PayGoHandbókNámskeið
Kafli: StillingarBútur 25 af 341:20

PayGo vefverslun

Innbyggð netverslun PayGo - hvernig þú virkjar hana, velur þema, sérsníðir útlit og efni, setur upp lén og vistar.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
Skref 9 af 120:59 / 1:20

Á Forsíða og fótur byggirðu forsíðuna, og á Undirsíður býrðu til síður eins og Um okkur eða Skilmála.

Hraði

Vefverslun

Innbyggð netverslun PayGo — þema, útlit, efni og lén

Vefverslun er innbyggð, opinber netverslun PayGo sem sækir vörurnar þínar beint úr vöruskrá kerfisins. Þú finnur hana undir Stillingar → Vefverslun. Á þessari einu síðu virkjarðu verslunina, velur tilbúið þema, fínstillir liti, letur, útlit og efni, byggir forsíðu og fót, bætir við undirsíðum og valmyndartenglum, hleður inn myndum í efnissafn og setur upp lén (undirlén eða sérsniðið lén með DNS/SSL). Pantanir sem berast úr versluninni birtast sjálfkrafa í PayGo undir Sölupantanir.

Síðan skiptist í tvennt: vinstra megin er sérsníðingurinn með fjórtán flipum og hægra megin er lifandi forskoðun („Forskoðun — uppfærist samstundis") sem uppfærist um leið og þú breytir stillingu. Á breiðum skjá helst forskoðunin föst (sticky) á meðan þú skrollar. Efst á síðunni eru tveir hnappar: Opna vefverslun (opnar lifandi verslun í nýjum flipa ef hún er virk, annars fer hún á „Lén"-flipann) og Vista stillingar (verður grænn og segir „Vistað!" þegar tekist hefur).

Vefverslun — stillingar
Stækka
Vefverslun: velja þema og sérsníða útlit netverslunar með lifandi forskoðun

Flipar sérsníðingsins

Flipastikan er skrollanleg til hliðar á litlum skjá svo allir fjórtán flipar séu ávallt aðgengilegir. Hér er yfirlit yfir hlutverk hvers flipa.

FlipiHlutverk
ÞemaVelja eitt af sjö tilbúnum þemum sem setja liti, letur og útlit í einu vetfangi.
LitirFínstilla aðal-, auka-, áherslu-, bakgrunns-, haus-, fót- og textalitir auk verð- og rammalita.
Leturgerð & formLeturgerðir fyrirsagna/meginmáls, leturstærðir, þyngd, hnappastíll og radíus horna.
ÚtlitHausstíll, hero-svæði, vörukortastíll, dálkafjöldi, breidd efnissvæðis og áhrif spjalda.
VörulistiBirtingarhamur, röðun, síur, sýna verð/lager/SKU, vörur á síðu og afborgun.
EfniLogo, hero-textar, tilkynningstika, eiginleikakort og tenglar á samfélagsmiðla.
Forsíða & fóturByggja og raða forsíðuhlutum og fótar-dálkum.
UndirsíðurBúa til frjálsar /slóð-síður (t.d. „Um okkur") með ritli og SEO-reitum.
ValmyndAuka-tenglar í efstu valmynd (frjálsar slóðir eða fellilistar) umfram undirsíður.
EfnissafnHlaða inn og halda utan um myndir sem nota má víðsvegar í versluninni.
LénVirkja verslunina, sjá föstu slóð hennar (undirlén) og bæta við sérsniðnu léni með DNS/SSL.
GreiðslugáttirTengja greiðslugáttir vefverslunar (Teya, Netgíró, Aur, krafa) og velja hverjar bjóðast í kassa.
MælingarVirkja Google Analytics 4 og Meta Pixel í vefversluninni með mælingarauðkenni.
ÍtarlegtSérsniðið CSS fyrir lengra komna.
1
Virkja verslunina

Farðu á „Lén"-flipann og kveiktu á rofanum „Vefverslun virk". Þetta vistast strax og grænt „Vefverslun virk" merki birtist.

