API-lyklar
Hvað API-lykill er, hvernig nýr lykill er búinn til, hvað taflan sýnir, hvað heimildirnar leyfa og hvað prófunarlykillinn gerir.
API-lyklar
API-lyklar
Síðan API-lyklar (Stillingar → Gögn & tengingar → API-lyklar) er fyrir forritara og kerfi sem þurfa að sækja eða skrá gögn í PayGo án þess að starfsmaður skrái sig inn, til dæmis að stofna reikninga úr vefverslun eða flytja viðskiptavini í annað kerfi. Síðan er aðeins sýnileg stjórnendum fyrirtækisins og er opin öllum fyrirtækjum — ekki þarf að virkja neina viðbót. Hver lykill fær aðeins þær aðgerðir (heimildir) sem þú velur.
Smelltu á Nýr lykill, gefðu honum heiti (t.d. „Vefverslun“) og veldu heimildir. Heimildum er raðað eftir auðlind. Aðeins lestur velur allar leshimildir, Allt allar tiltækar heimildir og Hreinsa val afturkallar valið — veldu helst aðeins það sem forritið þarf. Heimildir merktar „Væntanlegt“ eru ekki komnar í notkun og er ekki hægt að velja.
Veldu hvort lykillinn rennur aldrei út, eftir 30 daga, 90 daga, 1 ár eða á ákveðinni dagsetningu. Valfrjálst er að skrá leyfðar IP-tölur eða CIDR-net, eitt á línu — sé listinn tómur má nota lykilinn hvaðan sem er.
Lykillinn birtist aðeins einu sinni, strax eftir að hann er búinn til. Afritaðu hann og geymdu á öruggum stað. Týnist hann þarf að snúa honum eða búa til nýjan.
| Dálkur | Lýsing |
|---|---|
| Heiti og lykill | Heiti lykilsins og stytt forskoðun á honum |
| Heimildir | Heimildir lykilsins; færa músina yfir merki til að sjá lýsingu og „+N“ til að sjá afganginn |
| Staða | Virkur, Útrunninn eða Afturkallaður |
| Stofnaður | Dagsetning og hver bjó lykilinn til |
| Rennur út | Gildistími lykilsins, eða „Aldrei“ |
| Síðast notaður | Tími og IP-tala síðustu notkunar (á breiðum skjá) |
Breyta, snúa og afturkalla
- Breyta — breytir heiti, heimildum, gildistíma og leyfðum IP-tölum virks lykils. Lykillinn sjálfur breytist ekki.
- Snúa — býr til nýjan lykil með sömu stillingum. Þú velur hve lengi gamli lykillinn á að virka áfram: strax út, í 24 klukkustundir eða 7 daga, svo hægt sé að skipta um lykil í forritinu án rofs. Nýi lykillinn birtist einu sinni.
- Afturkalla — lykillinn hættir strax að virka. Það er óafturkræft.
Hvað heimildirnar leyfa
- Viðskiptavinir og lánardrottnar — lesa, stofna og breyta.
- Vörur og tilvísunargögn — lesa vörur með lagerstöðu (aldrei kostnaðar- eða innkaupsverð) og lista eins og VSK-hlutföll, bókhaldslykla, greiðslumáta, útgjaldaflokka, starfsmannalista (aðeins nafn) og vöruhús.
- Reikningar — lesa, stofna (þeir bókast strax), senda í tölvupósti og kreditfæra. Að skrá greiðslu á reikning er sérstök heimild, Greiðslur.
- Tilboð og pantanir — lesa, stofna, breyta, senda og reikningsfæra.
- Útgjöld — lesa útgjöld og viðhengi, skrá útgjöld óbókuð (bókari samþykkir þau í PayGo) og hlaða upp kvittunum.
- Verkbeiðnir — lesa, stofna og breyta verkbeiðnum, stöðu þeirra, efni og viðhengjum. Heimildin Tímar skráir, breytir og eyðir tímum starfsfólks á verkbeiðnum; þeir fara í launaútreikning án samþykktar stjórnanda.
- Stimpilklukka — stimpla starfsfólk inn og út og lesa vaktir. Stimplanir bíða samþykktar stjórnanda áður en þær fara í laun.
Prófunarlykill
Þegar þú býrð til fyrsta API-lykilinn færðu líka prófunarlykil (hann byrjar ápaygo_test_). Hann sést alltaf neðar á síðunni, falinn þar til þú smellir á Sýna, og má afrita án þess að sýna hann. Hann virkar á sömu slóð og raunlyklar (https://api.paygo.is/v1) en aðeins á sýnishornsfyrirtækið, aldrei á gögn fyrirtækisins þíns.- Gögnin í sýnishornsfyrirtækinu eru sameiginleg öllum notendum PayGo og endurstillt á hverri nóttu — allt sem þú býrð til hverfur, líka auðkenni sem samþættingin þín geymdi. Sendu aldrei raunveruleg gögn með prófunarlyklinum — allir notendur PayGo sjá gögn sýnishornsfyrirtækisins.
- Lykillinn les allt og skrifar flest, en sendir engan tölvupóst, tekur ekki við skráaupphleðslum né AI-lestri kvittana, stofnar engar raunverulegar kröfur í banka og styður ekki vefkróka. Bönnuð aðgerð svarar 403 með kóðanum
not_available_in_test_mode. Nánar í leiðbeiningunni um prófunarham. - Hraðatakmörk eru þrengri en fyrir raunlykla.
- Endurnýja lykil býr til nýjan prófunarlykil og sá gamli hættir strax að virka.
