PayGoHandbókNámskeið
Kafli: BókhaldBútur 4 af 202:11

Hreyfingar

Hvernig þú rekur einstakar debet- og kreditlínur eftir lyklum, síar eftir ári, upphæð og skjalanúmeri, færð reikningsyfirlit með hlaupandi stöðu fyrir einn lykil, og opnar upprunalegu færsluna.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
Skref 14 af 201:40 / 2:11

Í töflunni bætast við debet, kredit og hlaupandi staða í hverri línu.

Hraði

Hreyfingar

Nákvæm sýn á allar debet- og kredit-hreyfingar eftir lyklum, með síum og hlaupandi stöðu

Hreyfingaskjárinn (Bókhald → Hreyfingar) sýnir einstakar debet- og kredit-línur úr bókhaldinu. Þetta er nákvæmasti staðurinn til að rekja virkni bókhaldslykla og finna hverja hreyfingu aftur til upprunalegu færslunnar. Þú getur skoðað hreyfingar þvert á alla lykla, þrengt á tiltekna lykla eða valið nákvæmlega einn lykil og fengið fullt reikningsyfirlit með hlaupandi stöðu.

Rofinn „Sýna óbókaðar dagbækur með í tölunum"

Efst til hægri, við hlið fyrirsagnarinnar, er rofinn Sýna óbókaðar dagbækur með í tölunum. Sjálfgefið er slökkt á honum. Þegar kveikt er á honum telja færslur í drögum (óbókaðar dagbókarfærslur) með í öllum tölum skjásins: listanum, Samtals-röðinni, og í stakri-lykils sýn í upphafsstöðu, debet og kredit tímabilsins, hlaupandi stöðu og lokastöðu. Ógiltar færslur telja aldrei með.

Meðan kveikt er á rofanum birtist rautt viðvörunarmerki, Óbókuð drög innifalin. Bendill á merkinu sýnir skýringu: tölurnar eru ekki endanlegar bókhaldstölur, því drög geta breyst eða verið eytt.

  • Stillingin er aðeins geymd í þessum vafra og slekkur á sér sjálfkrafa eftir 6 klst. — hún getur ekki orðið varanleg stilling.
  • Sami rofi er á Prófjöfnuði og Ársreikningi og stillingin gildir á öllum þremur skjánum í sama vafra.

Hvenær á að nota skjáinn:

  • Rekja viðskiptavini eða birgja — síaðu eftir tilvísun til að sjá reikninga og greiðslur tiltekins aðila.
  • Athuga bankastöðu — veldu bókhaldslykil bankareikningsins og berðu hlaupandi stöðu saman við „Bankastaða" dálkinn (staðan samkvæmt banka).
  • Greina útgjöld eða tekjur — veldu kostnaðar- eða tekjulykil og skoðaðu sundurliðun hreyfinga.
  • Sannreyna VSK — skoðaðu útskatts- og innskattslykla til að staðfesta VSK-skýrslu.
  • Finna stórar eða óvenjulegar færslur — notaðu upphæðabilið (frá/til) til að einangra tilteknar upphæðir.
  • Taka gögnin út — hnapparnir Excel og PDF efst til hægri sækja hreyfingarnar með núverandi síum. Í almennu sýninni koma allar línur síunnar með (ekki aðeins síðan á skjánum; mest 50.000 línur í Excel og 5.000 í PDF), með samtölum debet og kredit. Þegar einn lykill er valinn kemur hreyfingalisti lykilsins í tímaröð með stöðu í upphafi og lok. Haus skjalsins sýnir fyrirtæki, tímabil og síur.
Hreyfingaryfirlit með rofa fyrir óbókaðar dagbækur, Excel- og PDF-hnöppum, síuröð og lista
Stækka
Hreyfingaskjár: rofinn „Sýna óbókaðar dagbækur með í tölunum" og hnapparnir Excel og PDF efst til hægri, leitar- og síuröð, síðan hreyfingar flokkaðar eftir færslu

Leit og síur

Efst á skjánum er síukort með nokkrum reitum. Allar síur vinna saman (rökleg OG-tenging) og listinn uppfærist sjálfkrafa. Þegar þú breytir síu færist listinn aftur á fyrstu síðu.

