn. Staðsetningar sem eru þegar til eru skildar eftir óbreyttar og taldar sem „sleppt“. Hámark er 2.000 raðir.

Breyta, gera óvirka og eyða

Í töflunni er hægt að leita eftir kóða eða heiti, sía eftir svæði og breyta staðsetningu (nýr kóði reiknar gönguröðina upp á nýtt). Smelltu á línu til að sjá vörurnar sem eiga heima á staðsetningunni, með aðal- eða aukastaðsetningarmerki ásamt magni og lausu magni vörunnar í vöruhúsinu (í „Heimastaðsetningu“ er það ekki magn á staðsetningunni sjálfri; í „Magn á staðsetningu“ sést það í dálkinum „Á staðsetningu“). Staðsetningu með engar vörur má eyða; sé hún í notkun býður kerfið að gera hana óvirka í staðinn, og óvirkri staðsetningu er ekki hægt að úthluta nýjum vörum.

Hillumiðar

Hakaðu við staðsetningar í töflunni og smelltu á „Prenta miða (N)“, eða veldu „Prenta alla í síu (N)“ til að prenta allar staðsetningar sem síunni sýnir. Glugginn „Prenta hillumiða“ biður um Miðastærð, Strikamerki (Code 128 eða QR-kóði) og gefur kost á „Prenta heiti og svæði staðsetningar“. Séu miðarnir of margir í einu segir glugginn til og þá þrengirðu síuna eða velur færri.

Strikamerkið á miðanum ber textann LOC: á undan kóðanum (t.d. LOC:A-01-03-2). Forskeytið gerir skannanum kleift að þekkja hillumiða frá vörustrikamerki, svo staðsetning og vara ruglast aldrei saman.

Fimm leiðir til að skrá vöru á staðsetningu

Staðsetning er alltaf skráð á vöru í ákveðnu vöruhúsi. Fyrsta staðsetning vöru í vöruhúsi verður aðalstaðsetning hennar; fleiri eru aukastaðsetningar. Skráðu staðsetningu sem er ekki til ennþá og hún er stofnuð um leið.

LeiðHvarHentar þegar
1. Á vörunni sjálfriVöruform → flipinn „Almennt“, í birgðalínunni („Staðsetning í <vöruhús>:“). Reitur leitar í staðsetningum vöruhússins eða býður „Stofna <kóði>“; stjarnan („Gera að aðalstaðsetningu“) velur aðalstaðsetningu og krossinn fjarlægir staðsetningu.Þú ert að vinna með eina vöru. Á vistaðri vöru vistast breytingin strax, en á nýrri vöru þegar hún er stofnuð.
2. MagnbreytingVörur → Magnbreyting → „Staðsetning“: veldu vöruhús og staðsetningu, og valdar vörur fá hana sem aðalstaðsetningu. Magn breytist ekki.Margar vörur eiga að fara á sömu hillu.
3. Magninnsetning / vörulistiDálkurinn „Staðsetning“ í Magninnsetningu og í „Sækja vörulista“. Kóðinn einn og sér ef fyrirtækið á eitt vöruhús með staðsetningum, annars vöruhúskóði á undan, t.d. AL:A-01-03-2; BK:B-03. Tómur reitur breytir engu og fjarlægir aldrei staðsetningu.Þú ert með lista í Excel (t.d. frá birgðatalningu eða eldra kerfi).
4. Skanninn/scanner/locations → „Raða á staði“: skannaðu hillumiða og svo vörur.Þú stendur við hilluna með skanna eða síma.
5. VörumóttakaÁ vörumóttökuseðli: „Setja staðsetningu“ í dálkinum „Staðsetning“. Staðsetningin vistast strax á vöruna.Varan er að koma í hús og þú veist hvert hún á að fara.