2
Athuga slóð verslunarinnar

Í „Undirlén"-kortinu sérðu fasta slóð verslunarinnar, t.d. minverslun.paygo.is. Hún myndast sjálfkrafa af nafni fyrirtækisins og er ekki stillanleg. Þú getur afritað hana með „Afrita slóð". Viljir þú aðra slóð skráirðu þitt eigið lén í „Sérsniðin lén".

3
Velja þema

Á „Þema"-flipanum smellirðu á eitt af sjö þemakortum (t.d. Verslun, Himinn eða Norðurljós). Það setur liti, letur og útlit sjálfkrafa.

4
Sérsníða útlit og efni

Fínstilltu liti, leturgerð, útlit, vörulista og efni (logo, hero-texta, tilkynningstiku) á viðeigandi flipum. Fylgstu með lifandi forskoðuninni hægra megin.

5
Vista stillingar

Smelltu á „Vista stillingar" efst til hægri. Hnappurinn verður grænn og sýnir „Vistað!" þegar tekist hefur.

6
Skoða verslunina

Smelltu á „Opna vefverslun" til að sjá lifandi verslun eins og viðskiptavinir sjá hana.

Þema-flipinn

Í boði eru sjö tilbúin þemu. Þegar þú smellir á þema-kort tekur það strax gildi í forskoðun (grænn hringur með gátmerki sýnir valið þema) og setur sjálfgefna liti, letur, hnappastíl og útlit. Eftir það máttu fínstilla hvern þátt á hinum flipunum án þess að missa þemagrunninn.

ÞemaLýsing
KlassíkHefðbundin, traust og fáguð — eins og rótgróin verslun (sjálfgefið).
NútímaLágstemmt, hreint og lúxus — mikið hvítrými og fínleg leturgerð.
KrafturDjarft, litríkt og orkumikið — stór leturgerð og sterkar andstæður.
HlýjaHlýlegt og handverkslegt — jarðtónar og glæsileg þjál leturgerð.
HiminnBjart og loftkennt — dagshiminn með sólarglóð, sker sig úr.
VerslunÞétt og hagnýt raftækjaverslun — leit, síur, tilboð og verð í fyrirrúmi, í anda ELKO / Heimilistækja.
NorðurljósDökkblár himinn með rafbláum ljóma — tækni og orka. Gler-haus yfir ljósmynd, glóandi vörukort og pilluhnappar.

Litir-flipinn

Hver litur er valinn með litavelja sem sýnir hex-gildið. Grunnlitirnir eru efst; neðar undir „Ítarlegir litir" er verð- og rammalitur. Ef litur er ekki stilltur er notað sjálfgefna gildi þemans.

ReiturLýsing
AðalliturMeginlitur vörumerkis (hnappar, áherslur).
AukaliturStuðningslitur.
ÁhersluliturLitur fyrir sérstakar áherslur og tilboð.
BakgrunnsliturBakgrunnur síðunnar.
Flötulitur (kort/hlutar)Bakgrunnur korta og hluta.
TextaliturAðaltextalitur.
Daufur textaliturLitur á aukatexta og skýringum.
Haus — bakgrunnur / textaliturLitir á efsta haus verslunar.
Fótur — bakgrunnur / textaliturLitir á fæti verslunar.
VerðliturLitur á verði (undir Ítarlegir litir).
RammaliturLitur á römmum og línum (undir Ítarlegir litir).

Leturgerð & form-flipinn

Hér velurðu leturgerðir og fínstillir stærðir. Grunnstillingar eru efst; undir „Ítarlegri leturstillingar" og „Textastærðir" má stilla nákvæma stærð hvers hlutverks í pixlum (megintexti, hero-fyrirsögn/undirtexti, kaflafyrirsagnir, vöruheiti á síðu og spjaldi, verð). Leturgerðir í boði: Inter, Poppins, Montserrat, Playfair Display, Lora, DM Sans og Kerfisleturgerð.

