Viðskiptavinaaðgangar
Hvar þú samþykkir skráningar viðskiptavina á Mínum síðum og í vefversluninni, hvað dálkarnir og síurnar sýna, og hvaða aðgerðir eru í boði.
Smá varúð! Notandi sér gögn allra viðskiptavina sem hann er samþykktur fyrir, svo bættu bara við þeim sem hann á rétt á.
Viðskiptavinaaðgangar
Síðan Viðskiptavinaaðgangar (Stillingar → Mínar síður → Viðskiptavinaaðgangar, slóð /dashboard/settings/portal/users, líka um takkann „Viðskiptavinaaðgangar" á Stillingum Minna síðna) er ein sameinuð síða fyrir alla notendaaðganga viðskiptavina — hvort sem þeir skráðu sig á Mínum síðum eða í vefversluninni. Viðskiptavinur á einn reikning per fyrirtæki: sama innskráning virkar á báðum stöðum, svo engin sérstök síða er fyrir notendur vefverslunar. Síðan og aðgerðir hennar eru aðeins opnar hlutverkinu TENANT_ADMIN (Stjórnandi), enda veitir hún aðgang að gögnum viðskiptavina.

Efst til hægri er fellilisti sem síar töfluna eftir aðgangsstöðu: Bíður samþykkis (sjálfgefið), Samþykktir, Hafnað eða Allir. Rauða talan á fellilistanum sýnir alltaf fjölda notenda sem bíða samþykkis, óháð því hvaða sía er valin. Takkinn „Nýr notandi" stofnar aðgang handvirkt. Leitarreiturinn ofan við töfluna leitar í nafni, netfangi, kennitölu og nafni viðskiptavinar — innan þeirrar stöðu sem er valin í síunni.
| Dálkur | Lýsing |
|---|---|
| Nafn | Nafn og netfang notandans, með appelsínugulu merki „Óstaðfest netfang" ef netfangið hefur ekki verið staðfest |
| Kennitala | Kennitala notandans eins og hann skráði hana |
| Viðskiptavinur | Blátt merki með nafni aðalviðskiptavinarins (og „(+N)" ef fleiri tengingar eru samþykktar), eða grátt „Ekki tengdur" ef engin tenging er samþykkt — líka þótt beiðni bíði |
| Uppruni | Hvaðan reikningurinn kom: „Mínar síður" (blátt), „Vefverslun" (fjólublátt) eða „Starfsmaður" (stofnaður hér með „Nýr notandi") |
| Staða | „Bíður samþykkis" (appelsínugult), „Virkur" (grænt), „Óvirkur" (grátt — samþykktur en óvirkjaður) eða „Hafnað" (rautt; ástæðan birtist þegar bendill er yfir merkinu) |
| Skráður | Dagsetning skráningar |
| Síðasta innskráning | Hlutfallslegur tími (nákvæm tímasetning þegar bendill er yfir), eða „—" ef notandinn hefur aldrei skráð sig inn. Hægt að raða eftir dálkinum |
| Aðgerðir | Takkar sem fara eftir stöðu notandans — sjá töfluna hér að neðan |
| Staða | Aðgerðir í töflunni |
|---|---|
| Bíður samþykkis | Samþykkja, Hafna (með valfrjálsri ástæðu), Breyta og Stjórna viðskiptavinum |
| Virkur / Óvirkur | Skoða sem notandi, Breyta, Stjórna viðskiptavinum, Senda endurstillingarpóst, Breyta lykilorði og Óvirkja notanda (með staðfestingu) eða Endurvirkja notanda |
| Hafnað | Samþykkja og Breyta |
Samþykki á tengingu, ekki á notanda
Við skráningu verður til tengibeiðni fyrir kennitölu notandans og, ef hann tilgreinir aðra kennitölu (t.d. fyrirtækis), sérstök beiðni fyrir hana. Hver notandi getur því borið margar tengingar við viðskiptavini, og samþykki er veitt per tengingu — einn notandi getur verið samþykktur fyrir einn viðskiptavin og í bið fyrir annan. Finnist engin viðskiptavinaskrá með kennitölunni verður beiðnin ópöruð.| Aðgangsstaða | Þýðir |
|---|---|
| Samþykkt | A.m.k. ein samþykkt, óhöfnuð tenging við raunverulegan viðskiptavin |
| Hafnað | Til eru tengingar og öllum hefur verið hafnað |
| Bíður samþykkis | Allt annað, þar á meðal notandi án nokkurrar tengingar eða aðeins með ópöruðum beiðnum |
Smelltu á tengitakkann í aðgerðadálkinum. Glugginn sýnir „Tengdir viðskiptavinir" — allar tengingar notandans með merki: „Samþykkt" (grænt), „Bíður samþykkis" (appelsínugult), „Hafnað" (rautt) eða „Ópöruð" (kennitala sem fannst ekki í viðskiptamannaskránni). Aðalviðskiptavinurinn er merktur með stjörnu.