Magninnsetning og innflutningur. Staðsetningar í Magninnsetningu eru skráðar eftir að varan er vistuð. Ef staðsetningin er ógild, vöruhúsið notar ekki staðsetningar eða þú hefur ekki heimild til að breyta birgðum birtist viðvörun á línunni en varan sjálf vistast. Prufukeyrsla vistar ekkert. Sama snið les líka gagnainnflutningur stjórnanda á vörum (reiturinn „Staðsetning á lager“): staðsetningin þarf að vera til fyrir, hún er skráð eftir að varan er vistuð, og vandamál birtast sem viðvörun í villuskránni án þess að varan stöðvist.

Skanninn: Fletta upp, Raða á staði og Flytja

Skannasíðan Staðsetningar (/scanner/locations) hefur tvo ham, „Fletta upp“ og „Raða á staði“, og þann þriðja, „Flytja“, aðeins í vöruhúsi með „Magn á staðsetningu“ (sjá kaflann „Magn á staðsetningu“ hér að neðan). Veldu fyrirtæki og vöruhús (aðeins vöruhús með staðsetningum eru í boði) og skannaðu síðan.

  • Fletta upp: skannaðu hillumiða til að sjá hvaða vörur eiga heima þar („Vörur sem eiga heima hér“), eða skannaðu vöru til að sjá hvar hún er. Hver vara sýnir magn og laust magn í vöruhúsinu.
  • Raða á staði: skannaðu hillumiða — hún verður „Virk staðsetning“ — og skannaðu svo vörurnar sem eiga að fara þangað. Fyrsta staðsetning vöru verður aðalstaðsetning. Ef varan á þegar aðra aðalstaðsetningu spyr kerfið: „Flytja aðalstaðsetningu hingað“, „Bæta við sem aukastaðsetningu“ eða „Hætta við“. Listinn „Skráð í þessari lotu“ geymir það sem þú hefur skráð og „Afturkalla“ tekur færslu til baka.

Hvar staðsetningin nýtist

HvarHvað gerist
TínslulistiÁ sölupöntun er hnappurinn „Tínslulisti“. Hann sýnir það sem er óafhent, flokkað eftir vöruhúsi og raðað í gönguröð eftir aðalstaðsetningu; vörur án staðsetningar koma síðast merktar „Óstaðsett“. Aukastaðsetningar standa sem „Einnig: …“. Hægt er að prenta listann eða sækja hann sem PDF, og hnappurinn er líka á pöntuninni í appinu. Gátreitirnir í glugganum eru vinnulisti og vistast ekki. Í vöruhúsi með „Magn á staðsetningu“ sést líka magnið á staðsetningunni.
TalningTalningarlínur fá dálkinn „Staðsetning“ og raðast í gönguröð. Þegar talning er stofnuð má afmarka hana við „Svæði“ eða kóðabilið „Frá staðsetningu“ — „Til staðsetningar“ (t.d. „Til A-3“ nær líka yfir A-3-1, A-3-2 o.s.frv.). Dálkurinn kemur líka á prentað talningarblað. Í vöruhúsi með „Magn á staðsetningu“ er talið á hverja staðsetningu. Sjá Talningar.
VörumóttakaLínur sýna „Fer á: <kóði>“ og dálkinn „Staðsetning“; vanti staðsetningu stendur „Óstaðsett“ og hægt er að „Setja staðsetningu“. Sama gildir í móttökuskannanum. Í vöruhúsi með „Magn á staðsetningu“ má velja aðra staðsetningu fyrir móttökuna. Sjá Vöruinnhreyfingar.
VörulistiDálkurinn „Staðsetning“ sýnir aðalstaðsetningu (bentu á hana til að sjá vöruhús og aukastaðsetningar), síaður á „Án staðsetningar“. Sjá Vörur.
VörumiðarSniðmát miða hafa reitinn „Staðsetning“ sem prentar aðalstaðsetningu vörunnar í völdu vöruhúsi. Eigi fyrirtækið fleiri en eitt vöruhús með staðsetningar birtist reiturinn „Vöruhús“ í prentglugganum; annars er sjálfgefna vöruhúsið notað.
AfhendingarseðillValkvæður dálkur „Staðsetning“, sjá Sölustillingar.
Skanni og appSkannasíðan „Staðsetningar“ og vöruspjöld í appinu sýna „Staðsetning: <kóði>“ ásamt aukastaðsetningum.

