PayGoHandbókNámskeið
Kafli: StillingarBútur 30 af 341:32

Stillingar Minna síðna

Hvernig þú kveikir á viðskiptavinagáttinni, velur hvaða síður birtast í henni, stillir útlit og tengilið og setur gáttina á þitt eigið lén.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
Skref 9 af 150:55 / 1:32

Smá ábending! Gáttin hefur enn enga síðu fyrir verkbeiðnir og þjónustubeiðnir, svo hafðu slökkt á þeim tveimur.

Hraði

Mínar síður (Viðskiptavinagátt)

Sjálfsafgreiðsluvefur fyrir viðskiptavini
Mínar síður er sjálfsafgreiðsluvefur (viðskiptavinagátt) þar sem viðskiptavinir þínir skrá sig inn og sjá eigin reikninga, hreyfingar og pantanir. Á þessari stillingasíðu (Stillingar → Mínar síður → Stillingar Minna síðna) stýrir þú hvort gáttin sé virk, hvaða síður birtast í henni, útliti hennar og sérsniðnum lénum. Gáttin sjálf keyrir á sér vefslóð, aðskilinni frá stjórnborðinu. Síðan er aðeins opin stjórnendum fyrirtækisins.

Hvenær á að nota þetta

  • Þegar þú vilt bjóða viðskiptavinum aðgang að eigin reikningum, hreyfingalista og pöntunum án þess að hringja eða senda tölvupóst.
  • Þegar þú vilt setja logo, tengiliðsupplýsingar og velkomskilaboð fyrirtækisins á innskráningarsíðu gáttarinnar.
  • Þegar þú vilt að gáttin birtist á þínu eigin léni.
Viðskiptavinagátt — stillingar
Stækka
Mínar síður: virkja gátt, velja eiginleika, útlit og tengiliður, sérsniðin lén

Kaflar á stillingasíðunni

Síðan skiptist í fjögur spjöld (kort):
  • Virkja Mínar síður — aðalrofinn sem kveikir og slekkur á gáttinni.
  • Eiginleikar — hvaða síður birtast í valmynd gáttarinnar (Reikningar, Hreyfingar, Pantanir, Verkbeiðnir, Þjónustubeiðnir).
  • Útlit og tengiliður — logo, aðallitur, netfang og sími tengiliðar og velkomskilaboð.
  • Sérsniðin lén — bæta við eigin léni með DNS-uppsetningu og SSL-vottorði.
Hvernig nýir notendur fá aðgang er ekki stillt hér — sjá kaflann „Aðgangur viðskiptavina" neðar.

1. Virkja Mínar síður

Efsta spjaldið er með einum rofa: „Mínar síður virkar" með texta „Virkja eða óvirkja viðskiptavinagátt". Rofinn sýnir Virk eða Óvirk. Þegar kveikt er birtist grænn borði með slóð gáttarinnar (t.d. https://minar-{slug}.paygo.is); þegar slökkt er birtist gulur viðvörunarborði „Mínar síður óvirkar" og hvorki er hægt að skrá sig inn né nýskrá sig á gáttinni. Slökkt er einnig á gáttinni fyrir viðskiptavini sem eru þegar innskráðir: næsta beiðni þeirra um gögn (reikninga, hreyfingar, pantanir, yfirlit o.fl.) er hafnað með aðgangsvillu (403) og þeir þurfa ekki að bíða eftir að innskráningin renni út. Innskráning í vefverslun er óbreytt ef vefverslunin er virk. Breytingin vistast strax um leið og þú togar rofann.

