Kortauppgjör
Hvernig uppgjör frá Teya birtast, hvað Teya-staða og dálkarnir segja þér, og hvernig þú forskoðar, bókar og bakfærir uppgjör.
Kortauppgjör
Kortauppgjör
Á síðunni Kortauppgjör (Bókhald → Kortauppgjör) sérðu uppgjör sem sótt hafa verið frá kortaþjónustuaðila (Teya), forskoðar bókhaldsfærsluna, bókar uppgjörin í fjárhag og bakfærir ef þarf. Hvert uppgjör sýnir brúttó kortasölu, frádregin gjöld, fyrirframgreiðslu (afborgun af fyrirframfjármögnun frá Teya, ef hún er til staðar) og það sem var greitt út á bankareikning. Teya gerir upp eins og hlaupandi reikning: upphæð sem Teya heldur eftir í lok eins uppgjörs kemur fram sem inngangsstaða í því næsta. Tengingarnar sjálfar, bókhaldslyklar þeirra og vörpun gjaldakóða eru stilltar undir Stillingar → Innheimta & banki → Korta- og posatengingar (kortið Uppgjör) — hér er aðeins listinn, afstemmingin og bókunin.

Takkar efst á síðunni
| Takki | Hlutverk | Réttindi |
|---|---|---|
| Bóka öll | Bókar öll óbókuð uppgjör eftir staðfestingu („Bóka öll óbókuð uppgjör?"). Uppgjörin eru bókuð í tímaröð innan hverrar tengingar, hvert í sinni færslu, og keyrslan stöðvast á fyrstu villu — þau sem þegar bókuðust standa og gluggi segir hve mörg bókuðust og hver fyrsta villan var. Sé tvítekið uppgjör eða uppgjör með rangt samningsnúmer óafgreitt er ekkert bókað. | accounting:write |
| Sækja uppgjör | Opnar gluggann „Sækja uppgjör" (sjá hér að neðan). Óvirkt í sýnishornsfyrirtæki. | accounting:write |
| Endurhlaða | Sækir listann aftur úr PayGo án þess að tala við þjónustuaðila. | accounting:read |
Sækja uppgjör
Takkinn sækir uppgjör frá Teya. Straumur hefur ekkert uppgjörs-API og er því sleppt við sókn (hvort sem er í glugganum eða næturkeyrslu) — uppgjör Straums eru flutt inn úr skrá (sjá „Flytja inn uppgjörsskrá“ hér að neðan). Glugginn hefur tvo hami. Síurnar á listanum hafa engin áhrif á hvað er sótt. Uppgjör sem eru þegar til eru ekki tvítekin og bókuðum uppgjörum er aldrei breytt; óbókað uppgjör uppfærist ef Teya sendir það breytt. Uppgjöri sem ber annað samningsnúmer (MerchantID) en tengingin er hafnað og það er ekki vistað — þá birtist viðvörun um að athuga samningsnúmerið í stillingum tengingarinnar.| Hamur | Hvað er sótt |
|---|---|
| Nýtt síðan síðast (sjálfgefið) | Allt frá síðustu sókn tengingarinnar til dagsins í dag — síðustu 30 dagar ef aldrei hefur verið sótt áður. Sama sókn og sjálfvirka daglega sóknin. |
| Sækja tímabil | Valið dagsetningabil (flýtival: Þetta ár, Síðasta ár, Síðustu 12 mánuðir), að hámarki 731 dagur og ekki fram í tímann. Notað til að sækja eldri sögu; hefur ekki áhrif á sjálfvirku sóknina. |
Flytja inn uppgjörsskrá (Straumur)
