PayGoHandbókNámskeið
Kafli: Vörur og lagerBútur 9 af 112:36

Talningar

Hvernig þú telur raunbirgðir í vöruhúsi, berð þær saman við kerfið og leiðréttir birgðirnar með talningu.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
Skref 13 af 221:31 / 2:36

Þegar allt er komið inn smellirðu á Hefja talningu. Þá er kerfisstaðan endurhlaðin og ekki lengur hægt að bæta við vörum.

Hraði

Birgðatalningar

Framkvæmdu birgðatalningar og samræmdu bókfærðar birgðir við rauntölur

Birgðatalningar gera þér kleift að telja raunverulegar birgðir í vöruhúsi og bera saman við þá stöðu sem kerfið heldur utan um. Þegar talning er samþykkt og bókuð leiðréttast birgðirnar sjálfkrafa með birgðahreyfingum sem jafna kerfisstöðuna við það sem raunverulega var talið. Hver talning nær aðeins yfir eitt vöruhús — bæði kerfisstaðan sem borin er saman og leiðréttingarnar sem verða til miðast við það vöruhús sem valið er þegar talningin er stofnuð.

Hvar finn ég þetta? Vörur & lager → Talningar. Yfirlitssíðan sýnir allar talningar fyrirtækisins og hnappinn „Ný talning" til að stofna nýja. Hver talning fær sjálfvirkt talningarnúmer á forminu IC-2026-00001 (IC + ártal + hlaupandi númer).

Listi yfir birgðatalningar
Stækka
Birgðatalningar með tegund, stöðu og dagsetningu

Yfirlitssíðan

Efst á síðunni eru tveir hnappar: „Endurhlaða" sækir listann að nýju og „Ný talning" opnar gluggann til að stofna talningu (sjálfgefna vöruhúsið er forvalið svo algengasta tilvikið sé einn smellur). Taflan sýnir eina línu fyrir hverja talningu, 20 á síðu sjálfgefið (hægt að velja 10, 20, 50 eða 100).

Fyrir ofan töfluna er leitarreiturinn „Leita að vöru í talningum". Veldu vöru og þá birtast aðeins talningar sem innihalda hana, ásamt fjölda þeirra (t.d. „3 talningar innihalda völdu vöruna"). Hreinsaðu reitinn til að sjá allar talningar aftur. Þetta er þægilegt til að rekja hvenær tiltekin vara var síðast talin.

ReiturLýsingSkylda
NúmerTalningarnúmer (t.d. IC-2026-00001) — smelltu á það til að opna talningunaSjálfvirkt
DagsetningDagsetning talningar á forminu DD.MM.ÁÁÁÁJá
VöruhúsVöruhúsið sem talið er (kóði - heiti), eða — ef ekkertJá
LýsingFrjáls lýsing talningar, t.d. „Áramóta talning 2025"Nei
TegundFull talning, Reglubundin eða StikkprófJá
AðferðMeð stöðu eða BlindJá
StaðaLitamerkt staða talningar í vinnsluferlinuSjálfvirkt
LínurFjöldi vörulína í talningunniSjálfvirkt
StofnaðDagsetning þegar talningin var stofnuðSjálfvirkt

Aftast í hverri línu er aðgerðahnappur sem breytist eftir stöðu talningarinnar og ber þig beint á réttan stað í ferlinu. Ef talning er í stöðunni Drög birtist einnig rauður ruslahnappur til að eyða henni.

StaðaAðgerðahnappurAðgerð
DrögOpnaOpnar talninguna til að bæta við vörum
Í vinnsluTeljaHeldur áfram með talninguna
LokiðSamþykkjaFer í yfirferð og samþykki (gulur hnappur)
SamþykktBókaFer í bókun leiðréttinga (grænn hnappur)
Bókað / BakfærtSkoðaOpnar talninguna til skoðunar

Stofna nýja talningu

1
Opna gluggann

Smelltu á „Ný talning" efst til hægri. Glugginn „Ný birgðatalning" opnast.

