Samningssniðmát
Hvernig sniðmát fyrir samninga eru búin til, hvað er í ritlinum, hvernig breytur og stílblað virka og hvernig forskoðun og útgáfusaga hjálpa.
Í HTML-ham límirðu inn tilbúið HTML. Ritillinn varar þig við áður en tög tapast.
Samningssniðmát
Síðan Samningssniðmát (Stillingar → Sala → Samningssniðmát) er þar sem stjórnendur smíða sniðmát fyrir samninga. Hvert sniðmát á sér heiti, valfrjálsa lýsingu, tungumál (íslenska eða enska) og rofa fyrir virkni — óvirk sniðmát birtast ekki í „Búa til samning"-glugganum.
Listinn sýnir heiti, tungumál, virkni og síðast uppfært. Ef sniðmáti með útgefna samninga er eytt helst heiti sniðmátsins áfram á þeim samningum (tegundardálkur listans), þótt tenging við sniðmátið sjálft rofni.
Í aðgerðadálki hverrar línu eru hnapparnir Breyta og Eyða. Eyðing er endanleg (útgáfusaga sniðmátsins fer með) og kerfið spyr um staðfestingu fyrst; ef samningar vísuðu í sniðmátið er það tilkynnt eftir á. Óvirkt sniðmát er ekki hægt að nota til að búa til samning.
Samningsnúmer koma ekki úr sniðmátinu: hver samningur fær sjálfkrafa númer á forminu
SAM-0001, SAM-0002 … (hæsta núverandi númer fyrirtækisins + 1). Sé nýjasta
samningnum eytt er númer hans notað aftur á næsta samning. Númerið er í breytunni
contract.number („Samningsnúmer“) og fyllist út þegar samningurinn er búinn til.

Haus og fótur
Rofinn „Lógó fyrirtækis í haus" setur merki fyrirtækisins efst á hverja PDF-síðu. Hausartexti og fótartexti eru frjáls textareitir sem birtast á öllum síðum skjalsins, fyrir ofan og neðan aðalefnið — hentugt fyrir heiti fyrirtækis, kennitölu eða síðutal.
Ritillinn — sjónrænn hamur og HTML-hamur
Meginefni samningsins er skrifað í ritli með tveimur hömum:
- Sjónrænn hamur — venjulegur ritill með fyrirsögnum, feit-/skáletrun, listum, töflum (bæta við röð/dálki, eyða röð/dálki/töflu) og síðuskilum svo hluti samningsins byrji alltaf á nýrri síðu í PDF-inu.
- HTML-hamur — fyrir þá sem vilja líma inn tilbúið HTML beint. Skipt er á milli hama með
hnöppunum efst. Klasar (
class), inline-stíll og hreiðraðarsection/div-blokkir haldast þegar farið er yfir í sjónrænan ham, en tög sem ritillinn þekkir ekki geta tapast — því birtist staðfestingargluggi fyrst.<style>-blokkir í HTML-inu færast sjálfkrafa í stílblaðið.
Hnappurinn „Setja inn breytu" í tækjastikunni opnar breytulistann; í sjónrænum ham er valin breyta afrituð á klemmuspjald (líma hana inn þar sem hennar er þörf), í HTML-ham bætist hún beint aftast við efnið.
Stílblað (CSS)
Undir ritlinum er reiturinn Stílblað (CSS). Þar má skrifa venjulegar CSS-reglur sem gilda um
allt samningsskjalið — t.d. spássíur síðu, leturgerðir, liti og reglur fyrir klasa sem settir eru á efnið
(<p class="grein">). Hámarksstærð er 256 KB; meginmál sniðmátsins má mest vera 2 MB.
