PayGoHandbókNámskeið
Kafli: BókhaldBútur 16 af 202:16

Framtal

Skattframtal rekstraraðila (RSK 1.04) reiknað beint úr bókhaldinu — ársval, staða, flipar, hvernig reitirnir fyllast, villuprófun og hvað þarf áður en framtalinu er skilað til Skattsins.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
Skref 15 af 191:46 / 2:16

Á flipanum Skil geturðu forskoðað XML-skrána og séð fyrri sendingar. Veflykillinn er alltaf falinn.

Hraði

Framtal

Skattframtal rekstraraðila (RSK 1.04) reiknað úr bókhaldinu, villuprófað og sent til Skattsins
Framtalssíðan með stöðumerki, fjölda villna og ábendinga, ársvali, hnöppunum Villuprófa og Skila til Skattsins og flipunum Yfirlit og villur, Reitir, Forsíða, Eigið fé, Sundurliðun og Skil
Stækka
Framtal: staða, villur og ábendingar efst og ársval, „Villuprófa" og „Skila til Skattsins" til hægri. Flipinn „Yfirlit og villur" sýnir villur sem stöðva skil, með hnöppum á reitina. Í sýnishornsfyrirtæki er skilahnappurinn óvirkur

Síðan Bókhald → Framtal reiknar skattframtal rekstraraðila (RSK 1.04) beint úr bókhaldinu, villuprófar það með reglum Skattsins og eigin athugunum PayGo og sendir það um DataDock-þjónustu Skattsins. Aðeins liðin tekjuár eru í boði í ársvalinu og nýjasta árið er valið sjálfkrafa. Sé ekkert liðið ár með færslum stendur „Engin liðin tekjuár" í ársvalinu. Framtal tekjuárs er sent sem framtal næsta árs (tekjuár 2025 → framtalsár 2026). Efst sést staða framtalsins og fjöldi villna og ábendinga.

Síðan krefst lesheimildar í bókhaldi (accounting:read); með henni má líka villuprófa og forskoða eða sækja XML. Til að breyta reitum, forsíðu og sundurliðun og til að skila þarf skrifheimild (accounting:write).

StaðaMerking
DrögFramtalið hefur villur sem stöðva skil
Tilbúið til skilaEngar villur; ábendingar geta verið til staðar
SkilaðDataDock tók við framtalinu og það er læst — reitum, forsíðu og sundurliðun er ekki hægt að breyta
Skil mistókustFyrsta sending til DataDock mistókst. Villuboðin birtast efst á síðunni og í sendingasögunni á flipanum „Skil". Framtalið er áfram opið; lagaðu það og skilaðu aftur
Í spilun
FlipiEfni
Yfirlit og villur„Villur — stöðva skil" og „Ábendingar", með hnöppum fyrir reitina sem hvert atriði varðar — smelltu á reitanúmer til að opna reitinn á flipanum „Reitir". Fellilistinn „RSK prófar jafnframt með eigin gögnum" telur upp reglur sem aðeins Skatturinn getur prófað. Neðst: „Gögn sem framtalið byggir á" — VSK-tímabil notuð, VSK-tímabil vantar, staðgreiðslumánuðir vantar og „Ár lokað"
ReitirAllir reitir framtalsins eftir köflum, með dálkunum Reitur, Heiti, Bókhald og Gildi. „Bókhald" er upphæðin sem bókhaldslyklarnir skila í reitinn; „Gildi" er það sem fer í framtalið. Reiknaðir reitir eru merktir „REIKNAÐ". Handfærða reiti má yfirskrifa; yfirskrifaður reitur er merktur „Yfirskrift" og „hreinsa" fjarlægir yfirskriftina. Opnaðu reit til að sjá hvaða lyklar mynda upphæðina og með hvaða VSK-hlutfalli; línur án VSK-hlutfalls eru merktar „Óskipt". Smelltu á upphæðir til að leggja þær saman (samtalan birtist við „Valið"). „Fela núll-reiti" er sjálfgefið á. Séu hreyfingar á birgðabreytingarlyklum á árinu birtast þeir efst undir „Birgðabreyting fer ekki á reit", með samanburði við birgðir í upphafi að frádregnum birgðum í lok
ForsíðaNafn rekstraraðila, heimili og póstnúmer 31. des, sveitarfélagsnúmer, aðal- og leiðrétt ÍSAT-númer, aðal VSK-númer, hver vann framtalið, áritun ársreiknings, hvort ársreikningur er áritaður af skoðunarmanni, hvort fyrirtækið er skattskylt til fjársýsluskatts, fjöldi ársverka, athugasemdir (almennar og vegna VSK) og staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts af arði og af vöxtum. Nafn, heimili, póstnúmer, VSK-númer og ÍSAT eru forfyllt úr upplýsingum fyrirtækisins þegar framtal ársins er fyrst opnað. Vistað með „Vista forsíðu"
Eigið féEin lína fyrir hvern eiginfjárflokk: „Upphaf (bókhald)", „Lok skv. bókhaldi", „Lok skv. yfirliti" og „Mismunur". Flokkurinn er myndaður úr lyklum sem bera upphafsreit flokksins sem RSK-lykil. Hafi árinu ekki verið lokað er rekstrarniðurstaða ársins talin með óráðstöfuðu eigin fé. Ef mismunur er til staðar segir merkið í hvaða reit á að skrá hann
SundurliðunLínur fyrir reiti sem krefjast sundurliðunar (t.d. aðrar tekjur, ófrádráttarbær kostnaður, aðrar leiðréttingar og breytingar á eigin fé). Hver lína fær reit, upphæð og skýringu (a.m.k. 6 stafir); reitir 1030 og 1040 nota í staðinn hakreiti fyrir tegund undanþeginnar veltu eða starfsemi. Vistað með „Vista sundurliðun"
Skil„Forskoða XML" og „Sækja XML" sýna skrána eins og hún yrði send, en veflykillinn er falinn (***). Taflan sýnir fyrri sendingar með dagsetningu, umhverfi, stöðu og skilaboðum; línu með villum má opna og „Skoða XML" sýnir hvað var sent. Á skiluðu framtali er hnappurinn „Senda aftur"