ReiturLýsingSkylda
Leita eftir færslunúmeri, lykli, lýsingu…Frjáls textaleit. Í almennu sýninni leitar hún samtímis í færslunúmeri, lykilnúmeri, heiti lykils og lýsingu línu; í stakri-lykils sýn aðeins í færslunúmeri og lýsingu. Leitin er með 400 ms töf (debounce) svo hún kviknar rétt eftir að þú hættir að skrifa.Nei
SkjalanúmerSía á fylgiskjalsnúmer — nægir að slá inn hluta númersins. Ef engar línur birtast flettir kerfið númerinu upp og sýnir stöðu skjalsins (Bókað / Drög / Ógilt) og dagsetningu fyrir neðan reitinn; finnist það ekki birtist „Skjalanúmer finnst ekki". Sían gildir aðeins í almennu sýninni.Nei
Flýtitakkar áraÞrír takkar fyrir yfirstandandi ár og tvö undanfarin ár. Smellur setur dagsetningabilið á allt árið (1. jan – 31. des). Smellur aftur á virkan takka hreinsar bilið.Nei
Upphafsdagur – LokadagurDagsetningabil. Síar á virka dagsetningu línunnar (línudagsetning ef til, annars færsludagsetning).Nei
Sía eftir bókhaldslyklum…Fjölval á virkum lyklum með leit. Veldu einn eða fleiri lykla. Ef nákvæmlega einn er valinn breytist sýnin í reikningsyfirlit með hlaupandi stöðu.Nei
Upphæð fráNeðri mörk á upphæð línunnar án formerkis — debet- og kredit-línur eru bornar saman á sama hátt.Nei
Upphæð tilEfri mörk á upphæð línunnar án formerkis.Nei
Sía eftir tilvísun (skuldunaut / lánadrottin)Leitar í nafni viðskiptavinar eða birgis. Í almennu sýninni er leitað í aðilanum á haus færslunnar; í stakri-lykils sýn í nafninu sem birtist á línunni.Nei

Almenna sýnin (enginn eða margir lyklar valdir)

Þegar enginn lykill er valinn — eða fleiri en einn — sýnir taflan hreyfingar þvert á alla valda lykla. Listinn er blaðsíðuskiptur á miðlara (server-side) og hægt er að velja 20, 50, 100, 200 eða 500 línur á síðu. Neðst stendur „Samtals X hreyfingar".

ReiturLýsingSkylda
DagsDagsetning línunnar á sniðinu DD.MM.ÁÁÁÁ (línudagsetning ef hún er skráð, annars dagsetning fylgiskjalsins eða færslunnar). Raðanlegur dálkur (sjálfgefið nýjast efst).—
FærslunúmerNúmer upprunalegu færslunnar. Smellur opnar glugga með allri færslunni. Raðanlegur.—
SkjalanúmerFylgiskjalsnúmer (voucher) sem færslan tilheyrir.—
TegundUppruni færslunnar, birtur sem litaður merkimiði (t.d. Reikn., Greiðsla, Handb., Bankaf.).—
Tilvísun línuÞað sem línan vísar á, sem litaður merkimiði (t.d. Viðsk., Birgi, Vara) — með nafni þegar um viðskiptavin eða birgi er að ræða. Sýnir „-" ef línan hefur enga tilvísun.—
LykillBókhaldslykilnúmerið sem fær hreyfingu. Raðanlegur.—
Heiti lykilsHeiti bókhaldslykilsins.—
LýsingSkýringartexti línunnar.—
UpphæðUpphæð línu. Debet birtist grænt (jákvætt), kredit rautt með mínus. Raðanlegur. Hægt að velja reiti til að leggja saman.—
(i) upplýsingatáknBendill á tákninu sýnir hver skráði færsluna (höfund).—

Neðst í almennu sýninni birtist Samtals-röð sem sýnir nettóupphæð (heildardebet − heildarkredit) yfir allar línur sem passa við síurnar — ekki bara þær sem sjást á núverandi síðu. Þessi tala kemur frá miðlara.

Í spilun

Stakur lykill — reikningsyfirlit með hlaupandi stöðu

Ef þú velur nákvæmlega einn lykil breytist skjárinn í fullt reikningsyfirlit. Efst birtist samantektarspjald og taflan sýnir þá debet, kredit og hlaupandi stöðu í hverri línu — reiknað út frá upphafsstöðu lykilsins. Yfirlitið sýnir allar línur lykilsins á tímabilinu; blaðsíðuskiptingin er í vafranum (50 línur sjálfgefið, hægt að velja 20, 50, 100, 200 eða 500).

ReiturLýsingSkylda
Lykill + tegundEfst birtist lykilnúmer, heiti og litaður merkimiði fyrir tegund lykils: Eign, Skuld, Eigið fé, Tekjur eða Gjöld.—
UpphafsstaðaStaða lykilsins í upphafi valins tímabils: allar hreyfingar fyrir upphafsdag. Hafi ár verið flutt með árslokayfirfærslu telst staðan frá síðustu fluttu upphafsstöðu, og upphafsstöðufærsla sem fellur á sjálfan upphafsdaginn telst hér en ekki í hreyfingum tímabilsins. Aðeins reiknuð þegar dagsetningabil er sett (annars 0).—
Debet á tímabiliSamtala debet-hreyfinga á völdu tímabili.—
Kredit á tímabiliSamtala kredit-hreyfinga á völdu tímabili.—
LokastaðaStaða lykilsins í lok tímabilsins — sama tala og hlaupandi staðan eftir síðustu línu.—
DálkurLýsingSkylda
DagsVirk dagsetning línunnar (DD.MM.ÁÁÁÁ). Yfirlitið er reiknað í tímaröð (elst fyrst) en birtir nýjast efst.—
FærslunúmerNúmer færslunnar; smellur opnar glugga með allri færslunni.—
LýsingSkýringartexti línunnar.—
Tilvísun línuViðskiptavinur eða birgir sem línan tengist, með litmerki tegundar.—
DebetDebet-upphæð línunnar (græn). Hægt að velja til að leggja saman.—
KreditKredit-upphæð línunnar (rauð). Hægt að velja til að leggja saman.—
StaðaHlaupandi staða lykilsins upp að og með þessari línu.—
BankastaðaStaða bankareiknings samkvæmt banka á þessum tímapunkti — aðeins fyllt fyrir línur sem tengjast innfluttri bankafærslu. Annars „-".—
1
Opnaðu hreyfingaskjáinn

Farðu í Bókhald → Hreyfingar. Sjálfgefið sérðu nýjustu bókuðu hreyfingarnar þvert á alla lykla, 50 línur á síðu, nýjast efst.

