PayGoHandbókNámskeið
Kafli: LaunBútur 6 af 142:20

Fjarvistir

Hvernig orlof, veikindi og aðrar fjarvistir eru skráðar og afgreiddar, hvað talnaspjöldin og fliparnir sýna, og hvernig orlofsárið og áramótakeyrslan virka.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
0:02 / 2:20

Fjarvistir

Hraði

Fjarvistir

Skráðu fjarvistir, afgreiddu beiðnir og fylgstu með orlofs- og veikindastöðu á orlofsárinu

Fjarvistir og orlof heldur utan um orlof, veikindi og aðrar fjarvistir starfsmanna á einum stað. Þú skráir fjarvist, hún fer í samþykktarferli, og við samþykki uppfærir kerfið orlofs- og veikindastöðu starfsmannsins svo hún nýtist rétt við launavinnslu. Síðuna finnur þú undir Laun → Fjarvistir.

Orlofsár, ekki almanaksár. Orlofsstaðan er haldin per orlofsár, sem nær frá 1. maí til 30. apríl. Undir fyrirsögninni stendur valið orlofsár, t.d. „Orlofsár 2026/2027 (1. maí–30. apríl)". Í ársvalinu efst til hægri eru fyrra, núverandi og næsta orlofsár; sjálfgefið er orlofsárið sem dagurinn í dag fellur í. Talnaspjöldin og orlofsstaðan í flipanum Starfsmenn miðast við valið orlofsár, og listarnir sýna fjarvistir sem ná inn á það. Orlof sem nær yfir 30. apríl / 1. maí skiptist á milli orlofsáranna eftir vinnudögum og hvor hluti dregst af stöðu síns árs. Hvernig orlofsdagar ávinnast við lokun launakeyrslu og verða orlofsréttur næsta orlofsárs er lýst á síðunni Orlof og fyrirframgreiðslur.

Fjarvistir og orlof
Stækka
Valið orlofsár, hnappurinn Áramótakeyrsla orlofsárs, talnaspjöldin og flipinn Fjarvistir

Aðgerðir efst á síðu. Til hægri í hausnum eru fjórar stýringar: ársvalið (orlofsár), hnappurinn Áramótakeyrsla orlofsárs (sjá að neðan), Endurhlaða sem sækir gögnin upp á nýtt, og aðalhnappurinn Skrá fjarvíst sem opnar skráningargluggann.

TalnaspjaldMerking
HeildarorlofsdagarSamtals orlofsréttur (dálkurinn „Orlofsdagar") allra starfsmanna á valda orlofsárinu — yfirfærðir dagar teljast ekki hér heldur inni í „Eftir"
NotaðirSamtals samþykktir orlofsdagar á orlofsárinu — sýndir í gulum lit
EftirSamtals orlofsdagar sem eftir eru (réttur + yfirfærðir − notaðir) — sýndir í grænum lit
Veikindadagar í árSamtals samþykktir veikindadagar á valda orlofsárinu (þrátt fyrir heitið ekki almanaksárinu) — sýndir í rauðum lit

Flipinn „Starfsmenn". Hér er hver virkur starfsmaður í einni línu með orlofs- og veikindastöðu sinni á valda orlofsárinu. Hafi starfsmaður enga orlofsröð fyrir árið (t.d. næsta orlofsár, áður en áramótakeyrslan hefur stofnað hana) stendur „-" í stöðudálkunum. Þú getur raðað eftir nafni og skráð fjarvist beint á starfsmann með hnappnum í aðgerðadálknum, sem forfyllir starfsmanninn í skráningarglugganum.

DálkurLýsing
NafnNafn starfsmanns — hægt að raða eftir
StarfsheitiStarfsheiti starfsmanns, annars „-"
OrlofsdagarOrlofsréttur starfsmannsins á orlofsárinu, án yfirfærðra daga
Áunnið á árinuOrlofsdagar sem hafa áunnist á orlofsárinu við lokun launakeyrslna — þeir verða orlofsréttur næsta orlofsárs
Uppruni réttarHvaðan orlofsrétturinn kemur: Ávinnsla, Sjálfgefið eða Handvirkt (sjá töfluna að neðan)
NotaðirSamþykktir orlofsdagar á orlofsárinu — gulur litur ef stærri en 0
EftirRéttur + yfirfærðir dagar − notaðir — rauðir ef 0 eða minna, gulir ef 5 eða minna, annars grænir
VeikindadagarSamþykktir veikindadagar á valda orlofsárinu
VeikindarétturEftirstöðvar og heildarréttur, „eftir / réttur", miðað við síðustu 12 mánuði til dagsins í dag — óháð völdu orlofsári (sjá „Veikindaréttur" að neðan)
AðgerðirHnappurinn „Skrá fjarvíst" sem opnar skráningargluggann með starfsmanninn forvalinn
Uppruni réttarLiturMerking
ÁvinnslaGræntRétturinn eru orlofsdagarnir sem ávannst á fyrra orlofsári; áramótakeyrslan setur hann
SjálfgefiðGráttEngin ávinnsla og engin lokuð launakeyrsla á fyrra orlofsári (t.d. nýr starfsmaður), eða röðin stofnaðist sjálfkrafa við fyrstu samþykktu fjarvist ársins. Rétturinn er dagafjöldinn sem orlofsprósenta starfsmannsins svarar til (sjá Orlof og fyrirframgreiðslur), annars 24 dagar. Áramótakeyrslan má skipta sjálfgefinni röð út
HandvirktBláttRétturinn var skráður handvirkt; áramótakeyrslan lætur hann óhreyfðan