ReiturLýsing
Leturgerð fyrirsagna / meginmálsVelja leturgerð fyrir fyrirsagnir og meginmál.
LeturstærðÞétt / Venjulegt / Rúmt.
HnappastíllKassalaga / Ávalt / Pilla.
Grunnradíus hornaRenna 0–24px fyrir rúnnun horna.
GrunnletursstærðRenna 12–22px fyrir grunnstærð.
Textastærðir (megintexti, hero, kaflar, vöruheiti, verð)Renna til að stilla nákvæma pixlastærð hvers hlutverks.
Þyngd fyrirsagnaLétt / Miðlungs / Hálffeitt / Feitt / Mjög feitt.
Stærð takkaLítill / Miðlungs / Stór.
HÁSTAFA fyrirsagnirRofi sem birtir fyrirsagnir í hástöfum.
Stafabil í fyrirsögnumRenna -1 til 4px.

Útlit-flipinn

Stýrir uppbyggingu haus, hero-svæðis, vörukorta og efnissvæðis.

ReiturValkostir / Lýsing
HausstíllKlassískt / Miðjað / Lágmark / Verslun (leitarslá + flokka-valmynd) / Gler (gegnsær dökkur haus yfir mynd — Norðurljós).
Forsíðusvæðisstíll (hero)Litasvið (gradient) / Mynd á bakgrunni / Skipt / Lágmark / Ljósmynd (dempuð mynd, ljómi og rúðunet — Norðurljós) / Ekkert forsíðusvæði.
URL forsíðumyndarValfrjáls slóð á bakgrunnsmynd hero.
VörukortastíllKlassískt / Lágmark / Djarft / Yfirlit (texti ofan á mynd) / Verslun (þétt kort með tilboðsmerki) / Ljómi (ávalt kort sem lyftist með bláum ljóma — Norðurljós).
FótstíllSjálfgefið (nafn, texti og dálkar) / Vörumerki (logo, lýsing, heimilisfang, sími, netfang og dálkar — Norðurljós).
Dálkar í vöruristli (skjáborð)2 / 3 / 4 / 5 dálkar.
Breidd efnissvæðisÞröngt (960px) / Venjulegt (1200px) / Breitt (1440px).
Fastur hausRofi — haus fylgir með þegar skrollað er.
Hæð merkiRenna 24–80px.
Hæð myndbands (hero)Lítil / Miðlungs / Stór.
Jöfnun heroVinstri / Miðjað.
Texti í hero / Gegnsæi yfirborðsLitur á hero-texta og renna 0–100% fyrir myrkvun yfir bakgrunnsmynd.
Skuggi spjaldaEnginn / Mjúkur / Sterkur.
Hlutfall myndaFerningur / Lóðrétt / Lárétt.
MyndabirtingHeil mynd (ekkert klippt) / Fylla út í (klippist af).
Sviphreyfing spjaldaLyfta / Súm / Ekkert.
Fljótbæta-takki á spjöldumRofi — sýnir hraðkaupshnapp á vöruspjöldum.

Vörulisti-flipinn

Stjórnar hvernig vörur birtast og eru síaðar. Undir „Síunar" kveikirðu á einstökum síum og undir hægri dálki stillirðu hvaða upplýsingar birtast á hverri vöru.