Útlitið í ritlinum. Sjónræni ritillinn sýnir efnið á blaði með útliti stílblaðsins —
leturgerðum, litum, bilum og reglum fyrir klasa — og uppfærist um leið og þú breytir stílblaðinu. Stærð
blaðsins og spássíur koma úr @page (t.d. A5 eða landscape); á
mjóum skjá minnkar blaðið. Síðuskil sem þú setur inn sjást sem strikalína merkt „Síðuskil“, og strikalínur
merktar „Bls. 2“, „Bls. 3“ o.s.frv. sýna hvar PDF-skjalið skiptir áætlað um síðu, reiknað út frá blaðstærð,
spássíum og hvort haus er á skjalinu. Það er nálgun: haus og fótur sjást aðeins í
Forskoða, sem sýnir endanlegt PDF-skjal, og þar getur síðuskipting munað línu eða
töfluröð. Það sem ritillinn getur ekki sýnt birtist í
viðvörun undir stílblaðinu. Af öryggisástæðum umskrifar PayGo stílblaðið áður en ritillinn fær það, svo það
nær aðeins til blaðsins sjálfs og getur aldrei breytt útliti annarra hluta PayGo — valmynda, hnappa eða
glugga — hjá þér eða öðrum sem opna sniðmátið.
Leyfilegt er m.a.:
- klasar,
idog allir venjulegir CSS-eiginleikar, líka flex, grid ogposition; @pagefyrir spássíur og síðustærð (líka:first) og@media print;- sjálfvirk númerun greina með
counter-reset,counter-incrementogcontent; - myndir og letur sem
data:-slóðir (url(data:image/png;base64,…),@font-facemeðdata:font/woff2).
Dæmi — spássíur og númeraðar greinar:
@page { size: A4; margin: 35mm 20mm 25mm; }
@page :first { margin-top: 50mm; }
body { counter-reset: grein; }
h2.grein { counter-increment: grein; }
h2.grein::before { content: counter(grein) ". "; }
.undirritun { display: flex; justify-content: space-between; margin-top: 40mm; }
Spássíur, síðustærð og haus/fótur. Hausinn (lógó og hausartexti) og fóturinn (dagsetning,
fótartexti og „Bls. X af Y“) teiknast í spássíunni efst og neðst á hverri síðu. Þess vegna er spássían efst
aldrei minni en 32 mm þegar haus er virkur (20 mm annars) og neðst aldrei minni en 22 mm: minna gildi í
@page er hækkað upp í lágmarkið. Hliðarspássíur eru frjálsar. Síðustærð er gefin með heiti
(A4, A5, A3, letter, legal) og stefnu
(landscape eða portrait), ekki í millimetrum. Spássíukassar eins og
@top-center eru ekki leyfðir — þeir myndu lenda ofan í hausnum eða fætinum; notaðu hausartexta og
fótartexta sniðmátsins í staðinn. Í @page má aðeins nota size og spássíur
(margin, margin-top …), og spássíur aðeins sem fastar lengdir (mm,
cm, in, pt, px) — ekki calc(), %
eða aðra eiginleika eins og background, sem gætu falið hausinn eða fótinn.
Inline-stíll á einstökum þáttum (style="…") er áfram síaður þrengra, því hann birtist líka í
ritlinum hjá öðrum notendum: þar eru t.d. position, z-index og transform
ekki leyfð. Notaðu klasa og stílblaðið fyrir slíkt.
Stærðarmörk. Lengd má mest vera um 5 metrar (5000 mm, t.d. 18.000 px eða 1.180 em) og tala
án einingar mest 100.000. Hærri gildum (t.d. height: 30000000px) er hafnað í stílblaðinu og þau
felld úr inline-stíl, því þau gera ekkert gagn á pappír en halda PDF-teiknaranum uppteknum. Ljúki teiknun ekki
á 30 sekúndum er hætt og villuboð birtist.