Sæktu uppgjörsskýrsluna á þjónustuvef Straums (Uppgjör / Skýrslur) og smelltu á Flytja inn uppgjörsskrá. Veldu Straumur-tenginguna og dragðu skrána (CSV, TXT eða Excel, að hámarki 5 MB) í gluggann. Forskoðunin sýnir uppgjörin í skránni með brúttó, gjöldum og nettó og hvort þau eru ný, óbókuð eða þegar bókuð. Dálkarnir eru greindir sjálfkrafa eftir fyrirsögn; sé rangt greint breytirðu Dálkavörpun og forskoðunin uppfærist. Skráin þarf að bera samningsnúmer tengingarinnar; beri hún ekkert samningsnúmer staðfestirðu með Skráin tilheyrir samningi … að hún sé tengingarinnar. Skýrsla af þjónustuvef Straums þekkist sjálfkrafa og þarf enga dálkavörpun; aðeins greidd uppgjör samnings tengingarinnar eru lesin inn — uppgjör í bið koma inn þegar skránni er hlaðið aftur inn eftir greiðslu. Hver samningur þarf sína eigin Straumur-tengingu (sama skrá er flutt inn á hverja), og hafi tengingin ekkert samningsnúmer velurðu samninginn úr skránni og númerið vistast á tenginguna. Hvert uppgjör verður að ganga upp (brúttó að frádregnum gjöldum = nettó, innan 1 kr.). Allt eða ekkert: sé ein villa í skránni er ekkert flutt inn fyrr en hún er löguð. Öruggt er að flytja sömu skrá inn aftur — óbókuð uppgjör uppfærast ef gögnin breyttust en bókuðum uppgjörum er aldrei breytt. Uppgjör Straums geta verið með neikvætt nettó (gjöld umfram sölu); Straumur innheimtir þá mismuninn með kröfu í banka og hún parast við uppgjörið eins og útborgun.Afstemmingarspjaldið „Staða kortauppgjöra"
Spjaldið efst á síðunni svarar því hvort uppgjörskeðjan stemmi við fjárhaginn og bankann. Hausinn sýnir heildarstöðu (Allt í lagi / Þarfnast athugunar / Villa) og hver mæling hefur markgildi. Smelltu á Óbókuð uppgjör til að sía listann á óbókuð uppgjör.| Mæling | Hvað hún sýnir | Markgildi |
|---|---|---|
| Óbókuð uppgjör | Fjöldi uppgjöra sem bíða bókunar, Σ brúttó þeirra og dagsetning þess elsta | 0 |
| Uppgjörsstaða (biðlykill) | Staða biðlykilsins í fjárhag borin saman við lokastöðu síðasta bókaða uppgjörs hverrar tengingar | frávik 0 |
| Fyrirframgreiðsla | Staða fyrirframgreiðslulykilsins (afgangslykils tengingarinnar) og hve mikið af henni kom úr bókuðum uppgjörum. Viðvörun ef skuldalykillinn er í debet — þá vantar höfuðstól fyrirframgreiðslunnar í bókhaldið. | — |
| Kortakrafa | Staða lykils greiðslumátans og hve mikið af henni skýrist af óbókuðum uppgjörum; óskýrði hlutinn á að nálgast sölu síðustu daga | — |
| Útborganir vs. banki | Bókuð uppgjör með útborgun borin saman við bankafærslur (sama upphæð innan 3 daga) | ekkert vantar í banka |
| Keðjurof | Uppgjör þar sem inngangsstaðan stemmir ekki við lokastöðu fyrra uppgjörs | 0 |
| Tvítekin uppgjör | Pör sem virðast vera sama uppgjörið undir tveimur númerum (sama tenging og samningsnúmer, sömu upphæðir og fjöldi færslna, dagsetning innan 3 daga) þar sem annað er óbókað. Ekkert er leiðrétt sjálfkrafa og „Bóka öll" er stöðvað á meðan. | 0 |
| Rangt samningsnúmer | Óbókuð uppgjör sem bera annað samningsnúmer en tengingin sem þau liggja undir. Þau verða ekki bókuð og „Bóka öll" er stöðvað á meðan. | 0 |
Samtölur, síur og listi
