Birgðabreyting
Hvernig birgðalykillinn er færður í takt við birgðamat kerfisins á valinni dagsetningu: dagsetning og lyklar, kortin fjögur, viðvaranir, tillaga að færslu, sundurliðun matsins og saga keyrslna.
Þar fyrir neðan eru lyklarnir: birgðalykill, birgðabreytingarlykill og mótlykill niðurfærslu.
Birgðabreyting
PayGo er með gjaldfærðar birgðir: innkaup bókast á vörukaup (gjaldalykla) um leið og þau eru skráð, en birgðahreyfingar og reikningar bóka ekkert í fjárhag. Birgðalykillinn (3300 Birgðir) sýnir því aðeins það sem hefur verið fært á hann handvirkt. Birgðabreyting færir hann í takt við birgðamat kerfisins á valinni dagsetningu og bókar mismuninn á móti birgðabreytingarlykli (2150). Þannig sýnir efnahagsreikningur raunverulegt birgðaverðmæti og rekstrarreikningur gjaldfærir aðeins það sem var selt eða notað.
Síðan er á slóðinni Bókhald → Birgðabreyting. Hún ber alltaf saman stöðu lykilsins og mat á völdum degi, ekki hreyfingar. Tíðnin skiptir því ekki máli: keyrsla í lok mánaðar og keyrsla aðeins í árslok skila sömu stöðu í árslok.

Dæmi með tölum
Mánaðarleg keyrsla. Upphafsstaða 3300 þann 1.1. er 10.000.000 kr.
| Keyrsla | Staða 3300 | Mat | Mismunur | Færsla |
|---|---|---|---|---|
| 31.1. | 10.000.000 | 12.450.000 | +2.450.000 | Debet 3300 2.450.000 / Kredit 2150 2.450.000 |
| 28.2. | 12.450.000 | 11.800.000 | −650.000 | Debet 2150 650.000 / Kredit 3300 650.000 |
| 28.2. aftur, eftir bókun | 11.800.000 | 11.800.000 | 0 | Engin færsla |
Árslok með niðurfærslu. Þann 31.12. er matið 12.000.000 kr. en staða 3300 er 11.800.000 kr. Birgðabreytingin bókar Debet 3300 / Kredit 2150 að upphæð 200.000 kr. Bókari vill auk þess færa niður úrelt birgðir um 300.000 kr. og bókar það á mótlykil niðurfærslu (t.d. 3390): Debet 2150 / Kredit 3390. Efnahagur (birgðir) er þá 12.000.000 − 300.000 = 11.700.000 kr., og hreyfing 2150 á árinu er sú sama og birgðir í upphafi að frádregnum birgðum í lok (10,0 − 11,7 m.kr.). Það er einmitt það sem Framtal ber hana saman við.
Dagsetningin er lok dags. Sjálfgefið er síðasti dagur fyrri mánaðar og aðeins er hægt að velja liðinn dag (í gær eða fyrr). Forskoðunin uppfærist þegar dagsetningin breytist. Fyrir árslok er valið 31.12.
Staða (staða birgðalykilsins í bókhaldi á deginum), Birgðamat kerfisins (magn × landað meðalverð allra vara á deginum), Mismunur (með skýringu á því hvort debet fer á birgðalykilinn eða birgðabreytingarlykilinn) og Gæði mats (sjá hér að neðan). Drög sem eru óbókuð eða mótlykill niðurfærslu teljast ekki með í stöðunni. Sé mótlykill notaður (sjálfkrafa 3390 eða lykill valinn í lyklavalinu), eða staða hans ekki 0, birtist líka kort með stöðu mótlykilsins og nettóbirgðum (birgðamat að frádreginni niðurfærslu). Þær tölur eru aðeins til upplýsinga og eru hvorki hluti af mismuninum né færslunni.
Rauð skilaboð efst þýða að ekki er hægt að búa til drög: bókhaldstímabil eða ár dagsetningarinnar er lokað, síðari bókuð birgðabreyting er til (bakfærðu hana fyrst) eða lykil vantar. Lyklarnir eru valdir í lyklavalinu efst á síðunni (Birgðalykill, Birgðabreytingarlykill og Mótlykill niðurfærslu).