2
Fylla út reitina

Veldu dagsetningu talningar, vöruhús, valfrjálsa lýsingu, tegund talningar, aðferð og valfrjálsar athugasemdir. Sjálfgefið er Full talning + Með stöðu og dagsetning dagsins í dag.

3
Stofna

Smelltu á „Stofna talningu". Talningin er búin til í stöðunni Drög og þú ert borin(n) beint inn á talningarsíðuna til að bæta við vörum.

ReiturLýsingSkylda
Dagsetning talningarDagsetning sem talningin miðast viðJá
VöruhúsVöruhúsið sem á að telja — kerfisstaða og leiðréttingar miðast eingöngu við það. Aðeins virk vöruhús eru í boðiJá
LýsingFrjáls texti til að auðkenna talningunaNei
Tegund talningarFull talning, Reglubundin eða StikkprófJá
AðferðMeð stöðu (kerfisstaða sýnd) eða Blind (kerfisstaða falin)Já
AthugasemdirFrjálsar athugasemdir um talningunaNei

Tegundir talninga

TegundLýsing
Full talningAllar vörur eru taldar
ReglubundinHluti af vörum í hvert sinn (t.d. hávirðar vörur taldar oftar)
StikkprófHandvaldar vörur til stikkprófunar

Tegundin er fyrst og fremst til flokkunar og skýrslugerðar — hún takmarkar ekki sjálfkrafa hvaða vörur eru í talningunni. Þú ræður sjálf(ur) hvaða vörur bætast við í næsta skrefi.

Aðferðir

AðferðLýsing
Með stöðuKerfisbókfærð staða er sýnd við talningu
BlindKerfisstaða er falin á meðan talið er (óhlutdræg talning)

Bæta við vörum

Meðan talning er í stöðunni Drög bætir þú við vörum með hnappnum „Bæta við vörum". Glugginn „Bæta við vörum" býður upp á fjóra máta til að velja vörur. Aðeins vörur með birgðarakningu (tegund vöru „Vara"/„Efnisleg vara") koma til greina — þjónustur eru ekki taldar. Þegar vörur bætast við er kerfisstaða hverrar línu sótt úr birgðum þess vöruhúss sem talningin nær yfir (0 ef varan á enga stöðu þar).

MátiLýsing
Bæta við öllum vörumBætir öllum virkum birgðarakningarvörum við talninguna
Bæta við eftir vöruflokkiVelur vöruflokk í tré — bætir öllum vörum flokksins og undirflokka hans
Bæta við eftir birgjaVelur birgja og bætir öllum vörum hans, eða handvöldu úrvali frá honum
Velja vörur handvirktLeitar að og velur einstakar vörur (leitarorð sýnir vörunúmer, heiti og lagerstöðu)
1
Velja máta

Veldu efst í glugganum hvernig þú vilt velja vörur: allar, eftir vöruflokki, eftir birgja eða handvirkt.

2
Velja vörur

Eftir mátanum velur þú vöruflokk í tré, birgja (og eftir atvikum stakar vörur með rofanum „Bæta við öllum vörum frá þessum birgja"), eða leitar að stökum vörum. Í „allar" birtist upplýsingatilkynning um að aðeins birgðarakningarvörur bætist við.

3
Bæta við

Smelltu á „Bæta við". Vörur sem eru þegar í talningunni eru sjálfkrafa síaðar frá svo engin lína tvöfaldast.

Þú getur eytt einstökum vörulínum með rauða ruslahnappnum aftast í línunni — en aðeins meðan talningin er í stöðunni Drög.