2. Eiginleikar

Fimm rofar stýra því hvaða síður birtast í valmynd gáttarinnar. Hver rofi vistast strax þegar honum er breytt (þú þarft ekki að ýta á vista). Slökkt á eiginleika tekur gildi strax, líka fyrir viðskiptavini sem eru þegar innskráðir: gögn þess hluta eru þá lokuð (403) og hann hverfur úr yfirliti gáttarinnar.
EiginleikiLýsingSkylda
ReikningarViðskiptavinir sjá sína reikninga. Sjálfgefið kveikt.Valfrjálst
HreyfingarViðskiptavinir sjá hreyfingalista sinn. Sjálfgefið kveikt.Valfrjálst
PantanirViðskiptavinir sjá sínar pantanir. Hnappurinn „Ný pöntun" vísar á vefverslun fyrirtækisins ef hún er virk, annars á pöntunarform í gáttinni. Sjálfgefið kveikt.Valfrjálst
VerkbeiðnirBætir „Verkbeiðnir" í valmynd gáttarinnar — en gáttin hefur enn enga síðu fyrir verkbeiðnir (sjá viðvörun). Sjálfgefið slökkt.Valfrjálst
ÞjónustubeiðnirBætir „Þjónustubeiðnir" í valmynd gáttarinnar — en gáttin hefur enn enga síðu fyrir þjónustubeiðnir (sjá viðvörun). Sjálfgefið kveikt.Valfrjálst
Í spilun

Aðgangur viðskiptavina — engar samþykkisstillingar hér

Á þessari síðu eru engar samþykkisstillingar. Rofarnir „Sjálfvirkt samþykki" og „Krefjast viðskiptavina pörunar" eru horfnir: hver tenging notanda við viðskiptavin þarf alltaf samþykki starfsmanns, og samsvörun kennitölu er aldrei nóg ein og sér. Notandi sem nýskráir sig staðfestir netfang sitt og bíður svo samþykkis; á meðan sér hann biðsíðu gáttarinnar (þar birtist netfang tengiliðar ef það er skráð). Skráningar eru samþykktar eða þeim hafnað á síðunni Viðskiptavinaaðgangar.
HvaðHvarAthugasemd
Samþykkja eða hafna skráninguViðskiptavinaaðgangarSamþykki er veitt per tengingu við viðskiptavin, ekki á notandann í heild.
Stofna notanda handvirktViðskiptavinaaðgangar → „Nýr notandi"Sé viðskiptavinur valinn við stofnun er sú tenging samþykkt strax.
Skoða gáttina eins og notandinn sér hanaViðskiptavinaaðgangar → „Skoða sem notandi"Besta leiðin til að staðfesta að réttu gögnin birtist.

3. Útlit og tengiliður

Hér stýrir þú vörumerki gáttarinnar. Efst er logo-svæði; þar undir er eyðublað með lit, tengiliðsupplýsingum og velkomskilaboðum.

Logo: smelltu á „Hlaða upp logo" (eða „Skipta um logo" ef logo er þegar til). Leyfðar tegundir eru JPEG, PNG, GIF og WebP, hámarksstærð 5MB. Ef logo er til staðar sést forskoðun þess og hnappurinn „Eyða logo".
ReiturLýsingSkylda
LogoMynd sem birtist á innskráningar- og nýskráningarsíðum gáttarinnar (í stað nafns fyrirtækisins). JPEG/PNG/GIF/WebP, hámark 5MB.Valfrjálst
AðalliturLitavalari sem sýnir litakóðann sem texta. Liturinn er enn aðeins notaður á fáum stöðum í gáttinni (t.d. tákni við nafn viðskiptavinar); grunnlitir gáttarinnar breytast ekki.Valfrjálst
Netfang tengiliðarNetfang fyrir aðstoð (t.d. help@fyrirtaeki.is). Birtist á biðsíðu notanda sem bíður samþykkis.Valfrjálst
Sími tengiliðarSímanúmer tengiliðar (t.d. 555 1234).Valfrjálst
VelkomskilaboðTexti á innskráningarsíðu gáttarinnar og öðrum innskráningarsíðum hennar (gleymt lykilorð, biðsíða). Ef reiturinn er tómur birtist staðlaður texti.Valfrjálst