„Án staðsetningar“ sem vinnulisti

Í vörulistanum er rofinn „Án staðsetningar“ (bentu á hann: „Vörur á lager í vöruhúsi með staðsetningum sem eiga þar enga aðalstaðsetningu“). Hann birtist aðeins ef eitthvert virkt vöruhús notar staðsetningar. Kveiktu á honum til að sjá þær vörur sem enn vantar stað — þegar listinn er tómur er hver vara á lager komin á hillu. Nota má Magnbreytingu til að afgreiða stóra hópa af listanum í einu.

Magn á staðsetningu

Sjálfgefið veit PayGo aðeins hvar vara á heima, ekki hve mikið er á hverjum stað. Í hamnum „Magn á staðsetningu“ heldur kerfið líka utan um magnið á hverri staðsetningu. Það borgar sig þegar sama vara liggur á fleiri en einum stað; annars dugar „Heimastaðsetning“. Hamurinn er stilltur per vöruhús.

Magn vöruhússins er áfram sannleikurinn. Magn á staðsetningum er skipting á því, og það sem er ekki skráð á staðsetningu heitir óstaðsett.

Að kveikja og raða inn

Þegar þú velur „Magn á staðsetningu“ færist ekkert: allt magn er óstaðsett í byrjun. Flipinn sýnir línuna „Staðsett magn: … · Óstaðsett magn: … · Vörur með óstaðsett magn: …“. Þrjár leiðir eru til að raða magninu inn á staðsetningar:

  • Hnappurinn „Setja óstaðsett á aðalstaðsetningu“ á flipanum Staðsetningar. Hann setur allt óstaðsett magn hverrar vöru á aðalstaðsetningu hennar. Kerfið sýnir fyrst hve margar vörur og hve mikið magn er undir og sleppir vörum sem eiga enga virka aðalstaðsetningu.
  • Skanninn. Í „Flytja“ flytur þú magn úr óstaðsettu á hillu, og í „Raða á staði“ spyr kerfið „Setja óstaðsett magn af … á …?“ („Setja magn“ eða „Sleppa“).
  • Talning per svæði. Talið magn á hillu er fyrst tekið af óstaðsettu magni vörunnar. Birgðastaðan hækkar ekki nema talið sé meira en til er óstaðsett.

Hvert magnið fer sjálfkrafa

Þegar birgðir breytast velur kerfið staðsetningu ef þú gerir það ekki:

  • Magn eykst (móttaka, skil): valin staðsetning, annars aðalstaðsetning, annars óstaðsett.
  • Magn minnkar (sala, afhending, afskrift): valin staðsetning, annars aðalstaðsetning, svo aðrar staðsetningar vörunnar í gönguröð, og loks óstaðsett.

Þú ert aldrei stöðvaður fyrir að velja ekki staðsetningu. Ef kerfið giskar rangt leiðréttir talning það.

Flytja magn innan vöruhúss

Í hliðarspjaldi staðsetningar (smelltu á línu í töflunni) er hnappurinn „Flytja“ við hverja vöru. Glugginn „Flytja magn“ biður um vöru, „Úr“, „Í“ og „Magn“. „Óstaðsett“ er valkostur bæði í „Úr“ og „Í“. Í vörunni sjálfri eru „Flytja“ og „Flytja óstaðsett magn“ við hverja staðsetningu. Í skannanum er hamurinn „Flytja“: skannaðu úr-staðsetningu, vöru og svo staðsetninguna sem magnið fer á.