Í spilun

Hefja talningu

Þegar allar vörur eru komnar inn smellir þú á „Hefja talningu" (óvirkur ef engin vörulína er til staðar). Þá gerist tvennt: kerfisstaða hverrar línu er endurhlaðin úr núverandi birgðum vöruhússins (svo hún endurspegli nýjustu stöðu) og einingakostnaður hverrar línu er sóttur úr grunnkostnaði vörunnar (án kostnaðarálags og sérkostnaðar). Staðan fer í Í vinnslu og talningarreitir opnast.

Telja og skrá

Í stöðunni Í vinnslu slærð þú inn talið magn í dálkinn Talið fyrir hverja vöru. Framvindukort efst sýnir hlutfall talinna lína (Framvinda í %) og fjölda taldra lína af heildarfjölda. Talningartaflan hefur eftirfarandi dálka:

ReiturLýsingSkylda
Vörunr.Vörunúmer (SKU) vörunnarSjálfvirkt
VöruheitiHeiti vörunnarSjálfvirkt
KerfisstaðaBókfærð staða vöruhússins (falin sem „-" í blindri talningu)Sjálfvirkt
TaliðTalið magn sem þú skráirJá (til að ljúka)
MismunurTalið mínus kerfisstaða (+grænt / -rautt / 0)Sjálfvirkt
ÁstæðaÁstæða frávika — birtist aðeins þegar mismunur er ekki 0Nei
Ath.Frjáls athugasemd við línunaNei

Ástæður frávika

ÁstæðaMerking
SkemmtVara skemmdist
TýntVara týnd
StoliðÞjófnaður
FundiðVara fannst (jákvæður mismunur)
VillaSkráningarvilla
ÚtrunniðVara útrunnin
AnnaðÖnnur ástæða

Prentun og Excel

Meðan talning er í vinnslu geturðu unnið hana á pappír eða í Excel með þremur hnöppum. Talningarblaðið má einnig prenta í stöðunum Lokið og Samþykkt.

HnappurAðgerð
Prenta talningarblaðOpnar prentanlegt talningarblað með vörulista, tómum talningarreitum og undirskriftarlínum („Talið af" / „Dagsetning"). Í blindri talningu er kerfisstaða ekki prentuð
Sækja ExcelSækir Excel-skjal með dálkunum Vörunr., Vöruheiti, Kerfisstaða, Talið, Ástæða og Athugasemdir (Kerfisstaða sleppt í blindri talningu í vinnslu)
Hlaða inn ExcelLes inn útfyllt Excel-skjal og skráir talið magn sjálfkrafa eftir vörunúmeri

Setja ótalið á 0

Hnappurinn „Setja ótalið á 0" setur allar ótaldar línur á talið magn 0 í einu (t.d. þegar allt sem eftir stendur var einfaldlega ekki til). Línur þar sem kerfisstaða var ekki 0 fá sjálfkrafa ástæðuna „Annað". Kerfið biður fyrst um staðfestingu og sýnir hve margar línur verða settar á 0 — smelltu á „Já, setja á 0" til að halda áfram. Hnappurinn er óvirkur ef engin lína er ótalin. Þetta er þægilegt til að klára talningu hratt áður en henni er lokið.

Ljúka talningu

Þegar allar línur hafa verið taldar smellir þú á „Ljúka talningu". Hnappurinn er óvirkur þar til allar línur eru taldar — kerfið hafnar því að ljúka talningu með ótöldum línum. Staðan fer í Lokið og efst birtist samantekt: Heildar mismunur (eining) og Mismunur (kostnaður) í krónum, þar sem kostnaður er reiknaður út frá einingakostnaði hverrar línu (jákvætt grænt, neikvætt rautt).