Breytuskráin — sex hópar og frjálsar breytur
Breytulistinn hægra megin í ritlinum skiptist í sex fasta hópa auk frjálsra breytna:
| Hópur | Dæmi um breytur |
|---|---|
| Fyrirtæki | Nafn, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, staður, sími, netfang fyrirtækisins. |
| Viðskiptavinur | Nafn, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, staður, netfang, sími viðskiptavinarins. |
| Tengiliður | Nafn, netfang, sími og starfsheiti tengiliðar sem valinn er þegar samningur er stofnaður. |
| Skjal | Tegund, númer, dagsetning, gildistími/afhendingardagur, tilvísun, upphæð án/með VSK og línutafla úr tilboðinu eða pöntuninni. |
| Samningur | Samningsnúmer og dagsetning samnings — myndast þegar samningurinn er skráður. |
| Notandi | Nafn og netfang notandans sem býr samninginn til. |
Fyrir utan þessa sex fasta hópa má bæta frjálsum breytum beint inn í efnið á forminu
{{lykill}} (t.d. {{leigufjarhaed}}). Kerfið finnur þessar breytur sjálfkrafa í
textanum og gerir þær að skyldureitum í breytnaskrefinu þegar samningur er búinn til — notandinn
verður að fylla þær út áður en hægt er að halda áfram í forskoðun.
Forskoðun
Hnappurinn Forskoða býr til PDF úr sniðmátinu með sýnigögnum — tilbúnum dæmagildum fyrir allar breytur — svo hægt sé að sjá útlit skjalsins áður en það er notað á raunverulegt tilboð eða pöntun. Sama forskoðun er notuð í „Búa til samning"-glugganum, en þar með raunverulegum gögnum viðskiptavinarins.
Útgáfusaga
Hnappurinn Útgáfusaga efst á síðunni opnar lista yfir allar vistaðar útgáfur sniðmátsins, nýjasta fremst. Ný útgáfa verður til í hvert sinn sem Vista breytir efninu — heiti, lýsingu, tungumáli, haus/fæti, meginmáli eða stílblaði; vistun sem breytir engu (ýtt á Vista án breytinga) býr ekki til nýja útgáfu. Rofinn Virkt telst ekki með — að kveikja eða slökkva á honum einum og sér býr aldrei til útgáfu. 100 nýjustu útgáfurnar eru geymdar og eldri falla út sjálfkrafa — nema samningur hafi verið búinn til úr þeim: hver samningur skráir hvaða útgáfa sniðmátsins teiknaði hann, og sú útgáfa er því geymd áfram. (Samningar sem voru búnir til áður en útgáfusagan kom til eru ekki tengdir útgáfu.)
Við hverja útgáfu má Forskoða hana sem PDF með sýnigögnum, alveg eins og núverandi efni. Endurheimta (ekki í boði á núverandi útgáfu) skiptir sniðmátinu yfir í efni þeirrar útgáfu — en gerir það með því að búa til nýja útgáfu merkta „Endurheimt úr vN“, aldrei með því að eyða neinu. Þannig er ekkert óafturkræft: fari eitthvað úrskeiðis eftir endurheimt er alltaf hægt að endurheimta aftur úr útgáfunni sem var í gildi rétt fyrir hana. Séu óvistaðar breytingar á síðunni þegar endurheimt er staðfest tapast þær — kerfið varar sérstaklega við því í því tilviki.
Smelltu á „Nýtt sniðmát", gefðu því heiti, veldu tungumál og settu haus-/fótartexta og lógó eftir þörfum.
Notaðu sjónræna haminn til að skrifa meginmál samningsins, setja inn töflur og síðuskil. Smelltu á breytur í listanum til að afrita þær inn í textann, eða skiptu yfir í HTML-ham til að líma inn tilbúið HTML.
Skrifaðu {{lykill}} beint í efnið fyrir gögn sem eru ekki í föstu breytuhópunum sex — þær verða sjálfkrafa skyldureitir þegar samningur er búinn til.
Smelltu á Forskoða til að sjá PDF með sýnigögnum. Þegar útlitið er tilbúið, smelltu á Vista.