Undir spjaldinu eru samtölur yfir þau uppgjör sem eru í listanum hverju sinni: Brúttó, Gjöld, Fyrirframgreiðsla, Útborgað, Opin staða (samtala lokastöðu) og fjöldi Uppgjöra. Þar fyrir neðan eru síurnar: dagsetningabil („Frá"/„Til") og stöðusía (Óbókað / Bókað / Bakfært). Listinn og samtölurnar uppfærast um leið og sía breytist. Hnappurinn Excel hægra megin við síurnar sækir uppgjörin í listanum í XLSX-skjal: dagsetningu, uppgjörsnúmer, fjölda færslna, inngangsstöðu, brúttó, gjöld, fyrirframgreiðslu, útborgað, lokastöðu og stöðu, með samtöluröð og tímabili/stöðusíu í hausnum. Upphæðirnar eru þær sömu og í dálkunum; vanti uppgjörsstöðu eru reitirnir auðir.| Dálkur | Lýsing |
|---|---|
| Dagsetning | Uppgjörsdagsetning — bókhaldsfærslan fær þessa dagsetningu |
| Uppgjörsnr. | Númer uppgjörsins hjá Teya |
| Fj. færslna | Fjöldi kortafærslna í uppgjörinu |
| Inngangsstaða | Staða flutt frá fyrra uppgjöri (jákvæð = Teya skuldaði fyrirtækinu) |
| Brúttó | Kortasala uppgjörsins; neikvæð ef endurgreiðslur voru meiri en sala |
| Gjöld | Sundurliðuð kortagjöld (neikvæð tala, rautt) |
| Fyrirframgr. | Afborgun af fyrirframgreiðslu sem Teya hélt eftir (neikvæð tala, rautt) |
| Útborgað | Það sem Teya greiddi inn á bankareikning |
| Lokastaða | Það sem Teya heldur eftir og flytur á næsta uppgjör |
| Staða | Stöðumerki og eftir atvikum aukamerki og villumerki (sjá hér að neðan) |
| Aðgerðir | Forskoða færslu (táknhnappur), Bóka (Óbókað) eða Bakfæra (Bókað) |
| Staða | Litur | Merking |
|---|---|---|
| Óbókað | Appelsínugult | Uppgjör sótt en ekki fært í bókhald — hægt að bóka. Bakfært uppgjör fær aftur þessa stöðu. |
| Bókað | Grænt | Bókhaldsfærsla hefur verið stofnuð — hægt að bakfæra |
| Bakfært | Grátt | Eldri staða: uppgjör sem var bakfært áður en bakfærsla fór að skila uppgjörinu í Óbókað |
| Leyst af hólmi | Grátt | Tvítekið uppgjör sem greindist við sókn; það er aldrei bókað |
| Merki | Hvenær |
|---|---|
| Frestað | Ekkert var greitt út; upphæðin bætist við næsta uppgjör |
| Endurgreiðslur | Brúttóvelta uppgjörsins er neikvæð |
| Aðeins gjöld | Engin sala, aðeins gjöld (t.d. mánaðargjald) |
| Ber stöðu | Uppgjörið ber stöðu frá fyrra uppgjöri |
| Næsta uppgjör vantar (rautt) | Uppgjörið stendur ekki á núlli og lokastaðan fæst ekki fyrr en næsta uppgjör sömu tengingar hefur verið sótt — Bóka er óvirkt þangað til |
| Ósamræmi milli uppgjöra (rautt) | Uppgjörið passar ekki við næsta uppgjör (líklega vantar uppgjör á milli) — ekki hægt að bóka |
| Rangt samningsnúmer / Keðjan ber rangt samningsnúmer (rautt) | Uppgjörið, eða næsta uppgjör sem lokastaðan er leidd af, tilheyrir öðru samningsnúmeri en tengingin — ekki hægt að bóka |
Smelltu á uppgjörsröð til að fletta henni út. Þar birtast Uppgjörsupplýsingar (uppgjörsnúmer, dagsetning, gjaldmiðill, fjöldi færslna, brúttó, nettó greitt), Kortategundir (upphæð á hverja kortategund — aðeins þegar uppgjörið frá þjónustuaðilanum tilgreinir upphæð á kortategund; annars birtist hlutinn ekki), Sundurliðun gjalda (kóði, upphæð og bókhaldslykillinn sem liðurinn bókast á — „Sjálfgefinn gjaldalykill" ef kóðanum hefur ekki verið varpað, eða rauða merkið „Vantar lykil — bókun stöðvast") og Jöfnun uppgjörs (staða flutt frá fyrra uppgjöri, staða flutt á næsta uppgjör, fyrirframgreiðsla sem hlutfall af brúttó og námundun).