Flipinn „Fjarvistir". Þetta er sjálfgefinn flipi og sýnir allar skráðar fjarvistir sem ná inn á valda orlofsárið, nýjustu efst eftir upphafsdagsetningu. Þú getur síað eftir tegund og stöðu (smelltu á síutáknið í dálkhaus) og raðað eftir tímabili. Neðst má stilla fjölda lína á síðu (15, 30, 50 eða 100).

DálkurLýsing
StarfsmaðurNafn starfsmannsins sem fjarveran tilheyrir
TegundLitamerki með tegund fjarveru — hægt að sía
TímabilFrá- og til-dagsetning (dd.mm.áááá) ásamt fjölda almanaksdaga (frá–til, að báðum meðtöldum) — þessi tala er ekki sami fjöldi og vinnudagarnir sem dregnir eru af réttindum við samþykki; hægt að raða
StaðaLitamerki með stöðu beiðninnar — hægt að sía
AthugasemdirAthugasemdir sem skráðar voru (stytt ef langar)
StofnaðDagsetning þegar fjarveran var skráð
AðgerðirHnappurinn „Breyta í veikindi" í línum með samþykktu orlofi (sjá að neðan); annars tómt

Flipinn „Beiðnir í bið". Hér birtast eingöngu fjarvistir valda orlofsársins í stöðunni Í bið, sem bíða afgreiðslu. Fjöldi þeirra sést sem merki (badge) á flipanum. Dálkarnir eru þeir sömu og í „Fjarvistir" (án „Stofnað") en aðgerðadálkurinn hefur hnappana Samþykkja og Hafna.

1
Opnaðu skráningargluggann

Smelltu á „Skrá fjarvíst" efst til hægri, eða á „Skrá fjarvíst" í línu starfsmanns í flipanum „Starfsmenn" (þá er starfsmaðurinn forvalinn).

2
Veldu starfsmann

Reiturinn „Starfsmaður" er skylda. Hægt er að leita eftir nafni í fellilistanum. Villuboðin „Starfsmaður er skyldur" birtast ef reiturinn er tómur.

3
Veldu tegund fjarvista

Reiturinn „Tegund fjarvista" er skylda: Orlof, Veikindi, Veikindi barns, Fæðingarorlof (móðir/faðir), Ólaunað leyfi eða Annað. Villuboðin „Tegund er skylda" birtast ef ekkert er valið.

4
Veldu tímabil

Reiturinn „Tímabil" er skylda — veldu frá- og til-dagsetningu (á forminu dd.mm.áááá). Kerfið reiknar sjálft fjölda vinnudaga á tímabilinu (sjá „Fjöldi daga" að neðan).

5
Skráðu athugasemdir (valkvætt)

Reiturinn „Athugasemdir" er valkvæmur — hér má skrá skýringu á fjarverunni.

6
Vistaðu

Smelltu á „Vista". Hnappurinn verður grænn og sýnir „Vistað" og skilaboðin „Fjarvist skráð" birtast. Nýja beiðnin fær stöðuna „Í bið". Fari orlofsbeiðnir í bið samanlagt umfram orlofsstöðuna birtist viðvörunin „Athugið: orlofsstaða" efst á síðunni, og fari veikindi umfram veikindarétt birtist „Athugið: veikindaréttur" — beiðnin er samt skráð í báðum tilvikum.

ReiturLýsingSkylda
StarfsmaðurStarfsmaðurinn sem fjarveran tilheyrir (leitanlegur fellilisti)Já
Tegund fjarvistaTegund fjarverunnar (orlof, veikindi o.s.frv.)Já
TímabilFrá- og til-dagsetning fjarverunnarJá
AthugasemdirFrjáls skýringartexti um fjarverunaNei
1
Farðu í „Beiðnir í bið"

Opnaðu flipann „Beiðnir í bið" til að sjá fjarvistir sem bíða afgreiðslu.

2
Samþykktu beiðni

Smelltu á „Samþykkja". Kerfið athugar orlofsstöðuna aftur; dugi hún ekki fást villuboðin „Ófullnægjandi orlofsdagar…" og beiðnin helst í bið. Annars verður staðan „Samþykkt", skilaboðin „Beiðni samþykkt" birtast og dagarnir færast á stöðu starfsmannsins (orlof hækkar „Notaðir" og lækkar „Eftir", veikindi hækka „Veikindadagar").