Gular viðvaranir benda á atriði sem hafa áhrif á matið (listi hér að neðan). Þær sem krefjast staðfestingar hafa gátreitinn „Ég hef kynnt mér þetta og vil halda áfram", og hann þarf að vera hakaður áður en drög eru búin til.
Smelltu á Búa til drög. Færslan er þá stofnuð sem drög með tveimur línum (sjá „Tillaga að færslu") og sundurliðun birgðamatsins vistast með henni. Sé enginn mismunur verða engin drög til og kerfið segir það.
Endurreikna reiknar drögin upp á nýtt. Gerðu það ef staða birgðalykilsins hefur breyst eftir að drögin urðu til (t.d. handfærsla á 3300 á dagsetningu fyrir eða á deginum). Bókun á úreltum drögum er hafnað með skilaboðunum „Staða lykilsins hefur breyst". Ef mismunurinn er horfinn er drögunum hent. Hafi viðvörun breyst frá því þú staðfestir hana birtir kerfið hana aftur; staðfestu hana til að endurreikna. Viðhengi á gömlu drögunum fylgja nýju drögunum við endurreikning.
Bóka (staðfesting með upphæð og dagsetningu) bókar færsluna á valdan dag. Bókuð birgðabreyting verður ekki breytt, aðeins bakfærð.
Henda drögum eyðir drögunum og dagbókarfærslu þeirra. Það er ekki hægt að afturkalla.
Í listanum Saga er hnappurinn Bakfæra á nýjustu bókuðu keyrslunni. Skráðu ástæðu; bakfærslan fær sömu dagsetningu. Aðeins nýjasta keyrslan má bakfærast. Eftir bakfærslu fer staðan til baka og næsta keyrsla bókar mismuninn aftur. Smelltu á Skoða til að sjá keyrsluna með sundurliðun.
Gæði matsins
Kortið „Gæði mats" sýnir hvaðan birgðamatið kemur. Kerfið mælir birgðaverðmætið sjálfkrafa á miðnætti (kl. 00:05) og geymir sundurliðun á vörustigi með hverri mælingu.
| Merki | Hvað það þýðir | Staðfesting |
|---|---|---|
| Mæling (grænt) | Nákvæm næturmæling á miðnætti við lok dagsins, með sundurliðun á vörustigi. Til fyrir daga frá fyrstu nóttinni eftir að fítusinn var tekinn í notkun. | Ekki krafist |
| Mæling án sundurliðunar (blátt) | Eldri mæling sem geymir aðeins heildartölu. Hreyfingar frá kl. 00:00 til 03:15 næsta dag geta verið taldar með og engin sundurliðun fylgir keyrslunni. | Viðvörun, ekki krafist |
| Áætlun (appelsínugult) | Dagsetning án mælingar. Magn hverrar vöru er rétt (reiknað úr birgðahreyfingum), en kostnaðurinn er meðalverð dagsins í dag, ekki þess dags. Matið getur því vikið mikið frá línuritinu „Þróun birgðaverðmætis" á Birgðaskýrslum. | Krafist |
| Tilvik | Meðferð í matinu |
|---|---|
| Kostnaðarverð | Landað meðalverð: hlaupandi meðalkostnaður × (1 + kostnaðarálag) + sérkostnaðarreitir, eins og á Verðmætamati. Kostnaðarálag er áætlun, ekki raunkostnaður. Sundurliðunin sýnir bæði grunnverð og landað verð. |
| Vörur í mínus | Metnar á 0 og ekki nettaðar á móti öðrum vörum. Viðvörun sýnir fjölda vara, samtölu eininga og áætlað virði til upplýsingar. Það bókast ekki. |
| Vörur án kostnaðarverðs | Metnar á 0, merktar „Án kostnaðar" og krefjast staðfestingar áður en drög eru búin til. Skráðu kostnaðarverð á vörurnar til að þær komi inn í matið. |
| Óvirkar vörur á lager | Teknar með, því þær eru enn á lager. Merktar „Óvirk". |
