PayGoHandbókNámskeið

Aðstoðarmaður

Hver sér aðstoðarmanninn, um hvað hann svarar og hvaða skjöl hann styðst við

Aðstoðarmaðurinn (pandan neðst í hægra horni) svarar spurningum um kerfið, flettir upp í skjölum fyrirtækisins og getur rýnt bókhaldið eins og endurskoðandi. Á þessari síðu ákveður stjórnandi hver má nota hann, um hvað hann svarar og hvaða skjöl hann hefur aðgang að. Síðuna finnur þú undir Stillingar → Fyrirtækið → Aðstoðarmaður og hún er aðeins aðgengileg stjórnendum (Tenant admin).

FlipiHvað er þar
StillingarKveikja/slökkva á aðstoðarmanninum, vefleit, skýrsluútflutningur, viðhengi (efni viðhengdra skráa er sent til gervigreindarveitunnar til vinnslu), velkomuskilaboð, tillögur að spurningum og sérsniðnar leiðbeiningar.
Aðgangur og efniHverjir sjá aðstoðarmanninn (allir eða valin hlutverk/notendur) og um hvaða efni hann má svara.
SkráarsafnSkjöl sem aðstoðarmaðurinn getur leitað í, þar á meðal skjöl merkt „Aðeins fyrir stjórnendur".

Hverjir sjá aðstoðarmanninn. Sjálfgefið sjá allir notendur fyrirtækisins hann. Í flipanum „Aðgangur og efni" geturðu valið „Aðeins valdir notendur" og tilgreint leyfð hlutverk og/eða einstaka notendur. Stjórnendur sjá aðstoðarmanninn alltaf. Ef slökkt er á honum í „Stillingar" er hann falinn öllum öðrum en stjórnendum og netþjónninn hafnar líka skilaboðum frá þeim sem hafa ekki aðgang.

Efni sem aðstoðarmaðurinn má svara um. Efnin eru Skjöl og skráarsafn, Mælaborð, Sala, Útgjöld, Birgðir og Bókhald. Fjárhagsleg efni eru merkt „Fjárhagslegt". Hakaðu við þau efni sem aðstoðarmaðurinn má svara um og taktu hakið af hinum til að þrengja svörin. Stillingarnar geta aðeins þrengt svörin — þær geta aldrei rýmkað fjárhagsaðganginn. Efst í flipanum stendur líka áminning um fastar reglur um aðgang.

Vefleit. Í flipanum „Stillingar" má leyfa aðstoðarmanninum að leita á vefnum (Tavily). Verð er 1.090 kr. m.vsk. per 1.000 leitir, svo þú ræður hvort kveikt er á henni.

Skráarsafn og skjöl fyrir stjórnendur. Skjölin sem aðstoðarmaðurinn leitar í eru stýrð í flipanum „Skráarsafn" (sjá Skráarsafn). Þegar skjali er hlaðið upp eða það breytt er hægt að merkja það „Aðeins fyrir stjórnendur". Slík skjöl sjá aðeins stjórnendur — aðrir notendur sjá þau hvorki í listanum né fær aðstoðarmaðurinn að nota þau þegar þeir spyrja.

1
Velkomuskilaboð

Texti (allt að 500 stafir) sem birtist efst í nýju samtali sem fyrsta skilaboð aðstoðarmannsins.

2
Tillögur að spurningum

Allt að 6 spurningar (hver allt að 120 stafir) sem birtast sem hnappar í nýju samtali. Smellt er á hnapp til að senda spurninguna.

3
Sérsniðnar leiðbeiningar

Fyrirtækjasértækar upplýsingar og áherslur (allt að 2.000 stafir), t.d. „svaraðu alltaf stuttlega". Þær breyta aldrei aðgangsreglum aðstoðarmannsins.

4
Vista

Smelltu á „Vista stillingar". Breytingarnar taka gildi fyrir næsta samtal.

Samanburðarskýrslur sem PDF eða XLSX. Notandi með fjárhagsaðgang getur beðið aðstoðarmanninn um skýrslu, t.d. samanburð á rekstrarreikningi tveggja ára. Aðstoðarmaðurinn útbýr skrána úr tölum kerfisins sjálfs (aldrei úr eigin útreikningi) og birtir hnapp í svarinu til að sækja hana. Skýrslurnar eru aðeins aðgengilegar þeim sem bað um þær og renna út eftir 30 daga. Hægt er að slökkva á skýrsluútflutningi í flipanum „Stillingar".

SpurningHvað aðstoðarmaðurinn gerir
Berðu saman rekstrarreikning 2025 og 2024 og gefðu mér PDFSækir báða rekstrarreikningana, útskýrir helstu breytingar og býr til PDF með samanburðinum.
Finndu óvenjulegar færslur í dagbók á síðasta ársfjórðungiLeitar að frávikum, t.d. háum upphæðum, handfærðum færslum og færslum utan venjulegs tímabils.
Reiknaðu helstu kennitölurReiknar t.d. framlegð, veltufjárhlutfall og eiginfjárhlutfall út frá rekstrar- og efnahagsreikningi.
Næst · Bútur 6 af 34

Skráarsafn

Hvernig skjalasafnið nýtist aðstoðarmanninum, hvernig þú leitar í skjölum, hvað dálkarnir og aðgerðirnar gera og hvaða skráartegundir eru leyfðar.