ReiturLýsing
Birtingarhamur varaBirta allar vörur beint (án flokka) eða Birta vöruflokka.
Sjálfgefin röðunÚrvalsröð / Nafn (A-Ö) / Nafn (Ö-A) / Verð (lægst) / Verð (hæst) / Nýjast fyrst.
Tiltækar röðunarmöguleikarHaka við hvaða röðunarvalkostir standa viðskiptavini til boða.
SíunarSýna síunarspjald, Verðbil, Flokkasíun, Á lager, Leitarsíun (hver með rofa).
Sýna verðBirta verð á vörum.
Sýna verð með VSKBirtir verðið sem viðskiptavinurinn borgar í kassanum; verðið án VSK birtist undir í smærra letri. Slökkt = verð birtast án VSK (B2B).
Lægsta verð síðustu 30 daga (Omnibus)Sýnir lægsta verð vörunnar 30 daga á undan tilboði. Krefst verðsögu, sem er skráð sjálfkrafa.
Sýna lagerstöðuÁ lager / í innkaupapöntun / ekki til á lager.
Sýna magn á lagerBirtir nákvæmt magn (t.d. „12 stk"); krefst þess að lagerstaða sé sýnd.
Sýna væntanlegt magnBirtir hve mörg stk eru á leiðinni þegar vara er í pöntun; krefst þess að lagerstaða sé sýnd.
Leyfa pöntun á vörum í pöntunVara sem er „Í pöntun“ (0 stk tiltæk en á staðfestri innkaupapöntun) má samt fara í körfu.
Leyfa pöntun á uppseldum vörumVara sem er „Uppseld“ (0 stk tiltæk og engin staðfest innkaupapöntun) má samt fara í körfu og er afgreidd þegar hún berst.
Sýna vörunúmer (SKU)Birta SKU á vörum.
Vörur á síðuFjöldi vara á síðu (4–100, þrep 4).
Afborgun — fjöldi mánaða0 = slökkt. Sýnir „eða X kr./mán" á vörukortum (Verslun-þema).

Efni-flipinn

Hér setur þú logo, texta forsíðusvæðis, tilkynningstiku, allt að þrjú eiginleikakort og tengla á samfélagsmiðla.

ReiturLýsing
LogoHlaða upp merki. PNG, JPG, GIF eða WEBP, hámark 5MB. „Eyða logo" fjarlægir það.
FaviconTáknið í vafraflipa verslunarinnar. PNG, WEBP eða ICO, helst ferningur (32×32 eða 64×64), hámark 1MB. „Eyða favicon“ fjarlægir það.
Aðaltitill (hero)Aðalfyrirsögn forsíðusvæðis (t.d. „Velkomin í okkar verslun").
Undirtitill (hero)Undirfyrirsögn forsíðusvæðis.
Texti á aðalhnappTexti á CTA-hnappi hero (t.d. „Skoða vörur").
Tungumál vefverslunarTungumálið sem gestir sjá í versluninni og á Mínum síðum. Íslenska er sjálfgefin.
Leitarvélar (SEO)Titill búðar, deilimynd (Open Graph) og lýsing sem leitarvélar og samfélagsmiðlar nota. Tómt = nafn fyrirtækisins, merki búðarinnar og undirtitill forsíðunnar eru notuð.
FótsíðutextiTexti neðst í fæti (t.d. höfundarréttur).
TilkynningstikaRofi „Sýna tilkynningstiku efst" auk texta, bakgrunns- og textalitar.
Eiginleikakort (3 kosta)Rofi „Sýna eiginleikakort"; allt að þrjú kort með tákni, titli og lýsingu.
SamfélagsmiðlarSlóðir á Facebook, Instagram, TikTok, YouTube og X (Twitter) — verða að byrja á https://.
Sýna „Powered by PayGo"Rofi sem birtir/felur PayGo-merkingu í fæti.

Pöntunarstaðfesting (í Efni-flipanum)

Verslun PayGo sendir viðskiptavininum alltaf tölvupóstinn „Takk fyrir pöntunina“. Hann sýnir pöntunarnúmer og dagsetningu, vörulínur, afslátt, sendingarkostnað, VSK og samtölu, afhendingarmáta, afhendingarstað eða heimilisfang (nafn, heimilisfang og símanúmer), athugasemd viðskiptavinar og greiðslumáta. Undir skilrúminu „Pöntunarstaðfesting“ neðst í Efni-flipanum er rofi sem hengir sölupöntunina sem PDF við póstinn; þá bætist við lína um að hún sé í viðhengi. Rofinn vistast með „Vista stillingar“. Sambærilegar stillingar fyrir WooCommerce og Shopify eru á síðum þeirra.