4. Sérsniðin lén

Þú getur látið gáttina birtast á þínu eigin léni (t.d. minarsidur.fyrirtaeki.is) í stað sjálfgefna PayGo lénsins. Efst er tafla yfir skráð lén („Engin sérsniðin lén skráð" ef ekkert er skráð), þar undir eyðublaðið „Bæta við léni" og blár upplýsingaborði „DNS uppsetning".
DálkurLýsing
LénNafn lénsins. Þegar SSL er virkt birtist smellanleg https-slóð undir.
SSL staðaStöðumerki fyrir SSL-vottorð lénsins (sjá stöðutöflu að neðan).
SjálfgefiðGrænt merki „Sjálfgefið" ef lénið er notað í tölvupóstslinkum, annars „—".
AðgerðirHnappar eftir stöðu: Athuga DNS, Virkja SSL / Reyna aftur SSL, Setja sem sjálfgefið / Fjarlægja sjálfgefið, og eyða (ruslafata).
SSL staðaMerkiÞýðing
Bíður DNSgultDNS-færsla ekki enn staðfest. Sýnir hnappana „Athuga DNS" og „Virkja SSL".
DNS staðfestbláttDNS bendir rétt á PayGo þjóninn. Sýnir „Virkja SSL".
Sækir vottorð…bláttSSL-vottorð er í vinnslu.
SSL virktgræntVottorð virkt; lénið er nothæft yfir https. Hægt að setja sem sjálfgefið.
VillarauttUppsetning mistókst. Sýnir hnappinn „Reyna aftur SSL". Villuskilaboð birtast í ábendingu þegar bendlinum er haldið yfir merkinu.
1
Skrá lénið

Sláðu inn lénið (t.d. minarsidur.fyrirtaeki.is) í reitinn undir „Bæta við léni" og ýttu á „Bæta við léni". Lénið verður að vera gilt (t.d. minarsidur.fyrirtaeki.is). Ef lénið er þegar í notkun birtist villan „Þetta lén er nú þegar í notkun".

2
Setja upp DNS

Farðu til lénaskrásetjara þíns og bættu við A-færslu sem bendir lénið á PayGo þjóninn. IP-talan birtist í bláa borðanum „DNS uppsetning" og hnappurinn „Afrita IP" afritar hana.

3
Athuga DNS

Þegar DNS-færslan er virk, ýttu á „Athuga DNS" á línu lénsins. Ef færslan finnst breytist staðan úr „Bíður DNS" í „DNS staðfest"; annars birtast skilaboð um hvað fannst.

4
Virkja SSL

Ýttu á „Virkja SSL" til að sækja SSL-vottorð. Á meðan birtist „Sækja SSL vottorð…". Þegar það tekst verður staðan „SSL virkt" og smellanleg https-slóð birtist. Ef það mistekst verður staðan „Villa" og hnappurinn „Reyna aftur SSL" birtist.

5
Setja sem sjálfgefið (valfrjálst)

Þegar lénið er SSL-virkt getur þú ýtt á „Setja sem sjálfgefið" svo tölvupóstslinkar (t.d. við endurstillingu lykilorðs) noti þitt lén. Til að fara aftur á PayGo lénið ýtirðu á „Fjarlægja sjálfgefið".

Eyða léni

Ruslafötu-hnappurinn í Aðgerðir-dálki opnar staðfestingargluggann „Staðfesta eyðingu" með spurningunni hvort þú viljir fjarlægja lénið. Staðfestu með „Já, fjarlægja" eða hættu við með „Hætta við". Lénið er þá fjarlægt ásamt SSL-uppsetningu þess, og gáttin hættir að svara á því.

Í sýnishornsfyrirtækinu (Demo Company) eru lénaaðgerðirnar læstar og skýringin „Læst í sýnishornsfyrirtæki" birtist efst á spjaldinu.
ViðskiptavinaaðgangarHnappurinn „Viðskiptavinaaðgangar" efst (líka í valmynd: Stillingar → Mínar síður → Viðskiptavinaaðgangar) opnar síðuna þar sem þú stýrir öllum notendaaðgangi viðskiptavina — bæði á Mínum síðum og í vefversluninni, því viðskiptavinur á einn reikning per fyrirtæki. Þar samþykkir þú eða hafnar skráningum, stofnar notendur, tengir þá við viðskiptavini, sendir endurstillingarpóst og getur skoðað gáttina sem notandinn. Nánari lýsing er á hjálparsíðunni Viðskiptavinaaðgangar.
Næst · Bútur 31 af 34

Viðskiptavinaaðgangar

Hvar þú samþykkir skráningar viðskiptavina á Mínum síðum og í vefversluninni, hvað dálkarnir og síurnar sýna, og hvaða aðgerðir eru í boði.