2
Þrengdu með síum

Notaðu leitarreitinn, skjalanúmer, dagsetningabil (eða flýtitakka áranna), upphæðabil og tilvísun til að finna það sem þú leitar að. Listinn uppfærist sjálfkrafa.

3
Veldu lykla

Í „Sía eftir bókhaldslyklum…" geturðu valið marga lykla til að skoða saman. Til að fá reikningsyfirlit með hlaupandi stöðu skaltu velja nákvæmlega einn lykil — og setja dagsetningabil til að fá upphafsstöðu.

4
Skoðaðu upprunalega færslu

Smelltu á færslunúmerið í hvaða línu sem er til að opna glugga með allri færslunni — öllum debet- og kredit-línum, fylgiskjali og upplýsingum. Þaðan geturðu prentað hana, afritað í nýja dagbók eða, sé hún bókuð handbókuð færsla, bakfært hana með „Bakfæra færslu" (sjá Færslubók). Eftir bakfærslu uppfærist listinn sjálfkrafa.

5
Leggðu saman valdar upphæðir

Smelltu á upphæðareiti (Excel-stíll) til að velja þá. Í almennu sýninni birtist neðst röðin „Valið samtals (N):" með nettósummu valinna reita (debet jákvætt, kredit neikvætt). Í stakri-lykils sýn birtist „Valið (N):" með summu Debet og Kredit og mismuninum (Debet − Kredit) undir Staða. Smelltu á „Hreinsa val" til að byrja upp á nýtt.

Litamerki tegunda

Dálkurinn Tegund (og tilvísun línu) sýnir uppruna hreyfingar sem litaðan merkimiða. Í töflunni er stutt heiti (eins og það birtist í dálkinum) og fullt heiti.

MerkiMerkingLitur
Reikn.SölureikningurBlár
KreditKreditreikningurRauður
Útgj. / Útgj. gr. / Bunkagr.Útgjöld, útgjaldagreiðsla, bunkagreiðsla útgjaldaAppelsínugulur
Bankaf.BankafærslaBlágrár (geekblue)
GreiðslaGreiðslaGrænn
Fyrirfr.FyrirframgreiðslaBlágrænn (cyan)
Handb.Handbókuð færslaFjólublár
Viðsk.ViðskiptavinurBlágrár (geekblue)
BirgiBirgirRauðgulur (volcano)
VaraVaraLjósgrænn (lime)
InneignInneign viðskiptavinarGrænn
Millif.Innri millifærslaBlágrænn (cyan)
Bankakr.BankakrafaGull
Uppgj.Uppgjör (t.d. VSK)Gull
Lánaafborgun / Útborgun láns / VerðbæturFærslur úr lánakerfinuRauðgulur (volcano)
Eignakaup / Afskriftir / Leiðrétting eignar / Gjaldfærsla eignalínu / Sala/niðurlagning eignar / Bakf. eignafærslaFærslur úr eignaskrá (og bakfærslur þeirra)Ljósgrænn (lime)
EignLína sem vísar á eign í eignaskrá (tilvísun línu)Ljósgrænn (lime)
Leiðr.Leiðrétting / bakfærslaBleikur (magenta)
Kerfisheiti, t.d. OPENING_BALANCETegund sem hefur ekki eigið merki, t.d. upphafsstöðufærsla eða árslokafærslaGrár

Staða fylgiskjala (skjalanúmer-uppfletting)

Þegar þú slærð inn skjalanúmer og engar línur birtast sýnir kerfið stöðu skjalsins sem litaðan merkimiða. Staðan fylgir stöðluðum litum PayGo:

StaðaMerkingLitur
BókaðFylgiskjalið er bókað. Ef engar línur birtast samt eru það aðrar síur (t.d. dagsetning, lykill eða upphæð) sem útiloka þær.Grænn
DrögFylgiskjalið er í drögum — línur þess birtast aðeins ef kveikt er á rofanum „Sýna óbókaðar dagbækur með í tölunum".Grár (default)
ÓgiltFylgiskjalið hefur verið fellt niður.Rauður
Næst · Bútur 5 af 20

Bókhaldslyklar

Hvernig lykilskráin er byggð upp, hvernig þú leitar og síar, hvað VSK-merkingarnar þýða, hvað aðgerðavalmyndin býður upp á og hvernig nýr lykill er stofnaður.