Í spilun

Forsíða & fótur-flipinn

Efst velurðu hvað birtist á forsíðunni: Forsíða (kynningarsvæði og forsíðuhlutar), Beint á vörur eða Beint á vöruflokka (engin forsíða — „/“ sýnir listann strax). Forsíðuhlutarnir birtast ekki þegar valið er að fara beint á vörur eða vöruflokka. Í „Forsíða-hlutarnir" byggirðu forsíðuna úr hlutum sem má draga til að raða. Slökktu á hluta til að fela hann án þess að eyða honum. Neðar, undir „Fótar-dálkar", býrðu til dálka með tenglum fyrir fót verslunarinnar. Bæði vistast með „Vista stillingar". Hlutategundir sem hægt er að bæta við eru:

HlutiLýsing
Hero (kynningarsvæði)Kynningarsvæði efst með titli, undirtitli og hnapp.
EiginleikarRöð eiginleikakorta.
VörurÚrval vara (stillanlegur fjöldi).
VöruflokkarSýnir vöruflokka.
TextiFrjáls textahluti með fyrirsögn.
MyndStök mynd.
Mynd + textiMynd öðrum megin og texti hinum megin (vinstri/hægri).
DálkarMargir dálkar með mynd/texta.
BilTómt bil til að aðskilja hluta.

Undirsíður-flipinn

Búðu til frjálsar síður (t.d. „Um okkur", „Skilmálar") sem birtast á /slóð í versluninni. Töfluyfirlit sýnir Röð, Titil, Slóð og Stöðu. Smelltu á „Ný síða" til að stofna nýja undirsíðu, eða á blýants-hnappinn (Breyta) í Aðgerðir-dálknum til að opna ritilinn („Breyta undirsíðu"). Efni er ritað í ríkan textaritil. „Eyða undirsíðu" fjarlægir síðuna.

ReiturLýsingSkylda
TitillHeiti síðunnar.Já
Slóð (URL)Birtist sem /slóð á versluninni. Aðeins lágstafir, tölur og bandstrik.Já
StaðaDrög eða Birt. Nýjar undirsíður byrja sem Birt.Já
Sýna í valmyndBirtir síðuna sem tengil í efstu valmynd verslunarinnar.Nei
EfniMeginefni síðunnar í ríkum textaritli.Nei
SEO titill (metaTitle)Titill í leitarvélum og flipa vafra. Fellur á titil síðunnar ef tómt.Nei
SEO lýsing (metaDescription)Lýsing fyrir leitarvélar.Nei

Valmynd-flipinn

Bætir auka-tenglum í efstu valmyndina fyrir aftan „Vöruflokkar" og undirsíðurnar. Notaðu fyrir frjálsar slóðir (t.d. ytri hlekki) eða fellilista. Undirsíður sem merktar eru „Sýna í valmynd" birtast sjálfkrafa — hér bætir þú við umfram þær. Hver tengill getur verið af gerð Síða (velja undirsíðu), Slóð (frjáls slóð, t.d. /products eða https://...) eða Fellilisti (með undirtenglum). „Nýr gluggi" opnar tengil í nýjum flipa. Vistað með „Vista stillingar".

Ertu með eigin kynningarvef? Neðar á flipanum er reiturinn „Valmynd og fótur frá ytri vef“: þar setur þú slóð á litla JSON-skrá (sem verður að leyfa CORS) með valmynd og fótar-dálkum vefsins þíns, og vefverslunin sýnir þá sömu valmynd og fót. Sú skrá tekur fram yfir valmyndartenglana og fótar-dálkana í PayGo.

Efnissafn-flipinn

Efnissafnið (media manager) heldur utan um myndir sem nota má víðsvegar í versluninni — t.d. í hero, forsíðuhlutum og undirsíðum. Þú hleður inn myndum (JPG, PNG, GIF eða WebP, hámark 5 MB) og velur þær síðan þar sem myndareitir eru í boði.

Lén-flipinn

Hér stjórnarðu aðgengi verslunarinnar. Efst er kortið Vefverslun virk með rofa sem virkjar eða óvirkjar opinberu verslunina (grænt „Vefverslun virk" merki þýðir að hún sé aðgengileg almenningi, gult „Vefverslun óvirk" að hún sé lokuð). Í Undirlén-kortinu sérðu föstu slóð verslunarinnar, getur afritað hana og opnað verslunina. Slóðin ræðst af nafni fyrirtækisins og er ekki stillanleg. Í Sérsniðin lén-kortinu skráirðu þitt eigið lén — það er leiðin til að fá aðra slóð. Lén verður ekki virkt við það eitt að bæta því við; uppsetningin er í þremur skrefum sem þú stjórnar sjálf(ur) (sjá hér að neðan).