Fínstilltu ákvörðunina línu fyrir línu með „Samþykkja tengingu" eða „Hafna tengingu" (valfrjáls ástæða). Ópöruð beiðni er aldrei samþykkjanleg — henni má aðeins hafna eða fjarlægja („Fjarlægja beiðni").
Leitaðu að viðskiptavini í reitnum „Bæta við viðskiptavini" (a.m.k. 2 stafir) og smelltu á „Bæta við". Tengingin verður samþykkt um leið. Hafi notandinn átt opna beiðni fyrir sama viðskiptavin, eða ópöraða beiðni með sömu kennitölu, er sú beiðni samþykkt í stað þess að ný verði til — þannig er ópöruð beiðni tengd handvirkt.
Fyrsta samþykkta tengingin verður sjálfkrafa aðalviðskiptavinur, sem er valinn sjálfgefið við innskráningu. „Gera að aðalviðskiptavini" (stjarna) virkar aðeins á samþykkta tengingu. „Fjarlægja tengingu" eyðir tengingunni; var hún aðaltenging tekur elsta samþykkta tengingin sem eftir er við.
Samþykkis-/höfnunartakkarnir beint í töflunni afgreiða allar biðtengingar notandans í einu. Samþykki sleppir ópöruðum beiðnum, en höfnun nær líka til þeirra. Eigi notandinn enga samþykkjanlega tengingu (t.d. aðeins ópöraða beiðni) svarar kerfið „Notandi á enga tengingu sem hægt er að samþykkja" — bættu þá réttum viðskiptavini við í „Stjórna viðskiptavinum".
Nýr notandi og breytingar
„Nýr notandi" opnar form með reitunum Nafn, Netfang, Kennitala (10 tölustafir), Símanúmer (valfrjálst), Lykilorð (a.m.k. 8 stafir; „Búa til" býr til 12 stafa lykilorð) og „Tengja við viðskiptavin (valfrjálst)". Netfangið má aðeins vera skráð einu sinni hjá fyrirtækinu. Aðgangur sem starfsmaður stofnar telst með staðfest netfang og fær upprunann „Starfsmaður". Sé viðskiptavinur valinn verður tengingin samþykkt og notandinn strax „Virkur"; án viðskiptavinar situr hann í „Bíður samþykkis" þar til viðskiptavini er bætt við. Enginn póstur er sendur við stofnun — komdu lykilorðinu sjálf(ur) til viðskiptavinarins eða sendu honum endurstillingarpóst. „Breyta" leyfir að breyta nafni, kennitölu og símanúmeri, en ekki netfangi.Aðrar aðgerðir
Þessar aðgerðir eru aðeins í boði fyrir samþykkta notendur. „Skoða sem notandi" opnar hermun í nýjum flipa — þú sérð Mínar síður eða vefverslun eins og viðskiptavinurinn sér þær; hermunin gildir í 2 klukkustundir og er merkt sem hermun í atvikaskrá. „Senda endurstillingarpóst" sendir hlekk til að velja nýtt lykilorð, sem gildir í 24 klukkustundir; hlekkurinn fer á vefverslunina ef reikningurinn varð til þar (eða fyrirtækið hefur ekki Mínar síður), annars á Mínar síður. Ekki er hægt að senda endurstillingarpóst til óvirks notanda. „Breyta lykilorði" setur nýtt lykilorð (a.m.k. 8 stafir) sem tekur gildi strax. Óvirkja notanda (með staðfestingu) lokar á innskráningu og innskráðar lotur notandans strax, óháð tengingum hans; Endurvirkja notanda opnar aftur og tengingarnar halda þeirri stöðu sem þær höfðu.Tengsl við aðrar einingar: Innskráningarsíðan sjálf og útlit hennar eru stillt á Mínar síður. Viðskiptavinur sem er tengdur og samþykktur hér sér sín eigin verðkjör (áætlanir, þrep, föst verð) sjálfkrafa bæði á Mínum síðum og í vefversluninni. Viðskiptavinaskráin sjálf sem tengingar vísa í er á Viðskiptavinir.