Hvernig reitirnir fyllast

  • Hver bókhaldslykill getur borið allt að þrjá RSK-lykla („RSK lyklar" í bókhaldslyklum): án VSK, 11 % og 24 %. Staða lykilsins fer í reitinn sem RSK-lykillinn vísar á.
  • Reiturinn ræður hvaða tala er lesin: rekstrarreitir fá hreyfingu ársins (án lokafærslu), eigna- og skuldareitir lokastöðu 31. desember og upphafsreitir (t.d. eigið fé í ársbyrjun) upphafsstöðu ársins.
  • Beri tekju- eða gjaldalykill fleiri en einn RSK-lykil skiptist hreyfingin eftir VSK-hlutfalli færslulínanna. Línur án VSK-hlutfalls fara á „án VSK"-reitinn og eru merktar „Óskipt".
  • Birgðabreytingarlyklar (2150 og 2160) fara á engan reit, óháð RSK-lyklum þeirra. Vörunotkun (reitur 3590) reiknast úr vörukaupum ásamt birgðum í upphafi (reitir 3005/3010) og lok árs (3015/3020); færi birgðabreytingin líka á vörukaupareit teldist hún tvisvar. Birgðir í upphafi eru skráðar með yfirskrift og birgðir í lok koma úr birgðalyklinum (t.d. 3300 á reit 5120).
  • Reiknist ógreiddur virðisaukaskattur (reitur 6825) neikvæður er hann núllaður og upphæðin færð sem inneign virðisaukaskatts (reitur 5145), og öfugt.
  • Upphæðir eru námundaðar að heilum krónum.
  • Velta og VSK „skv. VSK-skýrslum" (reitir 0557–0590) er summa þeirra VSK-tímabila ársins sem skilað var úr PayGo, reiknuð úr bókhaldinu. Hafi tímabilum verið skilað utan PayGo má yfirskrifa þessa reiti með tölunum sem skilað var.
  • Stofn tryggingagjalds eftir mánuðum (reitir 9661–9672) kemur úr heppnuðum staðgreiðsluskilum hvers mánaðar.
  • Sundurliðunarreitir fá gildi sitt eingöngu úr línum á flipanum „Sundurliðun". Sumir þeirra (t.d. 1030, 1040, 1060 og 1070) geta sýnt upphæð í dálkinum „Bókhald"; hún fer ekki sjálfkrafa í framtalið heldur þarf að skrá hana í sundurliðunarlínur, annars stemmir hagnaðurinn (reitur 3990) ekki.
  • Yfirskrifaður reitur fylgir ekki lengur bókhaldinu fyrr en yfirskriftin er hreinsuð. Reiknaða reiti og sundurliðunarreiti er ekki hægt að yfirskrifa.
1
Veldu tekjuár

Veldu árið í fellilistanum efst. Framtalið er reiknað úr bókhaldi ársins, VSK-skýrslum sem skilað var úr PayGo og heppnuðum staðgreiðsluskilum. Á opnu framtali eru tölurnar reiknaðar upp á nýtt í hvert sinn sem síðan er opnuð; skilað framtal sýnir tölurnar sem voru sendar.

