PayGoHandbókNámskeið
Kafli: StillingarBútur 35 af 361:10

API-lyklar

Hvað API-lykill er, hvernig nýr lykill er búinn til, hvað taflan sýnir, hvað heimildirnar leyfa og hvað prófunarlykillinn gerir.

Prófaðu þetta í þínu kerfi
Opna í PayGo
Skref 9 af 110:55 / 1:10

Heimildirnar segja hvað lykillinn má, til dæmis lesa viðskiptavini eða stofna reikninga. Laun og kostnaðarverð eru aldrei með.

Hraði

API-lyklar

Búðu til lykla sem forrit nota til að tala við PayGo gegnum opna API-ið

Síðan API-lyklar (Stillingar → Gögn & tengingar → API-lyklar) er fyrir forritara og kerfi sem þurfa að sækja eða skrá gögn í PayGo án þess að starfsmaður skrái sig inn, til dæmis að stofna reikninga úr vefverslun eða flytja viðskiptavini í annað kerfi. Síðan er aðeins sýnileg stjórnendum fyrirtækisins og er opin öllum fyrirtækjum — ekki þarf að virkja neina viðbót. Hver lykill fær aðeins þær aðgerðir (heimildir) sem þú velur.

1
Búa til lykil

Smelltu á Nýr lykill, gefðu honum heiti (t.d. „Vefverslun“) og veldu heimildir. Heimildum er raðað eftir auðlind. Aðeins lestur velur allar leshimildir, Allt allar tiltækar heimildir og Hreinsa val afturkallar valið — veldu helst aðeins það sem forritið þarf. Heimildir merktar „Væntanlegt“ eru ekki komnar í notkun og er ekki hægt að velja.

2
Gildistími og IP-tölur

Veldu hvort lykillinn rennur aldrei út, eftir 30 daga, 90 daga, 1 ár eða á ákveðinni dagsetningu. Valfrjálst er að skrá leyfðar IP-tölur eða CIDR-net, eitt á línu — sé listinn tómur má nota lykilinn hvaðan sem er.

3
Afrita lykilinn

Lykillinn birtist aðeins einu sinni, strax eftir að hann er búinn til. Afritaðu hann og geymdu á öruggum stað. Týnist hann þarf að snúa honum eða búa til nýjan.

DálkurLýsing
Heiti og lykillHeiti lykilsins og stytt forskoðun á honum
HeimildirHeimildir lykilsins; færa músina yfir merki til að sjá lýsingu og „+N“ til að sjá afganginn
StaðaVirkur, Útrunninn eða Afturkallaður
StofnaðurDagsetning og hver bjó lykilinn til
Rennur útGildistími lykilsins, eða „Aldrei“
Síðast notaðurTími og IP-tala síðustu notkunar (á breiðum skjá)

Breyta, snúa og afturkalla

  • Breyta — breytir heiti, heimildum, gildistíma og leyfðum IP-tölum virks lykils. Lykillinn sjálfur breytist ekki.
  • Snúa — býr til nýjan lykil með sömu stillingum. Þú velur hve lengi gamli lykillinn á að virka áfram: strax út, í 24 klukkustundir eða 7 daga, svo hægt sé að skipta um lykil í forritinu án rofs. Nýi lykillinn birtist einu sinni.
  • Afturkalla — lykillinn hættir strax að virka. Það er óafturkræft.
Afturkallaðir og útrunnir lyklar eru skrifvarðir. Hámark 20 virkir lyklar eru leyfðir í hverju fyrirtæki.
Í spilun

Hvað heimildirnar leyfa

  • Viðskiptavinir og lánardrottnar — lesa, stofna og breyta.
  • Vörur og tilvísunargögn — lesa vörur með lagerstöðu (aldrei kostnaðar- eða innkaupsverð) og lista eins og VSK-hlutföll, bókhaldslykla, greiðslumáta, útgjaldaflokka, starfsmannalista (aðeins nafn) og vöruhús.
  • Reikningar — lesa, stofna (þeir bókast strax), senda í tölvupósti og kreditfæra. Að skrá greiðslu á reikning er sérstök heimild, Greiðslur.
  • Tilboð og pantanir — lesa, stofna, breyta, senda og reikningsfæra.
  • Útgjöld — lesa útgjöld og viðhengi, skrá útgjöld óbókuð (bókari samþykkir þau í PayGo) og hlaða upp kvittunum.
  • Verkbeiðnir — lesa, stofna og breyta verkbeiðnum, stöðu þeirra, efni og viðhengjum. Heimildin Tímar skráir, breytir og eyðir tímum starfsfólks á verkbeiðnum; þeir fara í launaútreikning án samþykktar stjórnanda.
  • Stimpilklukka — stimpla starfsfólk inn og út og lesa vaktir. Stimplanir bíða samþykktar stjórnanda áður en þær fara í laun.
Laun, kostnaðarverð og framlegð eru aldrei aðgengileg um API-ið.

Prófunarlykill

Þegar þú býrð til fyrsta API-lykilinn færðu líka prófunarlykil (hann byrjar á paygo_test_). Hann sést alltaf neðar á síðunni, falinn þar til þú smellir á Sýna, og má afrita án þess að sýna hann. Hann virkar á sömu slóð og raunlyklar (https://api.paygo.is/v1) en aðeins á sýnishornsfyrirtækið, aldrei á gögn fyrirtækisins þíns.
  • Gögnin í sýnishornsfyrirtækinu eru sameiginleg öllum notendum PayGo og endurstillt á hverri nóttu — allt sem þú býrð til hverfur, líka auðkenni sem samþættingin þín geymdi. Sendu aldrei raunveruleg gögn með prófunarlyklinum — allir notendur PayGo sjá gögn sýnishornsfyrirtækisins.
  • Lykillinn les allt og skrifar flest, en sendir engan tölvupóst, tekur ekki við skráaupphleðslum né AI-lestri kvittana, stofnar engar raunverulegar kröfur í banka og styður ekki vefkróka. Bönnuð aðgerð svarar 403 með kóðanum not_available_in_test_mode. Nánar í leiðbeiningunni um prófunarham.
  • Hraðatakmörk eru þrengri en fyrir raunlykla.
  • Endurnýja lykil býr til nýjan prófunarlykil og sá gamli hættir strax að virka.
Næst · Bútur 36 af 36

Vefkrókar (webhooks)

Hvað vefkrókar eru, hvernig áskrift er stofnuð, hvað taflan sýnir og hvaða aðgerðir bíða hverrar áskriftar, auk sendingaskrár og skjölunar fyrir forritara.