Talningarskýrsla

Frá stöðunni Lokið og áfram (Samþykkt, Bókað og Bakfært) birtist hnappurinn „Prenta skýrslu". Hann sækir talningarskýrslu sem PDF með niðurstöðunni: upplýsingar um talninguna (dagsetning, vöruhús, tegund, aðferð, hver stofnaði, samþykkti og bókaði), lykiltölur (fjöldi lína, taldar línur, línur með fráviki, mismunur í einingum og krónum) og línutöflu með kerfisstöðu, töldu magni, mismun, einingakostnaði, mismun í krónum og ástæðu. Ólíkt talningarblaðinu, sem er autt eyðublað til að skrifa á, sýnir skýrslan útkomuna — hún hentar t.d. sem fylgiskjal fyrir endurskoðanda.

Yfirfara og samþykkja

Í stöðunni Lokið ferðu yfir mismuninn og smellir á gula hnappinn „Samþykkja" (staðfestingargluggi birtist). Staðan fer í Samþykkt og skráð er hver samþykkti og hvenær. Á þessu stigi eru birgðirnar ekki enn leiðréttar — samþykki er einungis staðfesting á að niðurstaðan sé rétt.

Bóka leiðréttingar

Í stöðunni Samþykkt smellir þú á græna hnappinn „Bóka leiðréttingar". Kerfið býr þá til birgðahreyfingu (tegund „Talning") fyrir hverja línu þar sem mismunur er, sem færir stöðu vöruhússins upp eða niður svo hún jafnist við talið magn. Staðan fer í Bókað og skráð er hver bókaði og hvenær.

Mismunurinn miðast við talningartímann. Kerfið skráir hvenær hver lína var talin. Við bókun er kerfisstaðan reiknuð eins og hún var á þeirri stundu: hreyfingar sem urðu á vöruhúsinu eftir að línan var talin (t.d. sala eða vörumóttaka á meðan talið var) eru dregnar frá, svo þær tvíteljast ekki. Kerfisstaða línunnar er uppfærð í það gildi svo bakfærsla spegli bókunina nákvæmlega. Ef ekki er hægt að mæla mismuninn (t.d. eldri talning án skráðs talningartíma þar sem birgðir hafa hreyfst síðan talningin hófst) hafnar kerfið bókuninni og nefnir vörunúmerin sem þarf að telja aftur.

Bakfæra

Ef bókuð talning reynist röng geturðu bakfært hana meðan hún er í stöðunni Bókað. Smelltu á „Bakfæra", skráðu valfrjálsa ástæðu og staðfestu. Kerfið býr til gagnstæðar birgðahreyfingar sem afturkalla allar leiðréttingarnar (og FIFO-lögin með). Staðan fer í Bakfært og dagsetning, notandi og ástæða bakfærslu eru skráð og sýnd í upplýsingum talningarinnar.

Stöður talningar

StaðaLiturMerking
DrögGrárTalning stofnuð — hægt að bæta við og eyða vörum
Í vinnsluBlár (í vinnslu)Verið er að telja og skrá magn
LokiðAppelsínugulurAllt talið, bíður yfirferðar og samþykkis
SamþykktGrænnStaðfest — bíður bókunar leiðréttinga
BókaðFjólublárBirgðahreyfingar búnar til, birgðir leiðréttar
BakfærtRauðurBókuð talning afturkölluð með gagnstæðum hreyfingum

Skynditalning

Til að telja eina vöru í einu vöruhúsi án alls ferlisins notarðu Skynditalningu úr aðgerðavalmynd vörunnar á vörulistanum (Vörur & lager → Vörur → ⋮ → „Skynditalning"). Þar velur þú vöruhús, slærð inn talið magn, ástæðu og valfrjálsa athugasemd; glugginn sýnir mismuninn jafnóðum. Skynditalningin er bókuð strax í einni aðgerð og birtist svo á talningalistanum sem talning af tegundinni Stikkpróf í stöðunni Bókað, með lýsingunni „Skynditalning –" ásamt heiti vörunnar. Hana má bakfæra eins og aðrar bókaðar talningar.

Næst · Bútur 10 af 11

Afskriftir

Hvernig þú afskrifar skemmdar, týndar eða teknar vörur úr birgðum og flettir upp í afskriftasögunni.