| Þjónustur | Útilokaðar. |
| Viðvörun | Merking |
|---|---|
| Vörur án kostnaðarverðs | Vörur með magn en án kostnaðar. Krefst staðfestingar. |
| Vörur í mínus | Vörur með neikvætt magn, metnar á 0. |
| Óvirkar vörur með birgðir | Óvirkar vörur á lager sem eru í matinu. |
| Handfærslur á birgðalykli frá síðustu birgðabreytingu | Handfærslur á 3300 sem næsta birgðabreyting jafnar sjálfkrafa út. Krefst staðfestingar. |
| Talningar bókaðar eftir dagsetningu | Talning með talningardag fyrir eða á valdri dagsetningu en bókuð síðar. |
| Hreyfingar eða kostnaður eftir skurðpunkt | Hreyfing eða innkaup urðu eftir lok dags áður en mælingin var tekin. |
| Mæling án sundurliðunar / Áætlað mat | Sjá „Gæði matsins". Áætlað mat krefst staðfestingar. |
| Frávik frá birgðaverðmætissögu | Matið víkur frá mældu gildi línuritsins fyrir sama dag. |
| Fyrsta birgðabreyting | Sjá „Fyrsta birgðabreyting" hér að neðan. |
Drögin í Dagbók
Drögin sjást í Dagbók með öðrum óbókuðum færslum, en þeim er stýrt frá síðunni Birgðabreyting. Í Dagbók er hnappurinn „Opna birgðabreytingu" í stað þess að breyta, eyða eða bóka þau; kerfið hafnar þeim aðgerðum líka ef þær eru reyndar beint. Birgðabreytingarfærslur verða aðeins til við bókun birgðabreytingar, ekki handvirkt.
| Lykill | Sjálfgefið | Hlutverk |
|---|---|---|
| Birgðalykill | 3300 Birgðir | Eignalykill sem sýnir birgðir í efnahag. Staða hans er borin saman við matið. |
| Birgðabreytingarlykill | 2150 Birgðabreyting | Mótlykill birgðabreytingarinnar í rekstri. Hreyfing hans á árinu á að jafngilda birgðum í upphafi að frádregnum birgðum í lok. |
| Mótlykill niðurfærslu (valkvæður) | 3390 Niðurfærsla birgða | Eignalykill fyrir niðurfærslu birgða (úreldingu eða lægra söluvirði). Lykill 3390 Niðurfærsla birgða er í lyklaramma allra fyrirtækja og er notaður sjálfkrafa sem mótlykill niðurfærslu nema annar lykill sé valinn í reitnum Mótlykill niðurfærslu í lyklavalinu. Ef 3390 er notaður til annars (t.d. sem gjaldalykill) er hann ekki notaður sem mótlykill og forskoðunin sýnir ábendingu um það: veldu þá mótlykilinn í lyklavalinu. Sé 3390 óvirkur eða ekki til í Bókhaldslyklum er enginn mótlykill, og það hindrar ekki bókun. |
Lyklarnir eru valdir í lyklavalinu efst á síðunni (Birgðalykill, Birgðabreytingarlykill og Mótlykill niðurfærslu) og vistaðir með „Vista sem sjálfgefið". Vistun krefst heimildar til stillinga; valdir lyklar gilda í forskoðun þegar þeir hafa verið vistaðir. Lykla sem eru í notkun á birgðabreytingu er ekki hægt að eyða eða óvirkja.
| Aðgerð | Heimild |
|---|---|
| Opna síðuna, forskoða, skoða sögu og keyrslur, flytja út sundurliðun | Bókhald: lestur |
| Búa til drög, endurreikna, bóka, henda og bakfæra | Bókhald: skrif |
| Vista lykla sem sjálfgefna | Stillingaheimild |
Tenging við Birgðaskýrslur
Á flipanum Verðmætamat í Vörur & lager → Birgðaskýrslur er hnappurinn „Bóka í fjárhag" fyrir notendur með bókhaldsheimild til skrifa. Hann opnar þessa síðu með síðasta degi fyrri mánaðar sem dagsetningu, og þú getur breytt henni.