3
Eða hafnaðu beiðni

Smelltu á „Hafna" til að opna gluggann „Hafna beiðni". Skráðu ástæðu í reitinn „Ástæða höfnunar" (skylda) og smelltu á „Hafna". Staðan verður „Hafnað" og skilaboðin „Beiðni hafnað" birtast.

Veikindi í orlofi — „Breyta í veikindi". Veikist starfsmaður í samþykktu orlofi smellirðu á Breyta í veikindi í línu orlofsins í flipanum Fjarvistir. Glugginn „Breyta orlofi í veikindi" hefur reitina Tímabil (valfrjálst), sem leyfir aðeins daga innan fjarverunnar, og Athugasemd; sé ekkert tímabil valið breytist öll fjarveran. Þegar þú smellir á Breyta í veikindi verður valinn hluti að samþykktum veikindum, orlofshlutar fyrir og eftir hann haldast sem samþykkt orlof, og orlofsdögunum sem breyttust er skilað á orlofsstöðuna. Tímabili án vinnudags er hafnað („Enginn vinnudagur er á völdu tímabili."), og fari veikindin umfram veikindarétt birtist viðvörunin „Athugið: veikindaréttur" — breytingin er samt gerð. Þú getur ekki breytt eigin orlofi í veikindi.

Veikindaréttur. Dálkurinn Veikindaréttur sýnir eftirstöðvar og heildarrétt starfsmannsins. Rétturinn fer eftir þrepi sem ræðst af starfsaldri (frá upphafsdegi ráðningar), og frá honum dragast samþykktir veikindadagar síðustu 12 mánaða. Þrepin eru stillingaratriði fyrirtækisins. Veikindarétturinn hindrar aldrei skráningu: fari veikindabeiðni umfram eftirstöðvarnar birtist viðvörun, en beiðnin er skráð og má samþykkja hana.

Tegund fjarveruLýsing
OrlofOrlofsdagar starfsmanns — dregnir af orlofsstöðu orlofsársins við samþykki. Samþykkt orlof innan launatímabils gerir upp orlofsskuldbindingu hjá starfsmönnum á aðferðinni Safna (sjá Orlof og fyrirframgreiðslur)
VeikindiVeikindadagar starfsmanns — teljast til veikindadaga orlofsársins og dragast af veikindarétti
Veikindi barnsFjarvera vegna veikinda barns
Fæðingarorlof (móðir)Fæðingarorlof móður
Fæðingarorlof (faðir)Fæðingarorlof föður
Ólaunað leyfiLeyfi án launa — skerðir ávinnslu orlofsdaga hlutfallslega þegar launakeyrslu tímabilsins er lokað
AnnaðAðrar fjarvistir
Staða fjarveruLiturMerking
Í biðBlátt (í vinnslu)Beiðni skráð, bíður samþykkis
SamþykktGræntFjarvera samþykkt og dregin af réttindum
HafnaðRauttFjarveru hafnað með ástæðu
AfturkallaðGráttFjarvera afturkölluð

Áramótakeyrsla orlofsárs. Við upphaf orlofsárs stofnar áramótakeyrslan orlofsraðir nýja ársins: rétturinn verður orlofsdagarnir sem ávannst á liðnu orlofsári, og ónotaðir dagar flytjast yfir ef fyrirtækið leyfir það (sjálfgefið já). Hún keyrir sjálfkrafa 1. maí, svo yfirleitt þarf ekki að gera neitt. Hnappurinn Áramótakeyrsla orlofsárs opnar glugga þar sem má keyra hana handvirkt. Glugginn sýnir fyrst forskoðun sem vistar ekkert: í „Keyra yfir frá:" eru aðeins liðin orlofsár (núverandi orlofsár er ekki í boði), og þar sést hvaða raðir verða stofnaðar (Réttur, Uppruni, Yfirfærð), leiðrétt orlofsuppsöfnun og hverjum er sleppt og af hverju. Keyra er óvirkur ef engar raðir eru til að stofna, krefst staðfestingar („Keyra áramótakeyrslu?"), er skráð í aðgerðaskrá og stofnar aldrei sömu röð tvisvar. Nánari lýsing er á síðunni Orlof og fyrirframgreiðslur, í kaflanum „Orlofsdagar, orlofsár og áramótakeyrsla".

AðgerðRéttindi sem þarf
Skoða lista, orlofsstöðu og forskoðun áramótakeyrslupayroll:read
Skrá fjarvist, samþykkja, hafna, breyta orlofi í veikindi og keyra áramótakeyrslupayroll:write
Næst · Bútur 7 af 14

Dagatal fjarvista

Fjögurra mánaða yfirlit yfir hver er fjarverandi hvenær — litir, staða, hver sér hvað og hvernig flett er milli mánaða.