2
Fylltu út forsíðu

Á flipanum „Forsíða" þarf a.m.k. að tilgreina hver vann framtalið, áritun ársreiknings og fjölda ársverka — annars stöðvar villa skilin.

3
Lagaðu villur

Smelltu á „Villuprófa". Villur stöðva skil og eru lagaðar í bókhaldinu (t.d. „RSK lyklar" á bókhaldslyklum), með yfirskrift, sundurliðun eða á forsíðu. Smelltu á reitanúmer við villu til að fara í reitinn.

4
Yfirfarðu ábendingar

Ábendingar stöðva ekki skil. Þegar engar villur eru eftir birtist gátreiturinn „Ég hef yfirfarið ábendingar"; haka þarf við hann áður en hnappurinn „Skila til Skattsins" verður virkur.

5
Skilaðu

Smelltu á „Skila til Skattsins" og staðfestu með „Skila". Staðfestingarglugginn segir hvort sent er á raunumhverfi eða prófunarumhverfi DataDock. Þegar DataDock tekur við framtalinu fær það stöðuna „Skilað" og er læst. Mistakist sendingin birtast villuboðin efst á síðunni.

Hvað er sent til Skattsins

  • Aðeins „Skila til Skattsins" og „Senda aftur" senda eitthvað. Villuprófun, forskoðun og niðurhal XML senda ekkert, og framtalið bókar ekkert í fjárhag.
  • Sent er XML-skjal skv. RSK 1.04 með reitum framtalsins, forsíðu og sundurliðun, ásamt kennitölu fyrirtækisins og veflykli framteljanda. Það fer um DataDock á umhverfið sem valið er í stillingunum (Prófun: vefurp.rsk.is, Raunumhverfi: vefur.rsk.is); sé ekkert valið er sent á prófunarumhverfið.
  • Kerfið hafnar skilum ef villur eru til staðar, ef ábendingar hafa ekki verið staðfestar eða ef DataDock-aðgangsgögn vantar, og segir þá hvað vantar.
  • Hver sending er skráð í sendingasöguna á flipanum „Skil", líka misheppnaðar, með XML-inu sem var sent (veflykill falinn).
  • Skilað framtal er fryst. Læsingin nær til reita, forsíðu og sundurliðunar, og síðan sýnir nákvæmlega tölurnar sem voru sendar, líka þótt bókað sé á árið síðar; „Forskoða XML" sýnir sömuleiðis það sem var sent. Hafi bókhald tekjuársins breyst eftir skil birtist viðvörunin „Bókhaldið hefur breyst eftir skil" efst á síðunni með þeim reitum sem yrðu öðruvísi núna (Sent, Núna og Mismunur). Sé ekkert breytt stendur að tölurnar séu eins og þeim var skilað. Breytingin fer ekki sjálfkrafa til Skattsins: til að senda leiðréttingu þarf að opna framtalið aftur („Opna aftur" á flipanum „Skil"), sem reiknar tölurnar upp á nýtt úr bókhaldinu, og skila því á ný.
  • Senda aftur sendir sömu tölur og síðast voru sendar — ekki breytingar í bókhaldinu eftir skil. Mistakist endursending helst framtalið „Skilað" og læst, því fyrri skilin standa enn hjá Skattinum.
  • Í sýnishornsfyrirtæki eru „Skila til Skattsins", „Senda aftur" og „Opna aftur" óvirkir.

Tengsl við aðrar einingar

  • Bókhaldslyklar: Hver lykill getur borið RSK-lykil fyrir hvert VSK-hlutfall (án VSK, 11 % og 24 %) í „RSK lyklar". Staða lykla eftir RSK-lyklum myndar tölurnar í dálkinum „Bókhald". Rangur eða vantandi RSK-lykill er algengasta ástæða villna.
  • VSK: Reitir 0557–0590 eru sóttir í VSK-skýrslur ársins sem skilað var úr PayGo.
  • Staðgreiðsla: Mánaðarstofn tryggingagjalds kemur úr heppnuðum staðgreiðsluskilum.
  • Ársreikningur og bókhaldstímabil: Hagnaðarreiturinn 3990 er borinn saman við rekstrarreikninginn. Ábending birtist þar til lokafærsla ársins hefur verið bókuð.
  • Upphafsstöður: Eigið fé í upphafi árs er staða bókhaldsins, að meðtöldum upphafsstöðum.
  • Framtalið bókar ekkert í fjárhag — það les aðeins úr bókhaldinu.
Næst · Bútur 17 af 20

Upphafsstöður

Byrjunarstöður bókhaldsins og árslok — handvirk skráning upphafsstaðna með viðskiptakröfum og -skuldum, CSV-innlestur, lyklar í erlendri mynt, og sjálfvirk árslokayfirfærsla milli reikningsára.