Dálkur / Staða / AðgerðMerking
LénNafn sérsniðna lénsins.
Staða: Bíður uppsetningarLénið hefur verið skráð en DNS-færslan er ekki komin í lag eða uppsetningu er ólokið.
Staða: DNS í lagiLénið vísar á þjóninn; næsta skref er „Klára uppsetningu“.
Staða: Sæki skírteiniUppsetning í gangi — tekur venjulega innan við mínútu.
Staða: VirktVefverslunin er aðgengileg á léninu yfir https.
Staða: Uppsetning mistókstÁstæðan birtist í listanum; laga það sem kemur fram og reyna aftur.
Aðgerðir: Athuga DNSLes DNS-færsluna og segir hvort lénið vísi rétt — breytir engu.
Aðgerðir: Klára uppsetningu / Endurnýja SSLSetur upp vefþjónsstillingu og sækir SSL-skírteini fyrir lénið, eða endurnýjar skírteinið.
Aðgerðir: Gera að aðalléni / Hætta sem aðallénAðallén er slóðin sem leitarvélar fá (canonical, sitemap, deiling) þegar verslunin svarar á fleiri en einu léni. Aðeins virkt lén getur verið aðallén.
Aðgerðir: FjarlægjaFjarlægir lénið ásamt vefþjónsstillingu og skírteini; verslunin verður ekki lengur aðgengileg á því.
1
Slá inn lén

Í „Sérsniðin lén"-kortinu, undir „Bæta við léni", slærðu inn gilt lén (t.d. verslun.example.com eða www.minverslun.is) og smellir á „Bæta við léni".

2
Setja upp DNS og athuga

Uppfærðu DNS hjá lénaskrásetjara þínum með CNAME færslu sem vísar á lénið sem sýnt er (t.d. storefront.paygo.is) — notaðu „Afrita“-hnappinn. Smelltu svo á „Athuga DNS“ í listanum. DNS-breytingar taka yfirleitt nokkrar mínútur en geta tekið allt að sólarhring.

3
Klára uppsetningu

Þegar staðan er „DNS í lagi“ smellirðu á „Klára uppsetningu“. PayGo setur þá upp vefþjónsstillingu og sækir SSL-skírteini. Takist það verður staðan „Virkt“. Þangað til svarar verslunin á undirléninu og hlekkir sem kerfið býr til (t.d. í tölvupósti) nota undirlénið.

Greiðslugáttir-flipinn

Hér velurðu hvaða greiðslumátar bjóðast viðskiptavinum í kassa vefverslunarinnar. Hver gátt hefur rofann „Virk í vefverslun“, birtingarnafn, röð, lýsingu (birtist undir valkostinum) og greiðslumátann sem innborgun bókast á (þarf að velja áður en gátt er virkjuð). Lykla og leyniorð sem þú skráir vistast án þess að sjást aftur — „Skráð — skildu eftir autt til að halda óbreyttu“.

GáttLýsing
Teya — greiðslukortKortagreiðsla. Credentials og webhook eru stofnuð í Teya Business Portal; webhook-slóðin er sýnd á flipanum.
Krafa í heimabankaSama innheimtuferli og innborgunarkröfur á sölupantanir. Greiðslumátinn þarf að vera af gerðinni HEIMABANKI með virkri bankatengingu og krefst virkrar innheimtuþjónustu. Birtist aðeins innskráðum viðskiptavinum með staðfestan aðgang.
NetgíróApplication ID og Secret Key fást í Netgíró Partner-vef. Hægt er að velja prófunarumhverfi.
Aur — greiðsla í Aur-appinuViðskiptavinurinn staðfestir greiðsluna í Aur-appinu; pöntunin fellur niður ef hann staðfestir ekki innan stillts frests.
Greiðsla utan vefverslunarEngin greiðsla er tekin á netinu: pöntunin er staðfest strax en merkt ógreidd og viðskiptavinurinn greiðir síðar. Pöntunin þarf eftir sem áður að vera skráð greidd í PayGo áður en hún er send eða afhent.