Smelltu á „Sækja uppgjör", veldu „Nýtt síðan síðast" eða „Sækja tímabil" og smelltu á „Sækja". Niðurstaðan segir hve mörg uppgjör voru ný, uppfærð og óbreytt.
Skoðaðu „Staða kortauppgjöra" og flettu út röð til að sjá sundurliðun gjalda. Athugaðu að enginn gjaldakóði sé með „Vantar lykil" og berðu Útborgað saman við bankayfirlitið.
Táknhnappurinn „Forskoða færslu" sýnir nákvæmlega þær línur (Bókhaldslykill, Debet, Kredit, Samtals) sem bókunin myndi skrifa. Forskoðun bókar ekkert og stendur líka notendum með aðeins lesréttindi til boða.
Smelltu á „Bóka" á röðinni. Glugginn „Bóka uppgjör" sýnir færsluna aftur og ekkert er bókað fyrr en þú staðfestir með „Bóka". Sé ekki hægt að bóka uppgjörið er hnappurinn óvirkur og ástæðan sýnd. Bókið uppgjör hverrar tengingar í tímaröð — eldra óbókað uppgjör sem ber stöðu áfram stöðvar bókun þeirra sem á eftir koma.
Bókhaldsfærslan
Við bókun stofnast ein jöfnuð bókhaldsfærsla „Uppgjör frá Teya - [uppgjörsnr.]" á uppgjörsdagsetningunni og er bókuð strax. Lína með upphæð 0 er sleppt. Engin VSK-lína myndast. Lyklarnir koma úr tengingunni (Stillingar → Innheimta & banki → Korta- og posatengingar) og úr Vörpun gjalda hennar.| Lína | Debet / kredit | Upphæð | Lykill |
|---|---|---|---|
| Kortagreiðslur uppgjör | Kredit (debet ef brúttó er neikvætt) | Brúttó | Bókhaldslykill greiðslumátans sem valinn er í „Greiðslumáti (kortamillifærsla)" — kortakrafan sem kortasalan var færð á |
| Innborgun frá kortauppgjöri | Debet | Útborgað | „Bankareikningur (bókhaldslykill)" |
| Kortaþóknun ([kóðar]) | Debet (kredit ef liðurinn er endurgreiðsla frá Teya) | Gjaldaliðir, ein lína á hvern lykil | Lykillinn sem kóðanum er varpað á í „Vörpun gjalda"; annars „Kostnaðarlykill (gjöld)". Fyrirframgreiðslukóðar (TEYA_MCA, TEYA_CASH_ADVANCE) án vörpunar fara á „Afgangslykil" — aldrei á gjaldalykilinn. |
| Staða flutt frá fyrra uppgjöri | Kredit ef Teya skuldaði fyrirtækinu, annars debet | Inngangsstaða | „Biðlykill" |
| Staða flutt á næsta uppgjör | Debet ef Teya heldur eftir, annars kredit | Lokastaða | „Biðlykill" — sami lykill, svo staðan núllast þegar næsta uppgjör er bókað |
| Endurgreiðsla fyrirframgreiðslu (ósundurliðuð) | Debet | Fyrirframgreiðsla sem Teya sundurliðaði ekki | „Afgangslykill" |
| Námundun uppgjörs | Debet eða kredit | Undir 1 kr. | „Afgangslykill", annars „Kostnaðarlykill (gjöld)" |