Flutningur breytir ekki birgðastöðu vöruhússins, bara skiptingunni innan þess. Sé ekki nóg magn á staðnum sem flutt er úr segir kerfið hve mikið er til. Hliðarspjaldið sýnir líka „Sögu staðsetningar“ með tíma, vöru, breytingu, ástæðu og notanda.

Talning

Talning í vöruhúsi með „Magn á staðsetningu“ hefur línu fyrir hverja vöru og staðsetningu, auk sérstakrar línu fyrir óstaðsett magn vörunnar. Þú telur hverja hillu fyrir sig. Finnist vara á hillu þar sem hún er ekki skráð má bæta henni við í „Bæta við vörum“ með því að velja staðsetningu. Staðsetningin er þá skráð á vöruna þegar talningin er bókuð.

Selst vara eða er móttekin á meðan talið er biður kerfið um að telja línur hennar aftur áður en talningu er lokið. Línurnar eru merktar „Telja aftur“; teldu þær aftur eða staðfestu óbreytt magn með hakinu.

Talið magn á hillu er fyrst tekið af óstaðsettu magni vörunnar, og aðeins afgangurinn hækkar birgðastöðuna. Í skynditalningu er hægt að velja „Staðsetning“ til að telja aðeins hana; „Allt vöruhúsið“ telur vöruhúsið í heild.

Hvað bætist við á öðrum skjám

SkjárHvað bætist við í þessum ham
VörumóttakaValkosturinn „Önnur staðsetning fyrir þessa móttöku“. Hann gildir aðeins fyrir móttökuna; aðalstaðsetning vörunnar breytist ekki. „Nota aðalstaðsetninguna“ tekur valið til baka.
Millifærsla milli vöruhúsaReitirnir „Úr staðsetningu“ og „Í staðsetningu“ (sjálfgefið „sjálfvirkt“).
AfskriftirReiturinn „Staðsetning“ á hverri línu (sjálfgefið „sjálfvirk“).
SkynditalningReiturinn „Staðsetning“ til að telja eina staðsetningu.
TínslulistiMagn á staðsetningunni stendur í sviga við kóðann. Dugi það ekki fyrir línunni sýnir „Einnig til á: …“ hvaða aðrar staðsetningar eiga magn.

Að slökkva

Veljirðu „Heimastaðsetning“ eða „Slökkt“ aftur spyr kerfið „Núlla magn á staðsetningum?“ og segir hve margar vörur og hve mikið magn er skráð á staðsetningar. Ef þú heldur áfram („Núlla og skipta“) er magn á staðsetningum núllað. Magn vöruhússins breytist ekki og skráningar vara á staðsetningar standa, svo þú getur kveikt aftur síðar.

Ráð um innleiðingu

Snjöll röð er að byrja á hillunum og láta síðan skannann vinna verkið:

1
Kveiktu á staðsetningum í vöruhúsinu

Vöruhús → flipinn Staðsetningar → „Nota staðsetningar í þessu vöruhúsi“ → „Heimastaðsetning“.

2
Búðu til staðsetningarnar og prentaðu hillumiða

Notaðu „Raðsmið“ (eða „Flytja inn“ ef þú ert með lista), veldu staðsetningarnar og smelltu á „Prenta miða“. Límdu miðana á hillurnar.

3
Raðaðu vörunum á staði með skanna

Opnaðu Staðsetningar í skannanum, veldu „Raða á staði“, skannaðu hillumiða og svo vörurnar á hillunni. Gangtu hillu fyrir hillu.

4
Fylgstu með „Án staðsetningar“

Þegar vörulistinn með rofanum „Án staðsetningar“ er tómur eða stuttur er skráningunni lokið. Línan efst á flipanum sýnir hlutfallið.

5
Teldu í gönguröð

Stofnaðu næstu talningu afmarkaða við svæði eða kóðabil. Línurnar raðast í gönguröð og prentað talningarblað fylgir sömu röð.