Sendingarleiðir í kassa

Verð, tegund sendingar og afhendingarstaðir sem bjóðast í kassa vefverslunar eru stillt á sér síðu, Stillingar → Vefverslun → Sendingarleiðir. Þar bætirðu við sendingarleiðum á flutningsmáta sem er merktur „Sýna flutningsmáta í checkout vefverslunar“ (flutningsmátarnir sjálfir eru undir Stillingar → Vörur & lager → Flutningsmátar) eða býrð til fastan flutningsmáta eins og „Sækja í verslun“. Sjá nánar á síðunum Sendingarleiðir og Flutningsmátar.

Mælingar-flipinn (Google Analytics og Meta Pixel)

Hér tengirðu vefverslunina við vefmælingar. Hvor þjónusta um sig hefur rofa („Virkja") og reit fyrir auðkenni. Mælingin fer aðeins í gang þegar rofinn er á og auðkennið er á réttu sniði — annars er ekkert sent og viðvörun birtist undir reitnum.

ÞjónustaAuðkenniHvar finnst það?
Google Analytics 4Mælingarauðkenni á sniðinu „G-XXXXXXXXXX"Google Analytics → Admin → Data streams → vefstraumurinn þinn → Measurement ID.
Meta PixelPixel-auðkenni, eingöngu tölustafir (venjulega 15–16)Meta Events Manager → Data sources → pixillinn þinn → Settings → Pixel ID.
1
Opna Mælingar-flipann

Undir Stillingar → Vefverslun smellirðu á „Mælingar".

2
Virkja og slá inn auðkenni

Kveiktu á rofanum fyrir þjónustuna og límdu auðkennið í reitinn. Merkið „Virkt" birtist þegar auðkennið er gilt.

3
Vista stillingar

Smelltu á „Vista stillingar" efst á síðunni. Vefverslunin byrjar að senda síðuflettingar við næstu hleðslu.

Ítarlegt-flipinn

Fyrir lengra komna: „Sérsniðið CSS" reitur þar sem þú getur skrifað eigin stílreglur (t.d. .storefront-header { ... }). Notið með varúð — rangt CSS getur brotið útlit verslunarinnar.

Birgðatilkynningar (aftur á lager)

Þegar vara er uppseld í versluninni geta viðskiptavinir skráð netfang sitt til að fá tilkynningu þegar hún kemur aftur á lager. Undir Stillingar → Vefverslun → Lagertilkynningar stillirðu efni tölvupóstsins og sérð lista yfir áskriftir. Kerfið sendir tilkynninguna sjálfkrafa þegar birgðastaða vörunnar verður jákvæð.

1
Stilla titil tölvupósts

Í „Birgðatilkynningar - Tölvupóststillingar" slærðu inn „Titill tölvupósts". Þú getur notað breytur eins og {{product.name}}, {{product.sku}} og {{tenant.name}}.

2
Stilla meginmál (valfrjálst)

Í „Meginmál tölvupósts (HTML)" slærðu inn HTML-efni. Skildu reitina auða til að nota sjálfgefið sniðmát.

3
Vista

Smelltu á „Vista stillingar" — hnappurinn verður grænn og sýnir „Vistað!".

DálkurLýsing
NetfangNetfang viðskiptavinar sem skráði sig (afritanlegt).
VaraHeiti vörunnar og vörunúmer (SKU).
SkráðDagsetning sem skráningin barst.
Staða: BíðurAppelsínugult merki — enn ekki tilkynnt.
Staða: TilkynntGrænt merki með dagsetningu tilkynningar.
Næst · Bútur 26 af 34

Sendingarleiðir

Hvað viðskiptavinurinn sér og velur í checkout vefverslunarinnar - verð, tegund sendingar og afhendingarstaðir.